Skipting auðs í heiminum að verða eins ójöfn og hún varð verst á 19. öld

ASÍ segir það eitt mik­il­væg­asta verk­efni nýkjör­ins Alþingis og rík­is­stjórnar í haust vera að draga úr ójöfn­uði. ASÍ birti í dag áherslur sínar vegna þing­kosn­inga 2021.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands hafnar svo­kall­aðri nið­ur­skurð­ar­að­ferð sem beitt var eftir hrunið, enda hafi hún hægt á efna­hags­bat­anum, ýtt undir ójöfnuð og aukið á fátækt. Þess í stað kallar ASÍ eftir skýrri sýn stjórn­mála­flokka á afkomu­trygg­ingu, afkomu­upp­bygg­ingu og aðgerðum sem gagn­ast þeim land­svæðum og hópum sem verst hafa orðið úti í COVID krepp­unni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem ASÍ sendi frá sér sam­hliða áherslum sam­bands­ins vegna kom­andi Alþing­is­kosn­inga. Í til­kynn­ing­unni segir að nýs þings bíði það verk­efni að byggja upp sam­fé­lagið eftir COVID krepp­una.

„Hvernig til tekst við þá upp­bygg­ingu skiptir launa­fólk og alla Íslend­inga miklu máli. Alþýðu­sam­band Íslands birtir í dag ákall til fram­bjóð­enda til Alþingis um að byggja sam­fé­lagið upp með sjálf­bærni, jöfnuð og jafn­rétti að leið­ar­ljósi. Því fylgir mikil ábyrgð að varða veg­inn frá far­aldri til far­sældar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Sam­bandið fer fram á að þeir stjórn­mála­flokkar sem bjóða fram til Alþingis skýri áform sín í hús­næð­is­málum. Skortur sé á heild­ar­sýn í mála­flokknum. „Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur lagt sín lóð á vog­ar­skál­arnar í hús­næð­is­málum, en á sama tíma skortir heild­ar­sýn af hálfu stjórn­valda.“

Réttlát hlutdeild í verðmætum rati til launafólks

Þá segir í til­kynn­ing­unni að ASÍ muni aldrei fall­ast á áform um að draga úr fram­lögum til heil­brigð­is­mála. Heil­brigð­is­kerfið hafi ekki náð að rétta úr kútnum eftir nið­ur­skurð eft­ir­hrunsár­anna. Sam­bandið styður þá stefnu að draga úr greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og „stýra flæð­inu úr kran­anum sem sér­fræði­læknar hafa einir aðgang að.“

Kallað er eftir því að rétt­lát hlut­deild í þeim verð­mætum sem skap­ast við breyt­ingar á vinnu­mark­aði rati til launa­fólks, um það snú­ist hug­myndin um rétt­lát umskipti. Mik­il­vægt sé að vinna gegn ójöfn­uði að mati sam­tak­anna, en ójöfn­uður er gjarnan fylgi­fiskur kreppa.

„Skipting auðs í heim­inum er að verða eins ójöfn og hún varð verst á 19. öld. Mikil mis­skipt­ing auðs kemur öllu sam­fé­lag­inu illa. Á Íslandi eiga rík­ustu 5% lands­manna um 40% af allri hreinni eign í sam­fé­lag­inu og nýr auður ratar hlut­falls­lega mest til hinna ríku. Í sögu­legu ljósi ýta kreppur undir ójöfnuð. Þess vegna verður að grípa til aðgerða til að draga úr ójöfn­uði og það verður eitt mik­il­væg­asta verk­efni nýrrar rík­is­stjórnar og nýkjör­ins Alþingis. Samfélög jöfn­uðar eru sterk­ustu sam­fé­lög í heimi. ASÍ krefst þess að stjórn­mála­flokk­arnir skýri hvernig þeir ætla að vinna að auknum jöfn­uði á Íslandi,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár