Segja spurningum enn ósvarað um WOW og Icelandair

Afkomutil­kynn­ingar Icelandair og WOW air vekja upp fjöl­margar spurn­ingar, sam­kvæmt nýrri frétt á vef Túrista.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air
Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air Mynd: WOW air

Vefsíða Túrista segir ýmsum spurn­ingum ósvarað um stöðu WOW og Icelandair í ljósi nei­kvæðra afkomutil­kynn­inga félag­anna beggja í síð­ustu viku. Þar á meðal er spurt hvort WOW sé enn óvarið elds­neyt­is­verð­hækk­unum og hversu háar upp­hæðir íslenskir bankar hafa lánað þeim.

Hugs­an­leg aðkoma Arion banka að rekstri flug­fé­lag­anna var til umræðu í frétt­inni, en bank­inn jók útlán sín til sam­göngu­fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ust­unni um 11 millj­arða árið 2017. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hvaða fyr­ir­tæki fengu þessi lán, en í frétt­inni er spurt hvaða augum for­svars­menn Arion líta á stöð­una ef stór hluti lána­aukn­ing­ar­innar fór til flug­fé­lag­anna tveggja.

[links]Kjarninn hefur áður greint frá stöðu flug­fé­lag­anna, en margir grein­ing­ar­að­ilar töldu rekstur þeirra mik­il­vægan fyrir íslenskt efna­hags­líf. Sam­an­lögð hlut­deild beggja félaga af far­þegum til og frá land­inu er um 80%, en sam­kvæmt Elvari Inga Möller sér­fræð­ingi í grein­ing­ar­deild Arion banka myndi sam­dráttur í fram­boði þeirra hafa kerf­is­læg áhrif.

Í frétt­inni var því líka velt upp hvort fjár­hags­staða WOW air sé enn tryggð út árið 2019, líkt og félagið til­kynnti um miðjan nóv­em­ber í fyrra, vegna sölu á tveimur Airbus þotum. Þar að auki var spurt hvort umrædd sala hafi bætt upp enn stærra tap WOW air en kemur fram í nýbirtri rekstr­ar­nið­ur­stöðu sinni fyrir árið 2017. [adspot]

Einnig var spurt um hvort staða flug­fé­lag­anna tveggja gagn­vart rekstr­ar­kostn­aði væri enn óbreytt, en Skúli Mogensen for­stjóri og eig­andi WOW air sagði félagið ekki varið verð­hækk­unum á olíu í við­tali við Túrista í febr­úar. Rúmur helm­ingur elds­neytis­kaupa Icelandair er hins vegar var­inn til tólf mán­aða og ættu þeir því að vera betur í stakk búnir til að bregð­ast við hærra olíu­verði í fram­tíð­inni, sé kostn­að­ar­upp­bygg­ing WOW óbreytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár