Rannsaka hvort um mansal hafi verið að ræða

Nargiza Salimova bíður nú eftir svari frá kæru­nefnd útlend­inga­mála hvort fall­ast eigi á beiðni hennar um end­ur­upp­töku í máli hennar. Hún fór í skýrslu­töku í gær en hugs­an­lega er Nargiza fórn­ar­lamb mansals. Til stendur að vísa henni úr landi í nótt.

Nargizu Salimova
Nargizu Salimova Mynd: Bára Huld Beck

Lög­fræð­ingar Nargizu Salimova skil­uðu inn grein­ar­gerð til kæru­nefndar útlend­inga­mála varð­andi mál hennar fyrir hádegi í morgun en til stendur að vísa henni úr landi næstu nótt. Hún fór í skýrslu­töku til lög­reglu í gær þar sem grunur leikur á að hún sé fórn­ar­lamb mansals. Vonast er til að kæru­nefnd skili svari fyrir kl. 19 í kvöld. Búist er við því að lög­reglan sæki hana nokkrum klukku­tímum fyrir brott­vísun.

[links]Kjarninn fjall­aði ítar­lega um mál Nargizu fyrir helgi en hún kom til lands­ins fyrir rúmum átta mán­uðum síðan eftir að hafa ferð­ast langa leið frá heima­land­inu Kirgistan. Þjóðerni hennar er Uygur og til­heyrir hún því minni­hluta­hópi þar. Eftir að eig­in­maður hennar hvarf spor­laust fyrir um ári síðan flúði hún frá Kirgistan og end­aði á Íslandi.

Hún kom til Íslands með aðstoð smygl­ara og án vit­neskju um hvert hún væri að fara. Hún sótti um hæli á Íslandi þann 20. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og hófst þar með ferli hennar í kerf­inu sem mun taka enda þriðju­dag­inn 12. júní ef ekk­ert verður að gert. Þá verður henni vísað úr landi til Litháen eftir að láð­ist að kæra mál hennar til kæru­nefndar útlend­inga­mála á til­teknum tíma vegna anna hjá lög­fræð­ingi sem henni var úthlutað hjá Rauða kross­inum. Hún gerði sér ekki grein fyrir að um mis­tök hefði verið að ræða fyrr en eftir að íslenskir vinir hennar fóru að grennsl­ast fyrir um málið.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er í fyrsta lagi óskað eftir því við kæru­nefnd að taka kæruna upp að nýju vegna galla á með­ferð máls hennar, bæði hvað varðar tals­mann hennar hjá Rauða kross­inum en einnig af hálfu stjórn­valda. Talið er að Nargizu hafi ekki verið leið­beint nægi­lega vel eftir að kæru var vísað frá.

Í öðru lagi þykir ástæða til að kanna hvort hún hafi verið fórn­ar­lamb mansals en hún kom til lands­ins með aðstoð smygl­ara, eins og áður hefur verið greint frá. Í lögum um útlend­inga segir að heim­ilt sé að veita útlend­ingi sem grunur leikur á að sé fórn­ar­lamb mansals dval­ar­leyfi í allt að níu mán­uði þótt öðrum skil­yrðum sé ekki full­nægt. Við rann­sókn máls­ins skuli lög­regla veita Útlend­inga­stofnun aðstoð, til dæmis við mat á aðstæðum við­kom­andi. Þrátt fyrir önnur ákvæði skuli ekki vísa við­kom­andi ein­stak­lingi úr landi á þessu tíma­bili.

Í þriðja lagi er talið að Nargiza sé sér­stak­lega við­kvæm vegna heilsu en sál­fræði­mat liggur nú fyrir vegna and­legrar heilsu. Samkvæmt gögnum í mál­inu hefur þessi reynsla reynt gríð­ar­lega á Nargizu og þarf hún nauð­syn­lega á sál­fræði­hjálp að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár