Ljósmæðrafélag Íslands: Úrskurður gerðardóms mikil vonbrigði

Ljós­mæður segja úrskurð gerð­ar­dóms ekki fela í sér nýtt mat á verð­mæti starfs ljós­mæðra, eins og vænt­ingar hafi verið um.

Ljós­mæðra­fé­lag Íslands segir úrskurð gerð­ar­dóms mikil von­brigði í yfir­lýs­ingu sem félagið sendi frá sér í dag. Félagið fagnar því að gerð­ar­dómur, sem skip­aður var af rík­is­sátta­semj­ara til þess að fjalla um launa­setn­ingu ljós­mæðra, hafi skilað nið­ur­stöðu en telur aftur á móti að úrskurður gerð­ar­dóms feli ekki í sér nýtt mat á verð­mæti starfs ljós­mæðra, eins og vænt­ingar hafi verið um.

Samkvæmt nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms skal kandídats­gráða ljós­mæðra metin með sama hætti og hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingi með sér­nám. Þá skulu nemar fá laun. Í nið­ur­stöð­unni segir jafn­framt að ljós­mæður í svo­nefndu klínísku starfi eigi að vera tveimur launa­flokkum ofar en hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem ekki hafa sér­menntun í starfi.

Nefnt er sér­sta­lega að laun skuli fara til nema í fag­inu frá og með 1. sept­em­ber, en laun til nema á síð­asta starfs­ári skulu miðað við 25 vikna starf.

„Gerð­ar­dómi var ætlað að meta og verð­leggja störf ljós­mæðra með til­liti til mennt­unar, ábyrgðar, álags og inn­taks starfs. Líkt og tekið er fram í grein­ar­gerð með úrskurð­inum eru tíma­lengd náms ljós­mæðra sam­bæri­legt við nám lækna og tann­lækna. Hér er um að ræða fag­fólk sem á það sam­eig­in­legt að sinna sjálf­stæðri grein­ingu og með­ferð og bera mikla fag­lega ábyrgð,“ segir í yfir­lýs­ingu ljós­mæðra.

Ljós­mæðra­fé­lagið átti von á afdrátt­ar­lausri nið­ur­stöðu sem væri til þess fallin að skera úr um ágrein­ing milli ljós­mæðra og rík­is­ins hvað varðar verð­mæti starfs­ins og kjara­mál stétt­ar­innar. „Í stað þess felur sam­an­tekt gerð­ar­dóms í sér ýmsar til­lögur og ábend­ingar um atriði eins og vinnu­tíma, starfs­þróun og þátt­töku í til­rauna­verk­efnum. LMFÍ bendir á að þessi atriði hafa verið til umræðu á samn­ings­tím­anum án árang­urs. Þá telur LMFÍ að gerð­ar­dómur sé að varpa ábyrgð sinni yfir á aðra þegar hann bendir á að lík­legt sé að jafn­launa­vottun og starfs­mat komi til með að form­festa kröfur sem gerðar eru til ljós­mæðra.“

Félagið fagnar því að ljós­mæðra­nemar fái nú greitt fyrir starfs­nám sitt en telur það þó ekki kjara­bót fyrir starf­andi ljós­mæður og bendir á að ljós­mæðra­nemar eru ekki félags­menn í LMFÍ. Það veki því nokkra furðu að gerð­ar­dómur hafi tekið afstöðu til þess nú.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár