Trump skipar „sinn mann“ í Hæstarétt

Neil Gorsuch er nýr dóm­ari í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna eftir að Donald J. Trump skip­aði hann í dóm­inn.

Neil Gorsuch flytur ávarp eftir að tilkynnt var um að hann yrði hæstaréttardómari í Bandaríkjunum.
Neil Gorsuch flytur ávarp eftir að til­kynnt var um að hann yrði hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Neil Gorsuch verður lík­lega nýr dóm­ari í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna eftir að Donald J. Trump til­nefndi hann dóm­ara í spennu­þrung­inni athöfn. Gorsuch er sagður íhalds­samur dóm­ari, Repúblikani alveg inn að beini, en þykir um margt hafa staðið sig vel á dóm­ara­ferli sínum til þessa, að því er segir í New York Times.

Demókratar hafa þó þegar, margir hverjir, mót­mælt útnefn­ingu Gorsuch og sagt hana grafa undan stjórn­skipan lands­ins og úti­lokað sjálf­stæð vinnu­brögð rétt­ar­ins. Elisa­beth Warren er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt skipan Gosuch og segir dóm­ara­feril hans sýna að hann hafi ekki það sem þarf til að takast á við starfið, flókn­ara sé það nú ekki.

Gorsuch er 49 ára gam­all og með lög­fræði­menntun frá Columbia í New York og Harvard háskóla í Boston.

Gorsuch hefur starfað við áfrýj­un­ar­dóm­stól­inn í Denver og er málsvari trú­frelsis og þykir mik­ill bók­stafs­trú­ar­maður þegar kemur að túlkun stjórn­ar­skrár­innar. Hann seg­ist horfa mikið ti þess hvernig Scalia nálg­að­ist dóm­ara­starfið en hann var 79 ára þegar hann lést.

Gorusch sagði í ræðu, sem hann flutti þegar hann var útefndur dóm­ari, að hann hefði alltaf litið upp til Antonin Scalia, sem lést í febr­úar síð­ast­liðnum. Scalia var umdeildur fyrir íhalds­samar skoð­anir og þótti vera haukur í horni á íhalds­samasta hluta Repúblikana­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár