Hvers vegna hefur kjarabaráttan harðnað?

Harka er komin í kjara­bar­áttu ljós­mæðra í kjöl­far hóp­upp­sagna og birt­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á launa­þróun stétt­ar­innar. Hvers vegna munar enn svo miklu milli sjón­ar­miða rík­is­stjórn­ar­innar og ljós­mæðra?

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Aðsend

Upp er komin alvar­leg staða innan heil­brigð­is­kerf­is­ins eftir hóp­upp­sögn fjölda ljós­mæðra og yfir­vof­andi yfir­vinnu­bann þar sem engin lausn er fundin á kjara­deilu þeirra. Þrýst­ingi er beytt á rík­is­stjórn­ina til að binda enda á deil­una, en sam­kvæmt henni er staða ljós­mæðra­launa og þróun hennar síð­ustu ár nokkuð góð miðað við sam­an­burð­ar­hæfar stéttir. Hvers vegna hefur kjara­bar­átta ljós­mæðra leitt til þess­ara upp­sagna ef laun þeirra eru svona há?

Staðan alvarleg

Í gær birtu stétt­ar­fé­lögin VR og Efling yfir­lýs­ingu til stuðn­ings ljós­mæðra eftir fund með með­limum samn­inga­nefndar Ljós­mæðra­fé­lags­ins. Yfir­lýs­ingin kom út í kjöl­far upp­sagna tólf ljós­mæðra og kom­andi yfir­vinnu­bann sem tekur gildi um miðjan júlí ef ekki hefur verið samið fyrir þann tíma. Í morgun birt­ist svo til­kynn­ing frá fæð­inga-og kven­sjúk­dóma­læknum á Land­spít­al­anum, en þeir hafa miklar áhyggjur af því hvað taki við þegar veru­lega sé byrjað að kvarn­ast úr hópi þeirra helstu sam­starfs­manna.

Í ljósi upp­sagn­anna fund­aði Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis einnig í dag með Land­lækni, heil­brigð­is­ráð­herra og full­trúum Land­spít­al­ans. Í sam­tali við Björn Leví Gunn­ars­son, þing­mann Pírata og nefnd­ar­mann, segir hann stöð­una alvar­lega. Júlí sé erf­iður mán­uður þar sem margir aðrir starfs­menn eru einnig í fríi og því sé sér­stak­lega sárt að missa starfs­menn í heil­brigð­is­þjón­ust­unni núna. Sömu­leiðis lagði þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Guðjón S. Brjáns­son fram bókun á fund­inum þar sem kraf­ist var þess að rík­is­stjórnin beitti öllum til­tækum ráðum til að leiða deilu sinni við ljós­mæður til lykta.

Óljósar kröfur

Ekki hefur legið fyrir hverjar kröfur ljós­mæðra eru,en Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður samn­inga­nefndar Ljós­mæðra­fé­lags Íslands, hefur ekki gefið upp hversu mikla launa­hækkun félagið færi fram á í kjara­deil­unni. Þó hefur hún sagt að aðal­á­hersl­urnar liggi í grunn­launum ljós­mæðra og að þær lækki ekki í launum við það að fara úr starfi hjúkr­un­ar­fræð­inga í ljós­mæðra­starfið.

Í við­tali Katrínar við Vísi í apríl síð­ast­liðnum sagði hún borð­leggj­andi að ljós­mæður hafi orðið á eftir í launa­þróun. Enn fremur segir hún ljós­mæður hvergi nærri öðrum stéttum með svip­aða menntun og ábyrgð og eru á almenna mark­aðnum.

Hærri laun og meiri hækkun

Stað­hæf­ing Katrínar í apríl eru þó ólíkar nýjum upp­lýs­ingum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem birtar voru í dag vegna fjöl­miðlaum­fjöll­unar um kjara­bar­átt­una. Samkvæmt töl­unum hafa launa­hækk­anir ljós­mæðra síð­ustu tíu ára verið umfram hækk­anir heild­ar­launa sam­bæri­legra stétta.

[links]Tölurnar sýndu einnig fjölda stöðu­gilda ljós­mæðra hjá rík­inu, en þeim fjölg­aði um 33% á meðan fæð­ingum fækk­aði um rúm 8% á tíma­bil­inu 2007-2017. Á sama tíma­bili hafa ljós­mæður fengið sömu hækk­anir og önnur BHM-félög, að und­an­skil­inni leið­rétt­ingu sem þær fengu árið 2008 vegna við­ur­kenn­ingar á auk­inni menntun.

Þar að auki sýnir ráðu­neytið launa­þróun dag­vinnu-og heild­ar­launa með­lima Ljós­mæðra­fé­lags Íslands til sam­an­burðar við með­limi BHM og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga. Í þeim sam­an­burði hafa dag­vinnu­laun ljós­mæðra hækkað hlut­falls­lega mest auk þess sem krónu­tölu­hækkun heild­ar­launa ljós­mæðra hefur einnig hækkað umfram launa­breyt­inga hinna tveggja stétt­anna.

Í fyrra stóðu dag­vinnu­laun með­lima Ljós­mæðra­fé­lags Íslands í 573 þús­und krónum, en heild­ar­laun þeirra námu 848 þús­undum. Bilið milli dag­vinnu­launa og heild­ar­launa er nokkuð breitt miðað við önnur félög innan BHM, en þar stendur með­al­tal dag­vinnu­launa í 608 þús­undum og heild­ar­launa í 718 þús­undum.

Ósanngjarn samanburður

Eftir birt­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins fyrr í dag birtu ljós­mæður launa­seðla sína á facebook-hópnum „Mæður og feður standa með ljós­mæðrum,“ og gagn­rýna þar fram­setn­ingu á heild­ar­launum ljós­mæðra harð­lega. Heild­ar­launin geri ráð fyrir 100 pró­sent vinnu, sem sé sjald­gæf meðal ljós­mæðra og í raun erfitt að fram­kvæma án þess að brjóta lög um hvíld­ar­tíma. Frá þessu var greint í Frétta­blað­inu. Áslaug Vals­dóttir for­maður Ljós­mæðra­fé­lags­ins gagn­rýndi fram­setn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í sam­tali við Kjarnann fyrr í dag. Hún sagði ljós­mæður vera eina vakta­vinnu­stétt­ina innan BHM, en þær tækju á sig mikla yfir­vinnu og ynnu við mikið álag. Því væri ekki sann­gjarnt að bera saman heild­ar­laun dag­vinnu­stétta og vakta­vinnu­stétta. Ekki náð­ist í Katrínu Sif Sig­ur­geirs­dóttur, for­mann samn­inga­nefndar Ljós­mæðra­fé­lags­ins, við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár