BA veitir WOW samkeppni um Pittsburgh

Flug­fé­lagið British Airways hefur hafið reglu­legt Evr­ópuflug til og frá Pitts­burgh í Banda­ríkj­unum. Með því missir WOW air stöðu sína sem eina reglu­lega Evr­ópuflug til og frá borg­inni.

Pittsburgh í Pennsylvaníu
Pitts­burgh í Penn­syl­vaníu

WOW air er ekki lengur eina flug­fé­lagið sem flýgur milli Pitts­burgh í Banda­ríkj­unum og Evrópu allan árs­ins hring, en British Airways hefur byrjað að fljúga til borg­ar­innar frá London fjórum sinnum í viku. Þetta kemur fram í frétt á vef Túrista.

Samkvæmt frétt­inni hefur WOW air verið eina flug­fé­lagið sem boðið hefur upp á heils­árs­flug milli Pitts­burgh og Evrópu frá jóm­frú­ar­ferð félags­ins í júní í fyrra. Fyrir það hafi Evr­ópuflug borg­ar­innar aðeins tak­markast við sum­ar­ferðir til Parísar og Frank­furt. WOW flaug fjórum sinnum í viku til borg­ar­innar, en sæta­nýt­ing í þeim flugum var 75,5 pró­sent. [adspot]

[links]Í gær boð­aði svo British Airways komu sína til borg­ar­innar. Líkt og WOW ætlar breska félagið að fljúga þangað fjórum sinnum í viku frá Heathrow flug­velli við London.

Pitts­burgh er önnur stærsta borg Penn­syl­vaníu í Banda­ríkj­unum, en íbúar hennar eru rúm­lega 300 þús­und.Frá jóm­frú­ar­ferð sinni og allt til árs­loka 2017 flutti WOW air sam­tals 41.095 far­þega til og frá borg­inni.

Kjarninn hefur áður fjallað um rekstur WOW air, en flug­fé­lagið tap­aði um 2,37 millj­örðum íslenskra króna í fyrra. Að sögn Skúla Mogensen, for­stjóra og stofn­anda flug­fé­lags­ins, var meg­in­á­stæða verri rekstrar ytri mark­aðs­að­stæður, svo sem aukin sam­keppni á lyk­il­mörk­uðum félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár