„Hjá þeim gildir ekkert Salek samkomulag“

Formaður Verka­lýðs­fé­lags Akraness gagrýnir ákvörðun kjara­ráðs um að hækka launa ráða­manna um mörg hund­ruð þús­und á mán­uði.

„Ég vil taka það skýrt fram að ég gleðst þegar launa­fólk hækkar í launum en það skal þá líka gilda fyrir alla ekki bara suma. Vil minna á að verka­fólk hækk­aði um heilar 25 þús­und krónur á mán­uði í síð­ustu kjara­samn­ingum og margir ráða­menn töldu það myndi leiða til óða­verð­bólgu en nú fá sumir ráða­menn launa­hækkun sem nemur 500 þús­und á mán­uði og að sjálf­sögðu á það ekki að hafa nein áhrif á verð­bólgu, stöðu­leika né höfr­unga­hlaup. Djöfull sem manni finnst hræsnin vera alls­ráð­andi í okkar ágæta landi,“ segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, á Facebook síðu sinni um þá ákvörðun kjara­ráðs að hækka launa ráða­manna, for­seta Íslands, alþing­is­manna og ráð­herra, um mörg hund­ruð þús­und krónur á mán­uði.

Þá segir Vil­hjálmur enn fremur að greini­legt sé að hjá ráða­mönnum sé ekk­ert Salek-sam­komu­lag í gildi, þar sem hóf­legar launa­hækk­anir eru for­senda aðferða­fræð­innar.

Kjararáð hitt­ist á fundi á kjör­dag, 29. októ­ber, og tók þá ákvörðun um að hækka laun for­seta Íslands, alþings­manna og ráð­herra.

Sam­kvæmt úrskurði kjara­ráðs verða laun for­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­ar­kaup alþing­is­manna verður 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­sæt­is­ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi verða 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi verða 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­lega 1,5 millj­ónir en laun for­seta voru áður tæpar 2,5 millj­ón­ir.

Í kjara­ráði sitja Jónas Þór Guð­munds­son, sem jafn­framt er for­mað­ur, Óskar Bergs­son, Hulda Árna­dótt­ir, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Svan­hildur Kaaber.

Í úrskurð­ar­orðum segir meðal ann­ars að mik­il­vægt sé að æðstu emb­ætt­is­menn séu fjár­hags­lega sjálf­stæð­ir. „Afar mik­il­vægt er að þjóð­kjörnir full­trúar séu fjár­hags­lega sjálf­stæðir og eng­um háð­ir. Störf þeirra eiga sér ekki skýra hlið­stæðu á vinnu­mark­aði enda eru þeir kjörnir til­ ­starfa í almennum kosn­ingum og þurfa að end­ur­nýja umboð sitt að minnsta kosti á fjög­urra ára fresti. For­seta Íslands, ráð­herrum og þing­mönnum hafa ekki verið ákvarð­að­ar­ ­sér­stakar greiðslur fyrir vinnu utan hefð­bund­ins dag­vinnu­tíma, þrátt fyrir að störf þeirra fari að hluta til fram utan hans,“ segir í úrskurð­in­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár