Athugasemdir í kæru Pírata leiða ekki til ógildingar kosninga

Nefnd á vegum sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að athuga­semdir af hálfu Pírata vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna, sem gerðar voru í kæru til nefnd­ar­innar, séu ekki slíkar að þær leiði til ógild­ingar kosn­ing­anna.

Nefnd á vegum sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að athuga­semdir af hálfu umboðs­manna Pírata vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna, sem gerðar voru í kæru til nefnd­ar­innar, séu ekki slíkar að þær leiði til ógild­ingar kosn­ing­anna.

[link]Meðal þess sem kvartað var yfir var úthlutun á lista­bók­staf til fram­boðs­lista vegna kosn­ing­anna en Frels­is­flokk­ur­inn fékk bók­stafnum Þ úthlutað sem Pírötum fannst of líkt P-inu sem þeir nota. Slíkt gæti valdið rugl­ingi meðal kjós­enda. Nefndin kemst að þeirri nið­ur­stöðu að hvergi sé kveðið á um það í íslenskri kosn­inga­lög­gjöf að yfir­kjör­stjórn beri að líta til inn­byrðis rugl­ings­hættu á stöfum íslenska staf­rófs­ins. Engin mál­efna­leg rök sett fram í erindi kærenda vegna þess­ara athuga­semda og er það mat kjör­nefndar að ekki hafi verið neitt athuga­vert við fram­kvæmd og úthlutun bók­staf­anna.

Píratar gerðu einnig meðal ann­ars athuga­semdir við kjör­kass­ana, hvernig með­ferð þeirra var háttað og hvernig þeir voru útlít­andi og sam­an­settir. til dæmis að númer kass­anna hafi verið ritað með blý­anti með lím­miða, þeir skrúf­aðir saman á hlið­unum, einn kassi hafi brotnað sem sýni hversu úr sér gengnir kass­arnir séu og fleira. Nefndin segir hins vegar að kass­anir séu í sam­ræmi við þær kröfur sem gerðar eru í lögum um frá­gang þeirra og ástand.

Píratar lögðu fram sam­bæri­lega kæru fyrir kosn­ingar en henni vís­aði sýslu­maður frá vegna þess að ekki er hægt að kæra kosn­ingar fyrr en þær eru afstaðnar. Í sam­tali við mbl.is stuttu eftir kosn­ingar þegar kæran var lög aftur fram sagði Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Píraata í Reykja­vík að þeim hafi fund­ist bók­stafirnir mjög rugl­andi fyrir kjós­endur. Hún sagði að mark­miðið sé ekki að láta ógilda kosn­ing­arnar, heldur vekja athygli á ólíð­andi vinnu­brögðum við fram­kvæmd kosn­inga.

Lestu úrskurð nefnd­ar­innar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár