Verið að máta saman nýjan meirihluta

Meiri­hluta­sam­starf Við­reisnar við sitj­andi meiri­hluta í Reykja­vík er í skoðun. Viðreisn mun fara fram á aðra áferð en hefur verið og leggja m.a. áherslu á mál­efni atvinnu­lífs­ins og mennta­mál. Vilji er til að mynda nýjan meiri­hluta sem fyrst.

Byrjað er að máta saman hvernig meiri­hluta­sam­starf Við­reisnar og þeirra þriggja flokka sem voru í frá­far­andi meiri­hluta í Reykja­vík gæti litið út. Við­mæl­endur Kjarnans segja að óform­legir fundir hafi átt sér stað milli lyk­il­manna í Sam­fylk­ingu og Við­reisnar.

Stefnt sé að því að Dagur B. Egg­erts­son og Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­vitar flokk­anna í Reykja­vík, eigi sam­tal í dag. Oddvitar Sam­fylk­ingar, Píratar og Vinstri grænna í Reykja­vík hitt­ust í gær til að leggja línur fyrir kom­andi við­ræður.

[links]Áhrifa­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur einnig verið dug­legt að hafa sam­band við fólk innan Við­reisnar til að reyna að ýta athygli flokks­ins frekar að sér. Í þeim óform­legu sam­tölum hefur verið lögð áhersla á að finna lausnir á mála­flokkum þar sem stefnur flokk­anna eru nán­ast á önd­verðu meiði svo hægt sé að ná saman um nýjan meiri­hluta.

Opin­berar yfir­lýs­ingar Við­reisnar eru þær að flokk­ur­inn sé opinn fyrir því að vinna með öllum. Mál­efna­lega er þó ljóst að mun ein­fald­ara verður fyrir flokk­inn að fara í sam­starf með frá­far­andi meiri­hluta en Sjálf­stæð­is­flokknum, Mið­flokki og Flokki fólks­ins sem töl­uðu t.d. gegn borg­arl­inu og yfir­stand­andi aðferð­ar­fræði við þétt­ingu byggðar í kosn­ing­unum.

Ólíkar stefnur

Í stefnu­skrá Mið­flokks­ins stendur að marg­falda eigi hús­næði í úthverf­unum, standa vörð um Reykja­vík­ur­flug­völl í Vatns­mýr­inni og bæta gatna­kerfið til að stytta ferða­tíma.

Flokkur fólks­ins vildi greiða götu einka­bíls­ins, fjölga mis­lægum gatna­mótum og halda flug­vell­inum á sama stað.

[adspot]Fyrir liggur að stefna Við­reisnar í skipu­lags-, hús­næðis- og sam­göngu­málum, og gild­andi aðal­skipu­lag, rímar illa við slíkt, en betur við áherslur frá­far­andi meiri­hluta. Flokk­ur­inn vill borg­ar­línu og ann­ars konar hágæða almenn­ings­sam­göngur. Hann vill vinna áfram með þétt­ingu byggðar og setja nýjar stofn­vega­fram­kvæmdir í stokk. Þá vill Viðreisn hvetja til orku­skipta í bíla­flot­anum með ýmsum hvata­að­gerðum, fjölga hjóla­stígum, stækka gjald­skyld bíla­stæða­svæði, studdu leng­ingu gjald­skyldu­tíma og afnám á hámarki á fjölda leigu­bíla. Allt ofan­greint eru mál sem Sam­fylk­ing, Píratar og Vinstri græn myndu styðja og ríma við þeirra áherslur.

Þegar kemur að veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri, er afstaða Við­reisnar skýr: „Finna þarf inn­an­lands­flugi nýja stað­setn­ingu í grennd við höf­uð­borg­ina, með þæg­indi og öryggi allra lands­manna að leið­ar­ljósi. Flug­völl­ur­inn verður áfram í Vatns­mýri þangað til að sú stað­setn­ing liggur fyrir. Viðreisn telur að nýr flug­völlur í Hvassa­hrauni sé lausn sem skoða þurfi til hlítar.“

Hvassa­hrauns­mögu­leik­inn er afrakstur vinnu Rögnu­nefnd­ar­innar svoköll­uðu. Í henni sátu meðal ann­ars Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, og Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík.

Viðreisn vill aðra áferð

Það er þó ljóst að Viðreisn mun vilja aðra áferð á nýtt meiri­hluta­sam­starf, verði af því. Þar er ekki vilji til þess að inn­koma Við­reisnar í sam­starfið verði eins og að nýtt hjól sé sett undir gamlan vagn til að hann geti rúllað áfram.

Eitt sem verður þar til umræðu er hvort að leita eigi að utan­að­kom­andi aðila til að taka að sér borg­ar­stjóra­stól­inn.

Þá mun Viðreisn fara fram á aukna áherslu á raf­ræna stjórn­sýslu, gagn­sætt og opið bók­hald og inn­leið­ingu jafn­launa­stað­als. En stóra málið verður þjón­usta við fyr­ir­tæki. Viðreisn lagði mikla áherslu á það í kosn­ing­unum að end­ur­skoða og ein­falda þjón­ustu við atvinnu­lífið, að við end­ur­skipu­lagn­ingu ráða borg­ar­innar verði til eitt ráð sem horfi sér­stak­lega til atvinnu­mála og að sam­keppn­is­staða Reykja­víkur til að laða að sér fyr­ir­tæki verði bætt með því að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði á síð­ari hluta kom­andi kjör­tíma­bils.

Viðreisn vill líka að Reykja­vík keppi að því að alþjóð­leg fyr­ir­tæki hafi starfs­stöðvar sínar í borg­inni.

Menntamál líka mikilvæg

Auk þess er vilji til þess að mennta­mál verði í önd­vegi hjá nýjum meiri­hluta. Í stefnu­skrá Við­reisnar var meðal ann­ars lögð áhersla á að gera sér­stakan kjara­samn­ing við kenn­ara í Reykja­vík og hækka þar með laun þeirra til að gera leik - og grunn­skól­ana að eft­ir­sóttum vinnu­stöðvum. Þá vill flokk­ur­inn auka fag­legt frelsi grunn­skóla­kenn­ara og gera til­raunir með ólík kennslu­form.

Viðreisn telur einnig að of mik­ill tími skóla­stjóra fari „í rekstur skóla og ekki nægi­legur tími í fag­lega for­ystu. Þessu ætlum við að breyta með því að semja um fjár­veit­ingu til grunn­skóla til þriggja ára í senn í stað eins árs. Þannig er hægt að auka sveigj­an­leika og svig­rúm til skóla­þró­unar. Skóla­stjórar verði fyrst og fremst fag­legir stjórn­endur skóla.“ Þá vill Viðreisn að leik­skólar séu opnir allt sum­arið og for­eldrar velji hvaða fjórar sam­felldu vikur barnið fái frí.

Aug­ljós­asti ásteyt­ing­ar­steinn­inn í mennta­málum verður þó sá að Viðreisn vill fjölga val­kostum í námi og styður fjöl­breytt rekstr­ar­form mennta­stofn­ana. Erfitt verður fyrir t.d. Vinstri græn að sætta sig við slíkt þar sem ein helsta áhersla þeirra í mennta­málum er að vinda „ofan af mark­aðsvæð­ingu í skóla­kerf­inu“.

Tveir aðrir valkostir ef útilokanir halda

Ef ofan­greindir flokkar ná ekki saman um myndun meiri­hluta eru tveir aðrir kostir lík­leg­astir í stöð­unni, ef gengið er útfrá því að þeir fjórir flokkar, sitj­andi meiri­hluta­flokkar og Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem hafa opin­ber­lega úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk standi við það.

Líkt og áður sagði getur Viðreisn unnið til hægri með íhalds­sam­ari flokk­unum Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins.

Annar mögu­leiki er að mynd­aður verði mjög vinstri­s­inn­aður meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Sós­í­alista, Pírata og Flokks fólks­ins. Hann myndi hafa eins manns meiri­hluta, líkt og hinir tveir val­kost­irnir sem hér hafa verið nefndir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár