Yfirvinnubann ljósmæðra hafið

Yf­ir­vinnu­bann ljós­mæðra hófst á mið­nætti. For­stjóri Land­spít­al­ans segir hættu­á­stand á spít­al­anum. Fundur ekki boð­aður fyrr en eftir helgi.

Yf­ir­vinnu­bann ljós­mæðra hófst á mið­nætti. Samn­inga­nefndir ljós­mæðra og rík­is­ins eru stál í stál og hafa erf­iðar við­ræður staðið yfir í marga mán­uði.

[links]Félagar í Ljós­mæðra­fé­lagi Íslands sam­þykktu yfir­vinnu­bannið með 90 pró­sent greiddra atkvæða í byrjun júlí en 80 pró­sent tóku þátt.

Talsmenn rík­is­stjórn­ar­innar, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir, sögðu í gær að ekki hefði komið til tals að setja lög á verk­fallið. Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­al­ans segir að með yfir­vinnu­bann­inu fær­ist vand­inn víðar. Það gildi ekki aðeins um ljós­mæður á með­göngu- og sæng­ur­kvenna­gangi, heldur einnig á fæð­ing­ar­gangi, sem og hjá öðrum stofn­unum sem hafa létt undir með Land­spít­al­anum eftir að upp­sagnir margra ljós­mæðra hafa tekið gildi á und­an­förnum vikum.

„Það er hættu­á­stand og deilu­að­ilar verða gjöra svo vel að setj­ast niður og eiga ekki að standa upp fyrr en þeir eru búnir að leysa þessa deilu,“ sagði Páll í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi.

Boðað hef­ur verið til fund­ar í kjara­deil­unni eftir rúma fimm daga, á mánu­dag­.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsbarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár