Laun æðstu embættismanna hækkuð um hálfa milljón á mánuði

Kjararáð hefur ákveðið að hækka laun for­seta Íslands, þing­far­ar­kaup alþing­is­manna og laun ráð­herra. Hækkunin tekur gildi strax um mán­aða­mótin.

Samkvæmt úrskurði kjara­ráðs verða laun for­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­ar­kaup alþing­is­manna verður 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­sæt­is­ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi verða 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi verða 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­lega 1,5 millj­ónir en laun for­seta voru tæpar 2,5 millj­ónir.

Í kjara­ráði sitja Jónas Þór Guð­munds­son, sem jafn­framt er for­maður, Óskar Bergsson, Hulda Árna­dóttir, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Svan­hildur Kaaber.


Frá þessu er greint á vef RÚV en úrskurð­ur­inn hefur verið birtur á vef kjara­ráðs.

Í úrskurð­ar­orðum segir meðal ann­ars að mik­il­vægt sé að æðstu emb­ætt­is­menn séu fjár­hags­lega sjálf­stæðir. „Afar mik­il­vægt er að þjóð­kjörnir full­trúar séu fjár­hags­lega sjálf­stæðir og engum háðir. Störf þeirra eiga sér ekki skýra hlið­stæðu á vinnu­mark­aði enda eru þeir kjörnir til starfa í almennum kosn­ingum og þurfa að end­ur­nýja umboð sitt að minnsta kosti á fjög­urra ára fresti. Forseta Íslands, ráð­herrum og þing­mönnum hafa ekki verið ákvarð­aðar sér­stakar greiðslur fyrir vinnu utan hefð­bund­ins dag­vinnu­tíma, þrátt fyrir að störf þeirra fari að hluta til fram utan hans,“ segir í úrskurð­inum.

Samkvæmt þessu hækka laun for­sæt­is­ráð­herra og laun for­seta því um meira en hálfa milljón á mann á mán­uði, að því er segir í frétt RÚV. Laun for­set­ans hækka frá og með 1. nóv­em­ber en laun alþing­is­manna og ráð­herra frá og með 30. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár