Kanna grundvöll fyrir samstarfi Eflingar, VR og Starfsgreinasambandsins

Stjórn Eflingar felur for­manni og for­ystu félags­ins að kanna grund­völl þess að efna til sam­flots í kjara­við­ræðum milli tveggja stærstu hópa launa­fólks á Íslandi.

Kröfuganga 1. maí 2018.
Kröfu­ganga 1. maí 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Eflingar ályktar að fela for­manni og for­ystu félags­ins að kanna grund­völl þess að efna til sam­flots í kjara­við­ræðum milli tveggja stærstu hópa launa­fólks á Íslandi, almenns verka­fólks innan Starfs­greina­sam­bands­ins og versl­un­ar­fólks innan VR og Lands­sam­bands versl­un­ar­manna.

Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu Eflingar í dag.

Það er mat stjórnar Eflingar að slíkt sam­flot, á grunni mál­efna­legs sam­hljóms, myndi færa verka­lýðs­hreyf­ing­unni mik­inn styrk og slag­kraft í við­ræðum við bæði atvinnu­rek­endur og stjórn­völd.

Mögu­lega öfl­ug­asta banda­lag sem sést hefur í kjara­samn­ingum á Íslandi

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar seg­ist fagna þess­ari ályktun stjórn­ar­innar gríð­ar­lega. „Það hefur mynd­ast mjög gott sam­band milli nýrrar for­ystu VR og Eflingar, tveggja stærstu félaga launa­fólks á Íslandi, og í því fel­ast miklir mögu­leikar sem lands­sam­tökin hljóta að geta nýtt sér líka,“ segir hún.

Hún telur að með sam­floti SGS og VR eða Lands­sam­bands versl­un­ar­manna yrði til mögu­lega öfl­ug­asta banda­lag sem sést hefur í kjara­samn­ingum á Íslandi. „Ég trúi því heitt og inni­lega að sam­hljóm­ur­inn milli Eflingar og VR sé eitt­hvað sem eigi einnig að nást innan lands­sam­band­anna enda stöndum við alltaf sterk­ari sam­einuð. Hækkun lægstu launa, breyt­ingar á bóta- og skatt­kerf­inu fyrir hina tekju­lægstu, umbætur á fjár­mála­kerf­inu og stór­tækar aðgerðir í hús­næð­is­málum – allt eru þetta atriði sem ég trúi ekki að nokkur maður geti lagst gegn innan míns lands­sam­bands, Starfs­greina­sam­bands­ins. Ég er mjög spennt að sjá hvert þetta geti leitt okkur og mun tala fyrir þessu innan SGS.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár