Yfirvinnuverkfall ljósmæðra hefst í næstu viku

Yfir­vinnu­verk­fall ljós­mæðra hefst á mið­nætti 18. júlí að öllu óbreyttu eftir að ekki náð­ist saman á fundi samn­inga­nefndar rík­is­ins og ljós­mæðra í gær. Formaður samn­inga­nefndar ljós­mæðra gefur lítið fyrir áhrif samn­inga við ljós­mæður á stöð­ug­leika.

Yfir­vinnu­verk­fall ljós­mæðra hefst á mið­nætti 18. júlí að öllu óbreyttu eftir að ekki náð­ist saman á fundi samn­inga­nefndar rík­is­ins og ljós­mæðra í gær.

Greint er frá því á mbl.is að ljós­mæður geri kröfu um 17-18 pró­senta launa­hækkun, en Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir for­maður samn­inga­nefndar ljós­mæðra segir ríkið ekki ná 12 pró­sentum í til­boðum sínum til stétt­ar­innar.

Samn­ing­ar við ljós­mæður hafa verið laus­ir frá því að gerð­ar­dóm­ur á kjör þeirra rann út 1. sept­em­ber síð­asta haust og seg­ir Katrín Sif að yf­ir­vinnu­verk­fall­inu verði ekki af­stýrt öðru vísi en með samn­ing­um.

Katrín Sif gefur lítið fyrir áhyggjur af stöð­ug­leika vegna samn­inga við ljós­mæður. „Sá stöðug­leiki er löngu far­inn með hækk­un­un­um hjá kjara­ráði, og ég hef enga trú á því að stöðug­leik­inn standi og falli með því hvernig komið er fram við okk­ur ljós­mæður,“ seg­ir Katrín.

Spurð nán­ar út í hvort það sé rétt­mætt að áætla að stétt­ir sem á eft­ir koma eigi eft­ir að fara fram á sömu hækk­an­ir og ljós­mæður koma til með að fá seg­ist Katrín ef­ast um að það verði raun­in.

„Þegar al­menn­ir samn­ing­ar losna, og hjá öðrum fé­lög­um inn­an BHM, er staðan ekki sam­bæri­leg við okk­ar. Inn­an BHM er ekk­ert fé­lag með eins mikla vakta­vinnu­byrði og aðeins eitt fé­lag er með hærri mennt­un­ar­kröfu, það eru pró­fess­or­ar inn­an BHM, og þeir eru með mun hærri laun. Næst á eft­ir okk­ur eru dýra­lækn­ar með fimm og hálfs árs nám og aðrir styttra,“ seg­ir Katrín. „En samt erum við launa­lægri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjaraviðræður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár