SA leggur spilin á borðið fyrir komandi kjarasamningsviðræður

Samtök atvinnu­lífs­ins vilja leggja áherslu á aukið fram­boð hús­næðis, aukið hlut­fall dag­vinnu­launa í heild­ar­launum og upp­töku „virks vinnu­tíma“.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA. Mynd: Aðsend mynd

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) sendu við­semj­endum sínum í gær bréf þar sem útli­stuð eru atriði sem þau telja mik­il­vægt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins hugi að í kom­andi kjara­samn­ings­við­ræðum. Núgild­andi kjara­samn­ingar SA og aðild­ar­fé­laga Alþýðu­sam­bands Íslands renna út um ára­mótin. Þessir kjara­samn­ingar ná til ríf­lega 100 þús­und starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri SA segir í sam­tali við Frétta­blaðið að þetta sé leið SA til leggja sín spil á borðið með von um, í sam­vinnu við stétt­ar­fé­lögin, að hægt sé að láta kap­al­inn um að bætt lífs­kjör almenn­ings ganga upp. SA vill benda á að lífs­kjara­bar­átta snú­ist ekki ein­ungis um launa­hækk­anir.

Í bréf­inu er fjallað um nei­kvæð áhrif launa­hækk­ana á sam­keppn­is­stöðu íslensk atvinnu­lífs und­an­farin ár. SA vil bregð­ast við því með því leggja áherslu á að kom­andi breyt­ingar á launum verði að vera í sam­ræmi við mark­mið um stöðugt verð­lag og lækkun vaxta.

Lítið svigrúm til launahækkana

Málin sem SA leggur á borðið eru meðal ann­ars aukið fram­boð á hús­næði til leigu og eignar. SA vill einnig skoða þann mögu­leika að breyta skil­greindu dag­vinnu­tíma­bili, upp­gjörs­tíma­bili yfir­vinnu og álags­greiðslum en hlut­fall síð­ast­nefndu þátt­anna í heild­ar­launum er með það hæsta móti hér á landi, sam­kvæmt sam­tök­unum.

SA vill einnig ræða breytt skipu­lag og sveigj­an­leika. Halldór segir að þegar þessi mál hafi verið leyst, sem og málin sem við­mæl­endur þeirra vilja semja um, að aðeins þá sé hægt að meta rýmið til breyt­inga á launum en hann lætur það fylgja með að umrætt svig­rúm sé afar tak­markað.

Hann segir inni­hald bréfs­ins ekki beint að ríki eða sveit­ar­fé­lögum, heldur snú­ist þessar samn­ings­við­ræður um að ná sátt við verka­lýðs­hreyf­ing­una. Hann nefnir að það séu fleiri mál sem sam­eini atvinnu­rek­endur og laun­þega­hreyf­ingum heldur en sundri. Halldór von­ast eftir góðri sam­vinnu svo að nýju samn­ing­arnir afgreið­ist áður en núver­andi samn­ingar renni út.

„Ekki orð um ofurlaun“

Drífa Snædal, önnur þeirra sem er í fram­boði til for­seta ASÍ og fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands­ins, hefur nú þegar tjáð sig um bréf SA á Facebook-síðu sinni. Hún gagn­rýnir að SA sendir bréf þar sem þau til­kynna að þau séu til­búin í samn­ings­við­ræður þar sem launa­hækk­anir standi ekki til boða og leggi fram fleiri leiðir til að skerða rétt­indi launa­fólks.

„Ekki orð um ofur­laun eða hvernig skal stemma stigu við sjálftöku eig­enda og stjórn­enda fyr­ir­tækja. Ekki orð um að beita skatt­kerf­inu til jöfn­unar. Ekki orð um hvernig atvinnu­rek­endur ætla að tryggja fólki laun til fram­færslu. Takk fyrir það!“ segir Drífa í stöðu­upp­færslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár