Veiðigjöld verði lækkuð - „Hátekjuskattur á sterum“

Rík­is­stjórnin hyggst end­ur­skoða veiði­gjöld og lækka þau á lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, sem ekki hafa ráðið við hækk­anir frá 1. sept­em­ber í fyrra.

Veiði­gjöld á lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi verða lækkuð sam­hliða end­ur­skoðun á veiði­gjöld­unum á þessu ári.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag, og er vísað til þess að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafi komið sér saman um þetta líkt og orða­lag í stjórn­ar­sátt­mála ber með sér. „Við erum að horfa til litlu og meðal­stóru fyr­ir­tækj­anna sem eru ekki að ráða við þá miklu hækk­un sem varð á veiði­gjald­inu 1. sept­em­ber á síð­asta ári,“ seg­ir Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna og for­maður at­vinnu­vega­nefnd­ar, í um­fjöll­un um veiði­gjöld­in og áform­aða lækk­un þeirra í Morg­un­blað­inu í dag.

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að veiði­gjöldin séu orðin alltof há. „Við erum að áætla að árið 2018, miðað við óbreytt veiði­gjald eins og fjár­lög fóru í gegnum þingið, verði skattur 58 til 60 pró­sent af hagn­aði,“ segir Heiðrún Lind. „Þetta verður hátekju­skattur á sterum þetta árið og gjald­takan er komin langt fram úr hófi. Hún verður bein­línis skað­leg sjáv­ar­út­vegi og þar með sam­fé­lag­inu öllu.“

Óhætt er að segja að und­an­farin ár hafi verið sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í land­inu að mörgu leyti hag­felld, einkum þeim stærstu.

Þannig hagn­að­ist sjáv­ar­út­veg­ur­inn um nálægt 300 millj­örðum króna á árunum 2009 til 2016. Helm­ingur þess hagn­aðar féll til á síð­ustu þremur árunum á fyrr­nefndu tíma­bili.

Á þessu tíma­bili lækk­uðu skuldir atvinnu­veg­ar­ins sömu­leið­ils um sam­tals 161 millj­arð króna, og stóðu í 333 millj­örðum króna um ára­mótin 2015/2016. Síðan hefur þró­unin verið áfram í sömu átt, en sterkara gengi krón­unnar hefur þó gert mörgum fyr­ir­tækjum, einkum þeim sem minni eru, erf­ið­ara um vik í rekstr­inum.

Hæstu veiði­gjöldin greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn vegna fisk­veiði­árs­ins 2012/2013, enþá greiddi útgerðin 12,8 millj­arða króna í rík­is­sjóð vegna veiði­gjalda. Árin þar á eftir lækk­uðu gjöldin skref fyrir skref niður í 4,8 millj­arða árið 2016. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár