Vill meiri tekjur af hverjum gesti

For­stjóri Bláa lóns­ins gerir ekki ráð fyrir að gestum muni fjölga mikið en býst við að ná meiri tekjum af hverjum gesti fyr­ir­tæk­is­ins.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins
Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins

Grímur Sæmund­sen for­stjóri Bláa lóns­ins gerir ráð fyrir að ná meiri tekjum af hverjum við­skipta­vini þrátt fyrir að fjöldi gesta fyr­ir­tæk­is­ins muni að öllum lík­indum. Þetta muni fyr­ir­tækið gera með auknu vöru-og þjón­ustu­fram­boði, sam­kvæmt við­tali Gríms við vef­síð­una túristi.is.

Í við­tal­inu er greint frá vin­sældum Bláa lóns­ins meðal erlendra ferða­manna, en í fyrra tóku starfs­menn lóns­ins á móti 1,3 millj­ónum gesta, á meðan 2,2 millj­ónir erlendra far­þega flugu frá Kefla­víkuflug­velli. Aðgangs­tekjur Bláa lóns­ins hafa einnig auk­ist gíf­ur­lega með­fram fjölgun ferða­manna á und­an­förnum árum, eða úr rúmum tveimur millj­örðum króna árið 2012 upp í rúma sjö millj­arða króna í fyrra.

Samkvæmt Túrista hefur fjöldi ferða­manna hins vegar staðið í stað það sem af er þessu ári og spár geri ráð fyrir litlum vexti í ár. Samkvæmt Grími hefur hins vegar verið mark­visst unnið að því að hækka tekjur af hverjum gesti frekar en að fjölga þeim. Það verði m.a. gert með því að tvinna saman ólíka þjón­ustu­þætti, vörur og upp­lifun gesta, auk fjöl­breytt­ara fram­boðs á vörum og þjón­ustu. Þessu til stuðn­ings bendir hann á nýstofnað fyr­ir­tæki í þeirra eigu sem býður upp á áætl­un­ar­ferðir í Bláa lónið.

Kjarninn fjall­aði nýlega um síð­ustu árs­skýrslu Bláa lóns­ins, en sam­kvæmt henni jókst hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins um þriðj­ung milli ára. Hagnaður fyr­ir­tæk­is­ins eftir skatta nam 31 milljón evra árið 2017, sam­an­borið við 12,8 millj­arða af rekstr­ar­tekjum. Tæplega þriðja hver króna sem kom í hendur félags­ins árið 2017 var því hreinn hagn­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár