Ross Beaty: Kominn tími á að selja hlutinn í Bláa lóninu

Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Stöplar aðstoðar HS Orku við að selja 30 pró­sent hlut í HS Orku. Stjórn­ar­for­maður HS Orku segir rekstur Bláa lóns­ins utan við rekstur kjarna­starf­semi.

Ross Beaty, for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alterra orku­fyr­ir­tæk­is­ins sem skráð er á markað í Kanada, segir að eftir mik­inn vöxt og árang­urs­mikla upp­bygg­ingu Bláa lóns­ins, þá sé það mat HS Orku að nú sé góður tíma­punktur til að selja hlut­inn í Bláa lón­inu.

Magma Energy, dótt­ur­fé­lag Alterra, á 66 pró­sent hlut í HS Orku, sem síðan á 30 pró­sent hlut í Bláa lón­inu. Í fyrra var 360 millj­óna króna arður greiddur til hlut­hafa HS Orku og kom hann allur úr rekstri Bláa lóns­ins.

Traustur rekstur

Hagnaður HS Orku í fyrra nam 2,7 millj­örðum króna og heild­ar­tekjur 7,1 millj­arði króna. Heild­ar­eignir félags­ins voru bók­færðar á tæp­lega 50 millj­arða króna. Óhætt er því að segja að rekstur félags­ins sé í góðu horfi þessa dag­ana.

Hlut­ur­inn í Bláa lón­inu er met­inn á 1,8 millj­arða króna í árs­reikn­ingi sem þýðir að félagið er metið á um sex millj­arða, sé mið tekið af því.

Reikna má með að hlut­ur­inn geti verið mun meira virði en það, þar sem ein­ungis arð­greiðslan til hlut­hafa nam 1,4 millj­arði, vegna árs­ins 2015. Hagnaður Bláa lóns­ins á því ári nam 2,2 millj­örðum króna eftir skatta. Á árinu 2014 voru heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 6,1 millj­arður en hagn­að­ur­inn var 1,8 millj­arðar króna, eftir skatta. Tæplega þriðja hver króna sem kom í kass­ann var því hreinn hagn­aður.

Utan kjarnastarfsemi

Haft er eftir Beaty, á vef Alterra, að vegna þess að starf­semi Bláa lóns­ins sé utan kjarna­starf­semi Alterra og HS Orku, þá sé kom­inn tími til að selja hlut­inn. Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Stöplar er með söl­una á hlutnum á sínu borði, fyrir hönd HS Orku, en eig­endur þess eru Jón Óttar Birg­is­son, Benedikt Gíslason og Guðjón Kjart­ans­son.

Stærstu hlut­haf­ar Bláa lóns­ins eru Hvatnig slhf., með 39,1% hlut, HS Orka með 30% hlut, Keila ehf. með 9,2% hlut og Hofg­arðar ehf. með 4,9% hlut, en eig­andi þess er Helgi Magn­ús­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins.

Hvatn­ing slhf. er í 50,55% eigu einka­hluta­fé­lags­ins Kólfs og 49,45% eigu Horns II slhf.

Kólf­ur ehf. er í 75% eigu Gríms Sæ­mund­sen og 25% eigu Eðvards Júl­í­us­son­ar.

Eðvard er fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Grinda­vík og átti sæti í stjórn Hita­veitu Suð­ur­nesja, fyr­ir­renn­ara HS Orku.

Horn II slhf. er fram­taks­sjóður stofn­aður af Lands­bréf­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár