Ljósmæður segja afar erfitt að kveðja starfið

Í gær tóku gildi upp­sagnir tólf ljós­mæðra, þriggja á fæð­ing­ar­vakt og níu á með­göngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­ala. Þetta, sem og yfir­vinnu­bann, mun hafa mikil áhrif á starf­semi við­kom­andi deilda.

Í gær tóku gildi upp­sagnir tólf ljós­mæðra, þriggja á fæð­ing­ar­vakt og níu á með­göngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­ala. Upp­sagn­irnar eru afleið­ing um tíu mán­aða kjara­deilu Ljós­mæðra­fé­lags Íslands og rík­is­ins. Þetta kemur fram í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag en þar er rætt við sex þess­ara tólf ljós­mæðra. Allar segja þær það hafa verið afar erfitt að kveðja starfið.

Þær segj­ast hafa von­ast til að sam­komu­lag myndi nást áður en upp­sagn­irnar tækju gildi en engin þeirra sér eftir því að hafa sagt upp starfi sínu. Með upp­sögn­unum von­ist þær til þess að málið kom­ist á hreyf­ingu.

„Við viljum að ráða­menn fari að beita sér í mál­inu. Bjarni Bene­dikts­son heldur um veskið en ég skelli samt mestri skuld á for­sæt­is­ráð­herr­ann, Katrínu Jak­obs­dóttur, sem hefur valdið. Hún hefur ekki staðið sig,“ segir María Rebekka Þór­is­dóttir, ein ljós­mæðr­anna sem létu af störfum í gær, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Auk upp­sagn­anna var yfir­vinnu­bann ljós­mæðra sam­þykkt í gær, með um 90 pró­sent atkvæða, en það mun taka gildi um miðjan mán­uð­inn og er ætlað til að knýja á um bætur í kjara­bar­átt­unni. Bannið mun gilda á öllum heil­brigð­is­stofn­unum hér á landi, að und­an­skildum heilsu­gæslum, segir í frétt­inni.

Ljóst er að upp­sagn­irnar og yfir­vinnu­bannið munu hafa mikil áhrif á starf­semi við­kom­andi deilda. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Hilda Frið­finns­dóttir, yfir­ljós­móðir með­göngu- og sæng­ur­legu­deildar Land­spít­ala, að þær hafi und­ir­búið sig fyrir þetta síð­ustu tíu daga en þrátt fyrir það hafi hún von­ast til, alveg fram á síð­ustu stundu, að þetta myndi leys­ast.

Í kjöl­far upp­sagn­anna er ráð­gert að boðað verði til fundar í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis á þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár