Laun gætu hækkað um allt að 150 prósent

Launa­kostn­aður fyr­ir­tækja gæti meira en tvö­fald­ast verði fall­ist á kröfur SGS í kom­andi kjara­við­ræðum. Fram­kvæmda­stjóri SA segir alla tapa ef verka­lýðs­fé­lögin ganga of langt í kröfum sínum.

Launa­kostn­aður fyr­ir­tækja gæti meira en tvö­fald­ast og í ein­hverjum til­fellum auk­ist um allt að 150 pró­sent nái Starfs­greina­sam­bands Íslands sínum kröfum í gegn í kom­andi kjara­við­ræðum. Ef reiknað er sam­kvæmt útreikn­ingum sem byggðr eru á kröfu­gerð samn­ings­nefndar sam­bandis sem kynnt var síð­asta mið­viku­dag. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylg­i­­riti Frétta­­blaðs­ins um við­­skipti og efna­hags­­mál, í dag.

Ef reiknð er með kröfum SGS um krónu­tölu­hækk­anir og styttri vinnu viku án launa­skerð­ingar þá myndu m.a. heilar mán­að­ar­laun hóp­ferða­bíl­stjóra innan Eflingar fara úr að með­al­tali 545 þús­und krónum í rúma milljón á þremur árum og hækka því um 98 pró­sent. Launa­hækkun ófag­lærðra starfs­manna á veit­inga­húsum gæti jafn­framt numið allt að 150 pró­sentum ef fall­ist verður á kröf­urnar.

[links] „Boðaðar hækk­anir leggj­ast ekki vel í okkur. Það verður að segj­ast. Ef launa­hækk­anir verða óeðli­lega miklar munum við áfram þurfa að halda að okkur höndum, skera niður fram­boð enn meira og fækka fólki,“ segir Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða, og bendir á að verði vet­ur­inn átaka­mik­ill á vinnu­mark­aði geti það haft alvar­leg áhrif á ferða­þjón­ust­una. „Ef það verða skærur á vinnu­mark­aði í byrjun næsta árs, til dæmis í febr­úar, mars og apríl þegar bók­un­ar­tíma­bil ferða­manna stendur sem hæst, gæti það haft þau áhrif að það yrði algjört hrun í ferða­þjón­ust­unni næsta sumar,“ segir Björn í sam­tali við Mark­að­inn.

Halldór Benjamín, fram­kvæmda­stjóri SA, segir alla tapa ef verka­lýðs­fé­lög ganga of langt í kröfum sínum. Hann nefnir að krónan hafi veikst und­an­farið og muni ekki styrkj­ast í bráð. Verð­bólga fari vax­andi vegna hærra inn­flutn­ings­verðs og þá standi fyr­ir­tæki í miklum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum í glímunni við háan launa­kostnað. „Efna­hags­lífið kólnar hratt um þessar mundir. Laun og kaup­geta almenn­ings hefur hækkað mjög mikið síð­ustu þrjú ár. Það er krafta­verk ef það tekst að við­halda núver­andi lífs­kjörum.“ segir Halldór.

Útlit er fyrir erf­iðar kjara­við­ræður á almennum vinnu­mark­aði í vetur en fjöldi kjara­samn­inga losnar um ára­mótin. For­ystu­menn laun­þega­hreyf­ing­ar­innar hafa staðið saman og kraf­ist þess að gripið sé til rót­tækra aðgerða. Það er ekki aðeins kraf­ist krónu­tölu­hækk­ana launa heldur er jafn­framt kallað eftir því, til dæmis af hálfu VR, að verð­trygg­ingin verði afnumin, vextir lækk­aðir og hús­næð­islið­ur­inn tek­inn út úr vísi­tölu neyslu­verðs. Fram­kvæmda­stjóri SA hefur á hinn bóg­inn haldið því fram að lítið svig­rúm sé til launa­hækk­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjaraviðræður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár