Leggja til að lækka tekjur vegna veiðigjalda um 1,7 milljarð

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar hefur lagt fram frum­varp um að lækka tekjur rík­is­ins af veiði­gjöldum úr tíu millj­örðum í 8,3 millj­arða. Versn­andi afkoma sjáv­ar­út­vegs er sögð ástæðan. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja vænk­að­ist um 365,8 millj­arða á nokkrum árum.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður atvinnuveganefndar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Fimm aðrir þingmenn mynda meirihluta í nefndinni.
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og for­maður atvinnu­vega­nefndar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Fimm aðrir þing­menn mynda meiri­hluta í nefnd­inni. Mynd: Samsett

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar, sem er skip­aður þing­mönnum Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks hafa lagt fram frum­varp sem felur í sér að lækka veiði­gjöld sem leggj­ast á útgerðir lands­ins fyrir að fá að nýta fisk­veiði­auð­lind­ina um millj­arða króna. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og for­maður atvinnu­vega­nefndar. Aðrir þing­menn sem leggja fram frum­varpið eru Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, Ásmundur Frið­riks­son og Njáll Trausti Frið­berts­son frá Sjálf­stæð­is­flokki, Halla Signý Krist­jáns­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokki og Sigurður Páll Jónsson, sem þing­maður Mið­flokks­ins er eini stjórn­ar­and­stöðu­með­limur nefnd­ar­innar sem skrifar sig á frum­varpið.

[links]Í gild­andi fjár­lögum var gert ráð fyrir því að veiði­gjöld myndu skila tíu millj­örðum krónum í rík­is­kass­ann í ár, og byggir það á því að álögð veiði­gjöld vegna fisk­veiði­árs­ins 2017/2018 voru áætluð 10,8 millj­arðar króna. Þorri þeirra átti því að skila sér til rík­is­ins á þessu alm­an­aks­ári.

Í frum­varp­inu sem meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar hefur lagt fram er lagt til að það lækki umtals­vert. Verði frum­varpið að lögum mun veiði­gjaldið sem útgerðir greiða til rík­is­ins í ár, að teknu til­liti til afsláttar, lækka um 1,7 millj­arðar króna og verða 8,3 millj­arðar króna. Það er svipað og inn­heimt veiði­gjöld voru árið 2017, þegar þau voru 8,4 millj­arðar króna.

[adspot]Lækk­un­ina á að fram­kvæma þannig að stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin fá mestu veiði­gjalda­lækk­un­ina í krónum talið. Um er að ræða krónu­tölu­lækkun á allan veiddan afla en auk þess er svo­kall­aður per­sónu­af­sláttur útgerða hækk­aður á minni útgerðir.

Sambærilegt og gerðist 2013

Frum­varpið var lagt fram í gær, þegar þing var nýkomið saman eftir sveita­stjórn­ar­kosn­ingar og á ein­ungis örfáa daga eftir starf­andi sam­kvæmt áætlun. Tími sem gefst til að skila inn umsögnum um frum­varpið rennur út á hádegi á föstu­dag. Þ.e. á morgun. Í frum­varp­inu segir: „Óeðli­lega hátt veiði­gjald getur dregið úr starfs­hæfni fyr­ir­tækja og sam­keppn­is­hæfni grein­ar­innar á alþjóð­legum mark­aði. Slík þróun getur haft umtals­verð nei­kvæð áhrif á m.a. þjón­ustu­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi og sveit­ar­fé­lög sem byggja afkomu sína að stórum hluta á tekjum af sjáv­ar­út­vegi. Þá getur hátt veiði­gjald ýtt undir frek­ari fækkun sjálf­stæðra atvinnu­rek­enda í sjáv­ar­út­vegi en afla­hlut­deild­ar­höfum hefur fækkað ört á síð­ustu árum eða um tæp 60 pró­sent á 12 árum.“

Lilja Rafney sagði í Frétta­blað­inu í morgun að afkoma útgerða væri komin að þol­mörkum. Þar kall­aði Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, full­trúi Sam­fylk­ingar í atvinnu­vega­nefnd, fram­kvæmd­ina „óboð­lega stjórn­sýslu“.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rík­is­stjórn lækkar veiði­gjöld á þessum tíma árs, rétt fyrir lok fyrsta vor­þings eftir að hún tekur við. Það gerð­ist líka vorið 2013 þegar eitt af fyrstu verkum rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­uðu, var að sam­þykkja lög sem lækk­uðu veiði­gjöld. Þau lög voru sam­þykkt 5. júlí 2013. Í kjöl­farið lækk­uðu veiði­gjöld mikið á árum þar sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins sem heild sýndu metaf­komu.

Frum­varpið vakti hörð við­brögð víða í sam­fé­lag­inu, sér­stak­lega hjá þáver­andi stjórn­ar­and­stöðu. Þann 4. júlí 2013, dag­inn áður en frum­varpið var sam­þykkt, tjáði Svandís Svav­ars­dóttir, þá þing­maður Vinstri grænna í stjórn­ar­and­stöðu og nú ráð­herra í rík­is­stjórn, sig um vinnu­lag rík­is­stjórn­ar­innar í mál­inu í stöðu­upp­færslu á Facebook Þar sagði Svandís: „Á loka­sprett­inum er sam­komu­lag um þing­lok sett í upp­nám með til­lögum meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um að gefa enn í varð­andi gjafir til útgerð­ar­innar. Á einum degi, án rök­semda, án útreikn­inga, án skýr­inga á að fella niður veiði­gjald á kolmunna sem nemur 459 millj­ónum króna. Stjórn­ar­meiri­hlut­inn sendir sprengju inn í við­kvæma stöðu.“

Hagur útgerðar vænkaðist um 366 milljarða á örfáum árum

Sam­an­lagðar arð­greiðslur sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja frá byrjun árs 2010 og út árið 2016 voru 65,8 millj­­­arðar króna. Eigið fé þeirra frá hruni og til loka árs 2016 batn­aði um 300 millj­­­arða króna. Því hefur hagur sjá­v­­­­ar­út­­­­­veg­­­ar­ins vænkast um 365,8 millj­­­arða króna á örfáum árum.

Atvinnu­vega­nefnd byggir ákvörðun sína um að lækka veiði­gjöld að mestu leyti á úttekt sem Deloitte vann á rekstri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja að beiðni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins. Í spá, sem Deloitte vann segir að tekjur sjáv­ar­út­vegs hafi dreg­ist saman úr 249 millj­­örðum króna árið 2016, sem var metár í hagn­aði, í 240 millj­­arða króna í fyrra.

Þennan við­snún­ing hafa eig­endur þeirra meðal ann­ars nýtt í að greiða hratt niður skuldir og í að auka fjár­fest­ingu í geir­anum. Skuldir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja voru 319 millj­arðar króna í lok árs 2016 og höfðu þá lækkað um 175 millj­arða króna frá hruni. Fjár­fest­ing í var­an­legum rekstr­ar­fjár­munum, sem eru til að mynda ný skip, var 22 millj­arðar króna á árinu 2016. Hún var um 25 millj­arðar króna að með­al­tali árin á undan.

Hæstu veið­i­­­gjöldin greiddi sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ur­inn vegna fisk­veið­i­­ár­s­ins 2012/2013, en þá greiddi útgerðin 12,8 millj­­arða króna í rík­­is­­sjóð vegna veið­i­­gjalda. Árin þar á eftir lækk­­uðu gjöldin skref fyrir skref niður í 4,8 millj­­arða árið 2016. Líkt og áður sagði var áætlað er að þau yrðu 10,8 millj­arðar króna vegna yfir­stand­andi fisk­veiði­árs, 2017/2018.

Kall­aði veiði­gjöld „há­tekju­skatt á sterum“

Mik­ill þrýst­ingur hefur verið frá útgerð­ar­fyr­ir­tækjum á stjórn­völd um að lækka veiði­gjöld. Heiðrún Lind Mart­eins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), hags­muna­gæslu­arms sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, sagði við Morg­un­blaðið í upp­hafi árs að gjöldin væru allt of há. „Við erum að ­á­ætla að árið 2018, miðað við óbreytt veið­i­­­gjald eins og fjár­­lög fóru í gegn­um ­þing­ið, verði skattur 58 til 60 pró­­sent af hagn­að­i[...]Þetta verður hátekju­skattur á sterum þetta árið og gjald­takan er komin langt fram úr hófi. Hún verður bein­línis skað­­leg sjá­v­­­ar­út­­­vegi og þar með sam­­fé­lag­inu öllu.“

Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, for­­stjóri Sam­herja, sagði í ræðu sem hann flutti á að­al­fundi Síld­­ar­vinnsl­unnar í lok mars, og var birt á vef fyr­ir­tæk­is­ins, að veið­i­­­gjöld taki ekki mið af aðstæðum í umhverfi grein­­ar­innar heldur þegar aðstæður hafi verið allt aðrar og betri. Þor­­steinn er stjórn­­­ar­­for­­maður Síld­­ar­vinnsl­unnar og Sam­herji er stærsti ein­staki eig­andi henn­­ar.

Hagn­­aður Síld­­ar­vinnsl­unnar árið 2017 var 2,9 millj­­arðar króna. Sam­herj­­a­­sam­­stæð­an, sem starfar á sviði sjá­v­­­ar­út­­­vegs bæði hér­­­lendis og erlend­is, hagn­að­ist um 86 millj­­arða króna á árunum 2010-2016. Árið 2016 var hagn­aður henn­ar fyrir afskriftir og fjár­­­­­magnsliði 17 millj­­­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár