Hagnaður Bláa Lónsins jókst um þriðjung

Rekstur Bláa Lónsins gengur vel, en rekstr­ar­tekjur félags­ins juk­ust vel umfram gjöld á síð­asta ári.

Bláa Lónið
Bláa Lónið Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bláa Lónið birti árs­skýrslu sína í dag, en sam­kvæmt henni nam hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins eftir skatta 31 milljón evra árið 2017. Mestur var mun­ur­inn í rekstr­ar­tekjum, en þau hækk­uðu langt umfram rekstr­ar­gjöld.

Samkvæmt árs­reikn­ingi Bláa Lónsins voru eignir fyr­ir­tæk­is­ins metnar á 138,7 millj­ónir evra, eða 17, 2 millj­arða íslenskra króna sé miðað við gengi gjald­miðl­anna við síð­ustu árs­lok. Bókfært virði félags­ins stendur hins vegar í 5.259 evrum, eða tæpum 655 millj­ónum íslenskra króna.[links]

Tekjur af rekstri félags­ins árið 2017 nam 12,8 millj­örðum króna, sam­an­borið við 7,1 millj­arði á árinu áður. Þá var hreinn hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins um 3,86 millj­arður, sem nemur um þriðj­ungs­hækkun frá 2016. Tæplega þriðja hver króna sem kom í hendur félags­ins árið 2017 var því hreinn hagn­aður.

[links]Kjarninn fjall­aði um mögu­lega sölu HS Orku á 30 pró­senta hlut sinn í Bláa lón­inu í fyrra. Banda­ríski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Blackstone bauð rúma 11 millj­arða í hlut­inn, en full­trúar íslenskra líf­eyr­is­sjóða, sem eiga þriðj­ungs­hlut í orku­fyr­ir­tæk­inu beittu neit­un­ar­valdi sínu og höfn­uðu til­boð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár