Svefnleysi og efnaskipti

Passið upp á svefn­inn ykkar. Hann gerir meira fyrir ykkur en ykkur grunar.

Nú er runn­inn upp sá tími árs­ins sem Íslend­ingar reyna að koma skikki á sinn eigin svefn sem og svefn barna sinna meðan haustrútínan skellur á. Svefn­leysi og trufl­anir á svefni geta valdið fólki mik­illi van­líðan og fjöl­margir sjúk­dómar virð­ast hafa aukna tíðni meðal þeirra sem t.d. vinna næt­ur­vinnu eða eiga erfitt með svefn.

Trufl­anir í efna­skipta­ferlum lík­am­ans koma oft fram sem sjúk­dómar eins og syk­ur­sýki, týpa tvö, og offita. Þessir tveir sjúk­dómar eru einmitt algeng­ari hjá fólki sem vinnur næt­ur­vinnu, sam­an­borið við þá sem vinna á dag­inn.

Í rann­sókn sem rann­sókn­ar­hópur við Uppsala Uni­versitet birti í Science Advances er ljósi varpað á þá ferla sem hugs­an­lega liggja að baki þess­ari þróun.

Fimmtán heil­brigðir sjálf­boða­liðar voru við­fangs­efni rann­sókn­ar­innar. Allir þátt­tak­endur þurftu að und­ir­gang­ast sömu með­ferð. Annars vegar sváfu þátt­tak­endur fullan 8 klukku­stunda svefn og hins vegar var þeim haldið vak­andi yfir heila nótt. Í báðum til­fellum fór fram vefja­sýna­söfnun úr þátt­tak­endur, blóð-, fitu­vefs- og vöðva­sýni.

DNA var ein­angrað úr bæði fitu­vefs- og vöðva­sýn­unum en sam­eindir sem spá fyrir um ýmis efna­skipta­ferli voru einnig skot­mark allra vefja­sýn­anna, sér í lagi blóð­sýn­is­ins. Mesta athygli vöktu þó breyt­ingar á erfða­efn­inu sem ein­angrað var úr fitu­vefnum.

Þó allar frumur lík­am­ans geymi sama erfða­efni er mis­jafnt eftir vefja­verð hvaða gen eru tjáð hverju sinni. Þessu er stjórnað með marg­vís­legum hætti, ein algeng leið sem lík­ams­frumur okkar nota kall­ast utan­gena­erfðir, þ.e. merk­ingar utan á erfða­efnið sem annð hvort lokar því eða auð­veldar aðgang að þeim.

Ein týpa slíkra merk­inga er metýler­ing á DNA-inu, sem lokar erfða­efn­inu svo tján­ingin minnkar eða stöðvast. Þegar þátt­tak­endur höfðu fengið lít­inn svefn varð mikil breyt­ing á metýler­ingu erfða­efn­is­ins í fitu­vef þeirra. Þær utan­gena­merk­ingar sem hóp­ur­inn sá í þátt­tak­endum eftir svefn­litla nótt voru svip­aðar þeim sem sjást í fólki með syk­ur­sýki, týpu tvö, eða offitu.

Sömu breyt­ingar var ekki að merkja í vöðva­sýn­unum, en þar voru þó breyt­ingar á efna­skipta­ferlum sem bentu til þess að vöðvinn væri að hefja nið­ur­brot prótína. Sem gefur til kynna upp­hafið að vöðva­rýrnun. Samhliða þessu mæld­ust smá­vægi­legar breyt­ingar í blóð­sýnum sem gefa til kynna minnkað blóð­syk­ur­s­næmi.

Þessar mæl­ingar feng­ust úr ein­stak­lingum sem höfðu upp­lifað eina svefn­lausa nótt. Þó breyt­ing­arnar hafi verið vel mæl­an­legar er lík­legt að þær geti gengið til baka þegar svefn­inn kemst í samt lag. Slíkt er þó alls ekki gefið fyrir ein­stak­linga sem vinna á næt­urnar. Mögulega getur svefn­leysi til lengri tíma leitt til langvar­andi breyt­inga á gena­tján­ingu í þessum tveimur mik­il­vægu vefjatýpum, fitu og vöðvum.

Þessar rann­sóknir ríma vel við þá upp­lifun sem margir hafa af svefn­leysi, þ.e. erf­ið­leikar við að hreyfa sig og almennt orku­leysi sem oft er erfitt að svala nema með orku­miklum mat eins og sæl­gæti.

Skilaboð dags­ins eru þess vegna að passa uppá svefn­inn sinn, hann gerir meira fyrir okkur en okkur grunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár