Bjarni: Algjörlega „óaðgengilegar kröfur“ ljósmæðra

FJár­mála­ráð­herra segir að ekki fari vel á því að met­ast um hverjir beri bestan hug til ljós­mæðra. Sjálfur hefur hann farið fjórum sinnum á fæð­ing­ar­deild­ina.

„Ég get bara sagt það alveg eins og er þannig að það dylj­ist engum að þær kröfur sem settar hafa verið fram núna eru fyrir samn­inga­nefnd rík­is­ins alger­lega óað­gengi­legar.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þegar rætt um þá stöðu sem upp er í komin í kjara­deilu ljós­mæðra og rík­is­ins.

Hann árétt­aði að ekki færi vel á því, að reyna að setja málin í þann far­veg, að ekki væri borin virð­ing fyrir störfum ljós­mæðra. Hann hefði sjálfur farið fjórum sinnum á fæð­ing­ar­deild­ina og vissi vel hversu mik­il­væg störfin væru.

Formaður samn­inga­nefndar rík­is­ins er Gunnar Björns­son, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Bjarni sagði að góður gangur hefði verið í við­ræð­unum, en síðan hefðu kröfur ljós­mæðra breyst og það hefði leitt til þeirrar stöðu sem nú væri komin upp.

Ekki hefur verið greint frá því, nákvæm­lega, hverjar séu kröfur ljós­mæðra að öðru leyti en því, að þær krefj­ast þess að menntun þeirra verði metin til launa. Það er sex til sjö ára nám að baki ljós­mæðra­starf­inu, þegar starfs­nám er tekið með í reikn­ing­inn, en í mörgum til­vikum þá lækka ljós­mæður í launum við það, að bæta við sig nám­inu ofan á hjúkr­un­ar­fræði­námið.

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata og for­maður vel­ferð­ar­nefndar, sagði að harð­línu­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í kjara­málum eiga eftir að bitna all­veru­lega á ljós­mæðrum. „Það gengur ekki að segja að ábyrgðin sé hjá stétt­ar­fé­lög­unum vegna þess að síð­ast þegar ljós­mæður fóru í verk­fall sam­þykkti fjár­mála­ráð­herra lög á verk­fallið. Þær fengu ekki að semja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár