Segir Bjarna ekki geta unnið störukeppni við ljósmæður

Kári Stef­áns­son skrifar opið bréf til fjár­mála­ráð­herra sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag.

Kári Stefánsson
Kári Stef­áns­son Mynd: Skjálskot/RÚV

Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar skrifar opið bréf til Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra í Frétta­blaðið í dag þar sem hann gagn­rýnir ráð­herra fyrir hvernig hann hefur tekið á kjara­bar­áttu ljós­mæðra.

[links]Hann segir að Bjarni verði að gera sér grein fyrir því að hann vinni ekki störu­keppni við ljós­mæður. Það eina sem hafi áunn­ist með til­raun Bjarna til þess sé að hrekja stóran hóp þeirra í flug­freyju­störf og fleiri séu á leið­inni. Sú hætta sé fyrir hendi að afleið­ingin verði löskuð börn og auk­inn ung­barna­dauði.

„Ég veit fyrir víst að þú ert mér og öllum öðrum Íslend­ingum sam­mála um að slíkt sé óásætt­an­legt. Þess vegna ráð­legg ég þér að bjóða þeim betur, vegna þess að aðrar stéttir munu ekki nota þær sem for­dæmi, til þess er fram­lag þeirra til vel­ferðar í sam­fé­lagi okkar of sér­stakt,“ segir Kári. 

Hann bendir á að ung­barna­dauði á Íslandi hafi um miðja síð­ustu öld verið ein­hver sá hæsti sem skráður hefur verið í mann­kyns­sög­unni eða 238 af hverjum þús­und börnum fæddum. Í dag sé hann um það bil hund­rað sinnum minni eða 2 af hverjum þús­und og sé lægstur í heimi hér.

„Það er ólýs­an­legur harm­ur­inn for­eldra þegar börn þeirra deyja og ekki síst þegar þau deyja ung. Afleið­ingar harms­ins eru marg­vís­legar og meðal ann­ars þær að lífslíkur for­eldr­anna minnka og þá sér­stak­lega mæðra. Þær lifa nokkrum árum skemur fyrir vikið. Sagn­fræð­ingar og félags­fræð­ingar hafa sett fram þá kenn­ingu að mæður á öldum áður hafi verndað sig fyrir afleið­ingum mik­ils ung­barna­dauða með því að tengj­ast ekki nýfæddum börnum sínum sterkum böndum.

Rann­sóknir okkar og ann­arra sýna fram á að þetta er rangt vegna þess að lífslíkur mæðra á þeim tíma sem ung­barna­dauð­inn var mestur í land­inu minnk­uðu við barns­missi til jafns á við það sem ger­ist í dag. Móð­ur­ástin er ekki smíðuð í kon­una. Það verður ekki við hana ráðið. Hún er með­fædd. Síðan er móð­ur­ástin eitt af mik­il­væg­ustu hreyfiöflum sam­fé­lags manna. Hún kemur börnum á legg. Hún býr til konur og menn til þess að taka við land­inu. Prísinn sem móð­irin borgar fyrir þessa ást sem býr til sam­fé­lög er hættan á harm­inum mikla ef hún missir barn sitt. Það er því skylda okkar sem sam­fé­lags að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að það ger­ist ekki. Þannig launum við móð­ur­inni sem sam­fé­lag fyrir ást­ina sem bjó okkur til,“ segir Kári.

Enn fremur kemur fram í greinn­inni að sú stað­reynd að ung­barna­dauði sé minni á Íslandi en ann­ars staðar bendi til þess að Íslend­ingar séu að þessu leyti að standa í nokkuð góðum skilum við mæður. Þetta eigi meðal ann­ars rætur sínar í því að ljós­mæð­urnar skoða verð­andi mæður, taka á móti börnum við fæð­ingu og hafa eft­ir­lit með mæðrum og börnum að fæð­ingu lok­inni. Þær þyrftu ekki að kom­ast upp úr riðli og lifa af útslátt­ar­keppni til þess að sanna fyrir löndum sínum að þær séu heims­meist­arar.

„Í þeirra til­felli gildir gamla slag­orð Silla og Valda að af ávöxt­unum skuluð þið þekkja þær. Börnin okkar lifa frekar en börn ann­arra þessa erf­iðu ferð inn í harðan heim. Bjarni, þú hlýtur að hafa þetta allt í huga þegar þú metur fram­lag þeirra til íslensks sam­fé­lags. Stað­reyndin er svo sú að á meðan stöðu­gildum ljós­mæðra hjá rík­inu hefur fjölgað um 33% og fæð­ingum hefur fækkað um meira en 8% hafa við­fangs­efni ljós­mæðra orðið flókn­ari með ári hverju, konur eign­ast börn sín eldri, og þyngri, sem fylgir aukin tíðni með­göngu­vanda­mála, og ýmis­legt af því sem áður var á höndum lækna hefur flust yfir á þær,“ segir Kári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár