Nokkur tilboð voru yfir 11 milljörðum í hlut HS Orku í Bláa lóninu

Meiri­hluta­eig­andi HS Orku segir að nokkur til­boð hafi borist í 30 pró­sent hlut fyr­ir­tæk­is­ins í Bláa lón­inu sem hafi verið yfir ell­efu millj­örðum króna. Minni­hluta­eig­endur telja virði hlut­ar­ins meira og höfn­uðu öllum fyr­ir­liggj­andi til­boðum.

Nokkur til­boð bár­ust í 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu sem voru yfir 90 millj­ónum evra, eða 11 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Alterra Power, stærsti eig­andi HS Orku sem skráð er á hluta­bréfa­markað í Kanada, sendi frá sér í gær.

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að einka­við­ræður hafi farið fram við þann bjóð­anda sem þótti álit­leg­astur, og hafi boðið um 90 millj­ónir evra í hlut­inn. Greint hefur verið frá því í íslenskum fjöl­miðlum að sá bjóð­andi var banda­ríski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Blackstone. Í til­kynn­ingu Alterra segir að þótt félagið hafi verið til­búið að selja þessum aðila hlut­inn þá hafi með­eig­andi þess, íslenska félagið Jarð­varmi sem á 33,4 pró­sent hlut í HS Orku, hafnað því. Samþykki Jarð­varma, sem er í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, hafi verið nauð­syn­legt vegna hlut­hafa­sam­komu­lags um minni­hluta­vernd sem gert var þegar Jarð­varmi keypti upp­haf­lega hlut í HS Orku sum­arið 2011. Alterra Power segir að sölu­ferl­inu á hlutnum í Bláa lón­inu sé nú lokið en að það verði mögu­lega end­ur­vakið síðar.

Davíð Rúd­ólfs­son, stjórn­ar­for­maður Jarð­varma, sagði við Morg­un­blaðið í vik­unni að félagið hafi metið það sem svo að til­boðin sem fyrir lágu hefðu ekki end­ur­speglað virði Bláa lóns­ins. „Við teljum það verð­mæt­ara en þau til­boð sem komu fram.“ Heild­ar­virði Bláa lóns­ins sam­kvæmt til­boð­unum sem fyrir lágu var 37 millj­arðar króna.

Aug­lýstur til sölu í maí

HS Orka sendi frá sér til­kynn­ingu um miðjan maí síð­ast­lið­inn þar sem fram kom að það ætl­aði að kanna mög­u­­lega sölu á hlut sínum í Bláa lón­inu, í heild eða að hluta. Stöplar Advisory sáu um að ræða við hugs­an­­lega fjár­­­festa og stýra ferl­inu fyrir hönd HS Orku, en í til­­kynn­ing­unni kom fram að þessi ákvörðun væri tekin í kjöl­farið á sýndum áhuga á hlutnum í Bláa lón­in­u.

„HS Orka hefur verið hlut­hafi í Bláa Lón­inu frá upp­­hafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangs­­mik­inn rekst­­ur, dafnar og er enn í veru­­legum vexti. Þrátt fyrir að um ein­staka eign sé að ræða og þá fellur starf­­semi Bláa Lóns­ins ekki að kjarna­­starf­­semi HS Orku sem er fram­­leiðsla og sala end­­ur­nýj­an­­legrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ var haft eftir Ásgeiri Mar­­geir­s­­syni, for­­stjóra HS Orku, í frétta­til­kynn­ing­unn­i.

Hagn­aður HS Orku í fyrra nam 2,7 millj­­örðum króna og heild­­ar­­tekjur 7,1 millj­­arði króna. Heild­­ar­­eignir félags­­ins voru bók­­færðar á tæp­­lega 50 millj­­arða króna. Óhætt er því að segja að rekstur félags­­ins sé í góðu horfi þessa dag­ana.

Hlut­­ur­inn í Bláa lón­inu var met­inn á 1,8 millj­­arða króna í árs­­reikn­ingi sem þýðir að félagið var metið á um sex millj­­arða króna sam­kvæmt þeim mæli­kvarða. Ljóst er, miðað við til­boð Blackstone, að virði Bláa lóns­ins er veru­lega van­metið í bókum HS Orku.

Ein­ungis arð­greiðslan til hlut­hafa Bláa lóns­ins nam 1,4 millj­­arði, vegna árs­ins 2015. Vegna síð­asta árs nam arð­greiðslan 1,5 millj­arði króna. Því hefur Bláa lónið greitt næstum þrjá millj­arða króna í arð á tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár