Trump tilnefnir nýjan Hæstaréttardómara í nótt - Færist dómstóllinn lengra til hægri?

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnir til­nefn­ingu sína til emb­ættis Hæsta­rétt­ar­dóm­ara í kvöld. Skipunin gæti breytt banda­rísku sam­fé­lagi á ýmsa vegu þar sem frá­far­andi dóm­ari var oft úrslita­at­kvæði í stórum málum og hneigð­ist bæði til hægri og vinstri.

Kennedy er næst lengst til vinstri í fremri röð.
Kennedy er næst lengst til vinstri í fremri röð. Mynd: Samsett.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hyggst til­kynna um til­nefn­ingu sína til emb­ættis Hæsta­rétt­ar­dóm­ara klukkan níu í kvöld á stað­ar­tíma, klukkan eitt í nótt á íslenskum tíma. Í dag tísti frá því dag seg­ist for­set­inn hafa heyrt lengi að mik­il­væg­asta ákvörðun sem banda­rískir for­setar geta tekið sé val á Hæsta­rétt­ar­dóm­ara.

[links]Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Anthony M. Kennedy til­kynnti óvænt í lok júní að hann hyggð­ist segja af sér emb­ætti. Kennedy er fæddur árið 1936 og verður því 82 ára á þessu ári. Ronald Regan, þá for­seti Banda­ríkj­anna, skip­aði hann í emb­ættið árið 1988.

Kennedy sveiflaðist frá hægri til vinstri

Ákvörðun Kennedy gefur Trump tæki­færi til að gera rétt­inn, æðsta dóms­vald Banda­ríkj­anna, enn íhalds­sam­ara og hægri sinn­aðra. Atkvæði Kennedy hefur oft og tíðum verið það sem kall­ast „swing vote“ eða úrslita atkvæði milli þeirra dóm­ara sem hall­ast til hægri og vinstri, en Kennedy hefur í gegnum tíð­ina ýmist kosið með þeim íhalds­sam­ari eða þeim frjáls­lynd­ari.

Í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna sitja níu dóm­arar. Staðan hefur verið sú að þeir hægri sinn­uðu hafa verið fjórir og þeir frjáls­lyndu fjórir. Kennedy, hinn níundi, hefur almennt flokk­ast í íhalds­sam­ari armi rétt­ar­ins og kosið með þeim í þeim málum sem koma fyrir rétt­inn. Á því hafa þó verið veiga­miklar und­an­tekn­ingar og þar vega þyngst ákvarð­anir rétt­ar­ins þegar hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra voru leyfð og þegar komið var í veg fyrir ákveðnar tak­mark­anir á fóst­ur­eyð­ingum. Að auki tak­mark­aði Kennedy bæna­hald í skólum og afnam dauða­refs­ingar fyrir unga afbrota­menn.

Kennedy hefur þó einnig verið mjög íhalds­samur og hægri sinn­aður í öðrum þunga­vigt­ar­nið­ur­stöðum rétt­ar­ins á emb­ætt­is­tíð sinni. Má þar sem dæmi nefna dóm frá árinu 2010, hinn svo­kall­aða Citizen United-dóm, þar sem fyr­ir­tækjum var veitt svo­kallað tján­ing­ar­frelsi, það er að segja til að frelsi til að leggja fram ótak­mörkuð fjár­fram­lög til halda ákveðnum fram­bjóð­endum eða flokkum. Hann hefur einnig varið rétt Banda­ríkja­manna til að bera vopn og studdi ógild­ingu á Obamacare að hluta.

Kennedy var á sínum tíma ekki fyrsta val Regan. Hann hafði gert tvær til­raunir með aðra dóm­ara sem hann kom ekki í gegnum þingið. Kennedy var því þriðja val Regan, var sagður vera mik­ill íhalds­maður en úr varð að í ákveðnum málum olli hann mestu íhalds­mönn­unum von­brigðum.

Hverjir koma til greina?

Trump skip­aði í fyrra Neil Gorsuch í emb­ætti Hæsta­rétt­ar­dóm­ara í stað Antonin Scalia sem lést árið 2016. Þar fór ein­fald­lega inn íhalds­maður fyrir íhalds­mann.

Margir miðlar vestra spá því að dóm­ar­inn Thomas M. Hardiman sé ofar­lega á lista Trump. Hann mun hafa verið næsta val hjá for­set­anum í fyrra og mun njóta hylli for­set­ans. Hardiman var sá fyrsti í fjöl­skyldu sinni til að ljúka háskól­ar­prófi og greiddi fyrir námið með því að keyra leigu­bíl. Ráð­gjafar Trump eru sam­kvæmt umfjöllun New York Times um málið afar hrifnir af þess­ari sögu Hardiman. Hann mun einnig vera dyggur stuðn­ings­maður for­set­ans auk þess sem hann hefur unnið með systur hans.

Aðrir á lista Trump, sem mun inni­halda fjóra dóm­ara sem helst koma til greina sam­kvæmt amer­ískum miðlum, eru íhalds­mað­ur­inn Amy Coney Barrett og Brett M. Kavan­augh sem var starfs­maður hjá George W. Bush og að end­ingu Raymond M. Ket­hledge, sem þó þykir ólík­legur.

Gæti orðið mikil stefnubreyting

Hags­mun­að­ilar, eins og til að mynda tals­menn byssu­eig­enda og harð­ari stefnu í inn­flytj­enda­málum og fóst­ur­eyð­ingum, eru nú þegar farnir að setja pressu á for­set­ann.

Ljóst þykir að hver sá sem verður fyrir val­inu verði ekki eins frjáls­lyndur í ákveðnum mál­efnum og Anthony Kennedy. Trump er sagður ekki ætla að gera sömu „mis­tök“ og Regan með því að setja dóm­ara í emb­ætti sem gæti komið á óvart í ein­hverjum málum.

Það er því ekki ólík­legt að þessi æðsti og for­dæm­is­gef­andi dóm­stóll Banda­ríkj­anna muni draga landið í nokkuð aðrar áttir en verið hefur á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár