Icelandair hrynur í verði

Hluta­bréf í Icelandair hafa lækkað um rúm 10 pró­sent í Kaup­hölll­inni það sem af er degi, eftir upp­lýs­ingar um 2,7 millj­arða króna tap félags­ins á þessum árs­fjórð­ungi.

Hluta­bréfa­verð Icelandair hefur lækkað um rúm 10 pró­sent frá opnun mark­aða í dag í kjöl­far birt­ingar árs­fjórð­ungs­upp­gjörs félags­ins í gær­kvöldi.

Kjarninn fjall­aði um nið­ur­stöður upp­gjörs­ins í gær, en flug­fé­lagið tap­aði 2,7 millj­örðum íslenskra króna á fjórð­ungnum og hefur því tapað alls 6,4 millj­örðum króna það sem af er ári. Heild­ar­tekjur félags­ins juk­ust um 9% milli ára. Á sama tíma jókst kostn­að­ur­inn þó um 18%, en þar vó hæst almennur flug­kostn­aður.

Mark­aðsvirði félags­ins hefur lækkað ört á þessu ári, en lækk­unin var skörpust eftir birt­ingu afkomu­vör­unar í fyrir annan árs­fjórð­ung 9. júlí síð­ast­lið­inn. Í við­vör­un­inni var afkomu­spá þeirra lækkuð um 30%, en í kjöl­farið lækk­aði hluta­bréfa­verð flug­fé­lags­ins um 24%.

Í dag hefur Icelandair svo orðið fyrir annarri snar­pri lækkun, en það sem af er degi hefur mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins lækkað um 10,44 pró­sent í 77 millj­óna króna við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár