Nar­g­izu Salimova verður ekki vísað úr landi í nótt

Fram­kvæmd hefur verið stöðvuð og mun lög­reglan ekki sækja Nar­g­izu Salimova til að fylgja henni úr landi. Frumvarp var lagt fram á Alþingi í kvöld um að veita henni íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Nar­g­iza Salimova
Nar­g­iza Salimova Mynd: Bára Huld Beck

Nar­g­izu Salimova verður ekki vísað úr landi í nótt eins og til stóð. Þetta stað­festi lög­fræð­ingur hennar rétt í þessu. Eins og fram kom í fréttum Kjarnans fyrr í kvöld þá var lagt fram frum­varp á Alþingi um að veita Nar­g­izu íslenskan rík­is­borg­ara­rétt, ásamt fleirum. Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd leggur frum­varpið fram og lík­legt þykir að mælt verði fyrir því í kvöld og greidd atkvæði á morgun.

Nar­g­iza kom hingað til lands fyrir rúmum átta mán­uðum og sótti um alþjóð­lega vernd en þeirri umsókn var hafnað af Útlend­inga­stofnun. Henni gafst ekki tæki­færi til að kæra þann úrskurð vegna mis­taka hjá fyrr­ver­andi tals­manni hennar og stóð því til að vísa henni úr landi aðfara­nótt þriðju­dags.

[links]Kjarninn fjall­aði um mál Nar­g­izu fyrr í dag en lög­fræð­ingar hennar skil­uðu inn grein­ar­gerð til kæru­nefndar útlend­inga­mála varð­andi mál hennar fyrir hádegi í morgun. Hún fór í skýrslu­töku til lög­reglu í gær þar sem grunur leikur á að hún sé fórn­ar­lamb mansals.

Eiginmaðurinn hvarf sporlaust

Þjóðerni hennar er Uygur og til­heyrir hún því minni­hluta­hópi þar. Eftir að eig­in­maður hennar hvarf spor­laust fyrir um ári síðan flúði hún frá Kirgistan og end­aði á Íslandi.

Nargiza er fædd 1978 og verður hún því fer­tug á árinu. Hún ólst upp sem fyrr segir í Kirgistan en fyrir rúm­lega ári síðan hvarf eig­in­maður hennar eftir vinnu einn dag­inn. Eftir það hófst atburða­rás þar sem hún flutti til föður síns með börnin tvö sem eru fimmtán og sautján ára gömul.

[adspot]

Eftir hvarf eig­in­manns­ins fór Nargiza á lög­reglu­stöð í heima­bænum á hverjum degi til að grennsl­ast fyrir um afdrif hans og til að fá upp­lýs­ingar og hjálp frá yfir­völdum. Hún segir að lítið hafi verið um svör og þvert á móti hafi lög­reglan áreitt hana og yfir­heyrt börnin hennar. Úr varð að hún flúði til nágranna­rík­is­ins Kasakstan og dvaldi þar í þrjá mán­uði. Henni var ekki vært þar og var þá för­inni heitið til Litháen með nokkrum við­komu­stöðum. Að lokum end­aði hún á Íslandi. „Ég hrein­lega veit ekki hvernig ég komst hingað. Ég vissi lítið um Ísland, enda kom ég bara á peys­unni beint í kuld­ann,“ segir hún.

Vill fá tækifæri til að byggja upp nýtt líf

Við kom­una til Íslands dvaldi hún á hót­eli og seg­ist hún hafa verið algjör­lega úrræða­laus og hrædd. Smygl­ar­inn sem kom henni til lands­ins hafði tekið vega­bréfið hennar en hann lét sig hverfa stuttu eftir kom­una hingað, að hennar sögn. Hún tók þá ákvörðun að fara í Útlend­inga­eft­ir­litið og leita sér hjálpar og þá byrj­uðu hjólin að snú­ast. Hún sótti um hæli og í kjöl­farið fékk hún her­bergi sem vist­ar­verur og síðar litla íbúð.

Börn Nargizu dvelja nú hjá föður hennar á heim­ili hans í Kirgistan en móðir hennar er látin. Hún hefur áhyggjur af þeim og langar hana að sam­eina fjöl­skyld­una. Hún talar við þau á hverjum degi og hennar helsta ósk er að fá tæki­færi til að byggja upp nýtt líf á Íslandi. Hún vill senda eftir börn­unum og búa þeim heim­ili hér.

Dvölin fjarri fjöl­skyld­unni hefur reynt mikið á Nargizu og þjá­ist hún að miklum kvíða og van­líðan en slíkt er ekki óal­gengt hjá konum í þess­ari stöðu. Í grein­ar­gerð til Útlend­inga­stofn­unar vegna umsóknar hennar um alþjóð­lega vernd kemur fram að hún sé metin í ein­stak­lega við­kvæmri stöðu en hún upp­lifir kvíða­köst eftir reynslu sína, fær martraðir og finnur fyrir mik­illi streitu. Jafn­framt segir í grein­ar­gerð­inni að konur og stúlkur séu gjarnan taldar sér­stak­lega við­kvæmur hópur sem hafi færri tæki­færi, úrræði, völd og áhrif en karl­menn vegna sam­fé­lags­legrar stöðu sinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár