Ólöf Helga formannsefni A-lista uppstillingarnefndar Eflingar – Guðmundur leggur fram eigin lista

„Það er ekki þú? Við erum bara þrjú hérna og ég get sagt að það er ekki ég. Þannig að það ert bara þú, Ólöf Helga.“ Upp­ljóstrað var í Rauða borð­inu, þætti Gunnars Smára Egils­sonar, hvert for­manns­efni upp­still­ing­ar­nefndar Eflingar er.

Upp­still­ing­ar­nefnd Eflingar hefur gert til­lögu að A-lista stjórnar félags­ins og er Ólöf Helga Adolfs­dóttir for­manns­efni þess lista. Tillagan á eftir að fara fyrir stjórn­ar­fund á fimmtu­dag og trún­að­ar­ráð í kjöl­farið og á fundi ráðs­ins ætlar Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, að leggja fram eigin lista, þ.e. annan val­kost við A-lista upp­still­ing­ar­nefndar.

Enn gætu svo fleiri listar átt eftir að koma fram en árið 2018 lagði hópur félags­manna fram B-lista með Sólveigu Önnu Jóns­dóttur sem for­manns­efni. Guð­mundur var einnig á þeim lista sem var svo kjör­inn.

Þetta var meðal þess sem kom fram í Rauða borð­inu, þætti Gunnars Smára Egils­sonar for­manns Sós­í­alista­flokks­ins, í gær en gestir hans voru þau Ólöf og Guð­mundur.

[adspot]

Ólöf Helga var trún­að­ar­maður í hlað­deild Icelandair er henni var sagt upp störfum í ágúst. Hún var valin vara­for­maður Eflingar af stjórn félags­ins eftir að Sólveig Anna sagði af sér sem for­maður í byrjun vetrar og þáver­andi vara­for­maður, Agnieszka Ewa Ziólkowska, varð for­maður.

Umræðu­efni Rauða borðs­ins voru áherslur þeirra tveggja enda höfðu þau bæði lýst yfir áhuga á að verða for­menn Eflingar. „Upp­still­ing­ar­nefnd er búin að setja upp lista sem hún ætlar að leggja til,“ sagði Ólöf Helga á einum tíma­punkti í þætt­inum. „Svo mun stjórnin fara yfir þennan lista á fundi á fimmtu­dag og svo trún­að­ar­ráð í kjöl­farið“

Gunnar Smári, sem er vanur fjöl­miðla­maður greip þetta á lofti og spurði: „Veistu hver list­inn er?“

Ólöf: „Já, ég er búin að sjá hann.“

Gunnar: „Og hver er í efsta sæti á þessum lista?“

Ólöf sagð­ist þá ekki til­búin að greina frá því að svo stöddu.

Gunnar: „Guð­mundur, ert þú búinn að sjá list­ann?“

Guð­mundur: „Já, ég veit hvernig hann er. Ég veit hver er val­inn for­maður fyrir A-list­ann. Ég get bara sagt það að það er ekki ég.“

Gunnar: „Það er ekki þú? Þannig að við erum bara þrjú hérna og ég get sagt að það er ekki ég. Þannig að það ert bara þú, Ólöf Helga.“

Ólöf: „Eins og ég kom inn á þá mun list­inn fara fyrir stjórn og svo trún­að­ar­ráð þar sem allt getur gerst. Það getur hvaða félags­maður sem er staðið upp og boðið sig fram til for­manns. Þannig að þó að ég sé á list­anum núna þá er það ekki [öruggt].“

Gunnar Smári spurði þá Guðmund hvernig hann ætl­aði að bregð­ast við þessu. „Ég get upp­lýst þig um það Gunnar að við ætlum að setja fram sér lista. Já, við ætlum að gera það.“

Sá listi verði val­mögu­leiki við A-lista upp­still­ing­ar­nefnd­ar­innar og trún­að­ar­ráðs að velja á milli þeirra á fundi sínum. Gunnar Smári nefndi þá þann mögu­lega að ein­hver annar hópur gæti komið fram með B-lista, svipað því sem gerð­ist árið 2018. „Búist þið við því? Búist þið við því að Sólveig Anna komi aftur með B-lista?“ spurði Gunnar þau bæði.

„Ég veit að ekki,“ svar­aði Ólöf Helga. „En ég fagna því að það séu fleiri val­kostir fyrir félags­menn okkar.“

„Ég svo sem geri mér enga grein fyrir því hvað Sólveig Anna er að hugsa,“ svar­aði Guð­mundur. „Hún hefur lítið tjáð sig opin­ber­lega þannig að satt að segja hef ég ekki hug­mynd um það.“

Áherslumálin rædd

Í þætt­inum spurði Gunnar þau bæði út í þeirra áherslu­mál.

„Við eigum enn langt í að koma til móts við erlenda félags­menn okkar,“ sagði Ólöf Helga, er Gunnar Smári spurði hana hvað þyrfti að laga innan Eflingar að hennar mati. Meira en helm­ingur félags­manna eru af erlendu bergi brotnu. Nefndi hún m.a. túlka­þjón­ust­una sem þyrfti að bæta enda óásætt­an­legt að ætl­ast til þess að aðstand­endur félags­manna væru að túlka fyrir þá. Fræðslu­málin voru henni einnig ofar­lega í huga. Þá sagði hún eflaust tíma­bært að end­ur­skoða lög Eflingar.

„Við vorum á ljóm­andi góðri leið með Eflingu, að breyta ýmsu,“ sagði Guð­mundur og vís­aði þar m.a. til fræðslu og aðgengis fyrir félags­menn af erlendum upp­runa. Hann seg­ist hafa sagt í kosn­inga­bar­átt­unni 2018 að Efling væri sof­andi risi og að það væri tími til kom­inn að hann vakn­aði. „Og hann hefur sann­ar­lega gert það á ýmsum sviðum.“

Gunnar: „Þannig að þú ert að tala um að halda áfram því starfi sem Sólveig Anna leiddi?“

„Að sjálf­sögðu,“ svar­aði Guð­mundur. „Því hún var á ljóm­andi góðri leið með félagið. Það er engin ástæða til að víkja af þeirri leið.“

Efling sé róttækt verkalýðsfélag

Gunnar spurði svo Ólöfu hvernig hún sjái fyrir sér að Efling muni leiða áfram íslenska verka­lýðs­bar­áttu. „Mér finnst mik­il­vægt að Efling sé rót­tækt stétt­ar­fé­lag,“ svar­aði Ólöf. „Ég vil líka horfa á sam­vinnu milli verka­lýðs­fé­laga og stétt­ar­fé­laga á Íslandi. Af því að við erum nátt­úr­lega sterk­ari saman. Það er styrkur í fjöld­anum.“

Þá var hún spurð hvað fælist í þeim orðum hennar að Efling yrði að vera „rót­tækt verka­lýðs­fé­lag“ og sagði Ólöf að Efling yrði að vera „til­búin að taka slag­inn. Við þurfum að skoða hlut­ina mjög vel, koma með nýjar hug­myndir og nýjar áherslur og ekki vera feimin að beita þeim vopnum sem að við höfum.“

Vill afsláttarkjör fyrir félagsmenn

Guð­mundur sagð­ist sam­mála því að Efling ætti að vera óhrætt við að beita verk­föllum og öðrum vopnum. Hann sagð­ist einnig taka undir með Ólöfu að styrk­ur­inn fælist í sam­vinnu við önnur félög í kjara­bar­átt­unni framundan. Hann nefndi svo einnig að reyna ætti að „kría út“ eins mikið af aflsátt­ar­kjörum fyrir félags­menn Eflingar og hægt væri, t.d. hjá mat­vöru­versl­unum og olíu­fé­lögum.

Gunnar Smári greip þessa hug­mynd Guð­mundar á lofti og spurði hvort það væri ekki hættu­legt að semja t.d. við mat­vörurisa um afslátt­ar­kjör en vera á sama tíma að semja um kaup og kjör við þetta fyr­ir­tæki. Guð­mundur hafði ekki miklar áhyggjur af því og tók sem dæmi að félags­mönnum Sameykis byð­ust ýmis afslátt­ar­kjör, t.d. í Bláa lón­inu.

„En Sameyki er félag hjá starfs­mönnum ríkis og sveit­ar­fé­laga þannig að þeir eru ekki að semja við Bláa lónið eða þá sem gefa afslátt­inn,“ sagði Gunnar þá.

„Ég veit það, svar­aði Guð­mundur. „Þó að við séum Gunnar að semja um svona afslátt­ar­kjör þá eiga þeir ekk­ert inni hjá okkur í stað­inn. Það er ekk­ert svo­leiðis.“

Hér getur þú horft á þátt­inn í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsbarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár