Höfnuðu ellefu milljarða tilboði frá bandarískum sjóði í hlut í Bláa lóninu

HS Orka mun ekki selja 30 pró­sent hlut sinn í Bláa lón­inu. Líf­eyr­is­sjóðir í eig­enda­hópnum lögð­ust gegn því. Hæsta til­boðið sem barst var upp á rúma 11 millj­arða króna.

HS Orka mun ekki selja 30 pró­sent hlut sinn í Bláa lón­inu. Full­trúar íslenskra líf­eyr­is­sjóði, sem eiga 33,4 pró­sent hlut í orku­fyr­ir­tæk­inu í gegnum félagið Jarð­varma, beittu í síð­ustu viku neit­un­ar­valdi sínu og höfn­uðu fyr­ir­liggj­andi til­boði frá sjóði í stýr­ingu Blackstone, eins stærsta fjár­fest­ing­ar­sjóðs heims, í hlut­inn. Tilboðið var upp á rúma 11 millj­arða króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Miðað við til­boðið er heild­ar­mark­aðsvirði Bláa lóns­ins um 37 millj­arðar króna.

Auglýstur til sölu í maí

HS Orka sendi frá sér til­kynn­ingu um miðjan maí síð­ast­lið­inn þar sem fram kom að það ætl­aði að kanna mögu­lega sölu á hlut sínum í Bláa lón­inu, í heild eða að hluta. Stöplar Advisory sáu um að ræða við hugs­an­lega fjár­festa og stýra ferl­inu fyrir hönd HS Orku, en í til­kynn­ing­unni kom fram að þessi ákvörðun væri tekin í kjöl­farið á sýndum áhuga á hlutnum í Bláa lón­in­u.

„HS Orka hefur verið hlut­hafi í Bláa Lón­inu frá upp­hafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangs­mik­inn rekst­ur, dafnar og er enn í veru­legum vexti. Þrátt fyrir að um ein­staka eign sé að ræða og þá fellur starf­semi Bláa Lóns­ins ekki að kjarna­starf­semi HS Orku sem er fram­leiðsla og sala end­ur­nýj­an­legrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ var haft eftir Ásgeiri Mar­geirs­syni, for­stjóra HS Orku, í frétta­til­kynn­ing­unn­i.

Meirihlutaeigendur ósáttir með að tilboði væri hafnað

Magma Energy, dótt­ur­fé­lag Alterra, á 66,6 pró­sent hlut í HS Orku, sem síðan á 30 pró­sent hlut í Bláa lón­inu. Ross Beaty, for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alterra orku­fyr­ir­tæk­is­ins sem skráð er á markað í Kana­da, sagði á heima­síðu þess í maí síð­ast­liðnum að eftir mik­inn vöxt og árang­urs­mikla upp­bygg­ingu Bláa lóns­ins, þá sé það mat HS Orku að nú væri góður tíma­punktur til að selja hlut­inn í Bláa lón­inu.

Í Frétta­blað­inu er greint frá því að mik­illar óánægju gæti hjá stjórn­endum Alterra með ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna, sem eiga minni­hluta í HS Orku, um að hafna til­boði Blackstone. Tilboð banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins hafi verið nokkuð yfir vænt­ingum stjórnar HS Orku þegar ákveðið var setja hlut félags­ins í Bláa lón­inu í sölu­ferli. Líf­eyr­is­sjóð­irnir gátu komið í veg fyrir söl­una þar sem að í hlut­hafa­sam­komu­lagi HS Orku er til­tekið að allar meiri­háttar ákvarð­anir fyr­ir­tæk­is­ins, eins og um sölu á hlutnum í Bláa lón­inu, þurfi sam­þykki stjórnar Jarð­varma.

Hagn­aður HS Orku í fyrra nam 2,7 millj­örðum króna og heild­ar­tekjur 7,1 millj­arði króna. Heild­ar­eignir félags­ins voru bók­færðar á tæp­lega 50 millj­arða króna. Óhætt er því að segja að rekstur félags­ins sé í góðu horfi þessa dag­ana.

Hlut­ur­inn í Bláa lón­inu var met­inn á 1,8 millj­arða króna í árs­reikn­ingi sem þýðir að félagið var metið á um sex millj­arða króna sam­kvæmt þeim mæli­kvarða. Ljóst er, miðað við til­boð Blackstone, að virði Bláa lóns­ins er veru­lega van­metið í bókum HS Orku.

Ein­ungis arð­greiðslan til hlut­hafa Bláa lóns­ins nam 1,4 millj­arði, vegna árs­ins 2015. Hagn­aður Bláa lóns­ins á því ári nam 2,2 millj­örðum króna eftir skatta. Á árinu 2014 voru heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 6,1 millj­arður en hagn­að­ur­inn var 1,8 millj­arðar króna, eftir skatta. Tæp­lega þriðja hver króna sem kom í kass­ann var því hreinn hagn­að­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár