Telur ekki ráðlagt að ASÍ lýsi því yfir að lífskjarasamningnum verði sagt upp

Í ávarpi sínu á for­manna­fundi ASÍ sagði Drífa Snædal, for­seti ASÍ, eitt helsta verk­efni sam­tak­anna vera það að verja það sem hefur áunn­ist með lífs­kjara­samn­ingnum og knýja fram það sem út af stendur.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, telur það ekki ráð­lagt að sam­bandið lýsi því yfir að það ætli að segja upp lífs­kjara­samn­ingnum í haust. Þetta kom fram í ávarpi Drífu á for­manna­fundi ASÍ í dag. For­sendu­á­kvæði kjara­samn­inga koma til end­ur­skoð­unar í sept­em­ber og í ávarp­inu sagði hún verk­efni ASÍ vera að verja það sem hefur áunn­ist og knýja fram það sem út af stendur í lof­orðum stjórn­valda.

Í ávarpi sínu sagði Drífa það ljóst að staðan í dag væri mjög frá­brugðin því sem hún var þegar samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður. Auk þess sagði hún að mörg stór­mál sem tengd væru samn­ingnum hefðu ekki náð fram að ganga. Að hennar mati er fleiru um að kenna en veirunni.

„Mál hafa strandað í sam­tölum okkar við Samtök atvinnu­rek­enda, mál hafa strandað í ein­hverjum stjórn­ar­flokknum eða jafn­vel dagað uppi í ráðu­neytum. Önnur stór­mál hafa ýtt þessum til hliðar en COVID ber ekki ábyrgð á öllu því sem aflaga hefur farið. Það er mjög mis­jafn áhugi hjá stjórn­völdum og atvinnu­rek­endum að klára það sem lagt var upp með síð­asta vor,“ sagði Drífa í ávarp­inu.

Hún sagði að brýnt væri að hækka atvinnu­leys­is­bætur, lengja tíma­bil tekju­teng­ingar atvinnu­leys­is­bóta og draga úr skerð­ingum í almanna­trygg­inga­kerf­inu. Þá sagði hún það vera risa­vaxið verk­efni að tryggja að reikn­ing­ur­inn vegna björg­un­ar­að­gerða rík­is­stjórn­ar­innar verði ekki sendur almenn­ingi í formi nið­ur­skurðar, gjald­töku, kaup­mátt­arrýrnun eða sölu á opin­berum eignum.

Drífa sagði að styrkur sam­tak­anna lægi helst í sam­stöðu og að hún skipti sköpum í kom­andi end­ur­skoðun: „Árangur okkar í haust ræðst af því hvort við mætum sam­stillt eða sundruð til við­ræðna, og þar með staða okkar félags­manna. Það er til mik­ils að vinna og ég bið ykkur lengstra orða að takast á um leiðir og hug­myndir á okkar vett­vangi en mæta svo sem ein rödd í við­ræður hvort sem er gagn­vart atvinnu­rek­endum eða stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár