Áfram verslað með Icelandair þrátt fyrir tilkynningu um mögulega greiðslustöðvun

Grunur þarf að vera um ójafnan aðgang fjár­festa að inn­herj­a­upp­lýs­ingum til þess að við­skipti með bréf Icelandair verði stöðvuð tíma­bundið í Kaup­höll­inni. Aðilar á fjár­mála­mark­aði furða sig sumir á því að enn sé verslað og bréfin ekki athug­un­ar­merkt.

Aðilar sem fylgj­ast með fjár­mála­mark­aði hafa sumir hverjir furðað sig á því að áfram sé verslað með hluta­bréf í Icelandair Group, eftir að fyr­ir­tækið greindi frá því að mögu­lega þyrfti það að óska eftir greiðslu­stöðvun ef samn­inga­við­ræður við ýmsa hag­að­ila ganga ekki að óskum.

Ekki verður þó lokað tíma­bundið fyrir við­skipti með bréf félags­ins nema grunur liggi fyrir um ójafn­ræði þegar kemur að aðgangi að inn­herj­a­upp­lýs­ingum, sam­kvæmt skrif­legu svari Kaup­hallar við fyr­ir­spurn Kjarnans.[links]

Þar segir að grunn­við­mið hjá mörk­uðum Nasdaq sé að hafa alltaf opið fyrir við­skipti, enda felist í því mikil fjár­festa­vernd. „Það er mik­il­vægt að fjár­festar eigi þess kost að stýra áhættu með kaupum og sölum, þrátt fyrir svipt­ingar í verð­myndun eða óvissu­á­stand sem kann að vera uppi,“ segir í svari Kaup­hall­ar­innar.

Sama svar og í maí

Fjallað var um hið sama í Frétta­blað­inu í maí­mán­uði, þegar Icelandair hafði kynnt áform sín um að leita heim­ildar til þess að ráð­ast í hluta­bréfa­út­boð í sumar og safna þar allt að 29 millj­örðum króna.

Við­mæl­endum þess blaðs þótti þá, rétt eins og við­mæl­endum Kjarnans nú, skjóta skökku við að bréf félags­ins hefðu ekki verið athug­un­ar­merkt eða að ekki væri lokað fyrir við­skipti með þau tíma­bundið. Þá hafði Kaup­höllin nærri orð­rétt sama svar.

[adspot]

Samkvæmt við­skipta­yf­ir­liti Kaup­hall­ar­innar fyrir júní­mánuð voru flest við­skipti með bréf Icelandair af öllum fyr­ir­tækj­unum sem skráð eru á markað hér á landi, alls 641 tals­ins. Velta með bréfin hefur þó verið lítil und­an­farið.

Margt þarf að ganga upp á næstu vikum

Icelandair lýsti því yfir á mánu­dags­morgun kl. 8:45 með til­kynn­ingu til Kaup­hallar að ekki hefði enn tek­ist að ná sam­komu­lagi við leigu­sala, Boeing og færslu­hirði félags­ins eins og stefnt hafði verið að. Því var ákveðið að fresta hluta­fjár­út­boði félags­ins fram í ágúst og reyna að áfram að ná sam­komu­lagi um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins.

Í til­kynn­ing­unni sagði að félagið ynni nú með íslenskum stjórn­völd­um, Íslands­banka og Lands­bank­an­um, sem báðir eru í eigu íslenska rík­is­ins og eru stærstu inn­lendu kröfu­hafar flug­fé­lags­ins, við útfærslu rík­is­á­byrgðar á láni til félags­ins.

„Lána­fyr­ir­greiðsla íslenskra stjórn­valda verður þó meðal ann­ars háð sam­komu­lagi við kröfu­hafa og að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

Flug­fé­lagið sagði að við­ræður gætu skilað nið­ur­stöðu fljót­lega, ef þær héldu áfram á upp­byggi­legum nótum, en ef svo færi að samn­inga­við­ræður skil­uðu ekki til­ætl­uðum árangri myndi félagið þurfa að ljúka fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu án aðkomu íslenskra stjórn­valda, sem hafa veitt vil­yrði fyrir lána­línum til flug­fé­lags­ins að því gefnu að allt annað í þessu púsli gangi upp.

Í til­kynn­ing­unni sagði að slíkt end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli gæti tekið allt að tólf mán­uði og að „á meðan á því stæði þyrfti félagið að fresta öllum greiðslum til fjár­mögn­un­ar­að­ila félags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár