Félagsdómur úrskurðar örverkföll Eflingar ólögleg

Nið­ur­staðan er von­brigði, segja for­svars­menn Eflingar.

Félags­dómur hefur úrskurðað örverk­föll Eflingar ólög­leg. Efling stétt­ar­fé­lag segir í yfir­lýs­ingu að nið­ur­staðan sé von­brigði, en verk­föllin áttu að hefj­ast 18. mars.

„Það er miður að félags­menn okkar fái ekki að nýta verk­falls­rétt­inn til fulls. Þessar aðgerðir eru hóf­samar og byggja á stig­mögnun frekar en að til fullra áhrifa komi strax,“ segir Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, í til­kynn­ingu. „En við hlítum að sjálf­sögðu þessum dómi og lærum af honum.“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að Efling sé ekki að boki dottin þrátt fyrir nið­ur­stöð­una, en félags­menn Eflingar eru um 27 þús­und tals­ins, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef félags­ins. „Við erum hvergi af baki dottin og höldum ótrauð áfram með hefð­bundin verk­föll sem boðuð hafa verið og hefj­ast næst­kom­andi föstu­dag,“ segir Sólveig Anna.

Í boð­uðum aðgerðum stóð til að starfs­menn myndu leggja niður venju­bundna vinnu sína að ein­hverju leyti eins og ítar­lega var útfært í verk­fallas­boð­unum og til­kynnt um. „Sam­eig­in­legt mark­mið aðgerð­anna er að knýja á um gerð nýrra kjara­samn­inga við stefn­anda,“ segir í til­kynn­ingu frá Eflingu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjaraviðræður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár