Fyrsti borgarstjórnarfundurinn á nýju kjörtímabili í dag

Kosið verður í ráð og nefndir og til­lögur flokk­anna teknar fyrir á fyrsta fundi borg­ar­stjórnar sem hald­inn er í dag. Sós­í­alista­flokk­ur­inn leggur fram sjö til­lögur á fund­inum.

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son. Mynd: Bára Huld Beck

Fyrsti borg­ar­stjórn­ar­fundur á nýju kjör­tíma­bili er hald­inn í Ráð­hús­inu í dag en hann hófst kl. 14. Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ing­ar, Við­reisn­ar, Pírata og Vinstri grænna var kynntur þann 12. júní síð­ast­lið­inn og sam­hliða var meiri­hluta­sátt­mála þeirra fjög­urra flokka sem hann mynda dreift.

[links]Á fund­inum verður kosið í ráð og nefndir og til­lögur flokk­anna teknar fyrir. Á dag­skrá fund­ar­ins er Sós­í­alista­flokk­ur­inn með sjö til­lögur, Mið­flokk­ur­inn eina, Flokkur fólks­ins eina og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eina. Jafn­framt verða siða­reglur kjör­inna full­trúa hjá Reykja­vík­ur­borg lagðar fram á fund­inum og und­ir­rit­aðar.

Hægt er að fylgj­ast með fund­inum í beinni útsend­inu á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Sósíalistaflokkurinn með sjö tillögur

Fjallað hefur verið um til­lögur Sós­í­alista­flokks­ins í fjöl­miðlum und­an­farna daga en meðal þeirra er til­laga um afnám þókn­unar fyrir nefnd­ar­setu starfs­manna borg­ar­innar fyrir fundi á vinnu­tíma.

„Það hefur eitt­hvað farið alvar­lega aflaga í stjórn­málum þegar borg­ar­stjóri Reykja­víkur og bæj­ar­stjórar nágranna­sveit­ar­fé­lag­ana eru farnir að taka sér hærri laun en borg­ar­stjórar New York, London og París,“ sagði Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir í til­kynn­ingu frá flokknum sem send var út þann 17. júní síð­ast­lið­inn. „Við ættum að horfast í augu við að þessi laun afhjúpa spill­ingu stjórn­málafor­yst­unnar og við ættum að gera eitt­hvað í því. Fyrsta skrefið ætti að vera að banna þessu fólki að taka þókn­anir fyrir fundi sem það situr í vinnu­tíma sinnar aðal­vinnu og sem eru því aug­ljós­lega hluti af þeim starfs­skyldum sem það fær greitt fyrir af föstu launum.“

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að sveit­ar­stjórar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi setið fimm fundi stjórnar Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í fyrra og þegið fyrir það tæpar 11 millj­ónir króna. „Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri er for­maður stjórn­ar­innar og fékk rúmar 205 þús­und krónur á mán­uði að launum eða tæp­lega 2,5 millj­ónir króna yfir árið. Deilt niður á fundi gera það rúm­lega 492 þús­und krónur fyrir hvern fund. Samkvæmt fund­ar­gerðum stóðu fund­irnir í einn til tvo tíma. Tímakaup Dags er því nærri 330 þús­und krónum að með­al­tali,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur leggur Sanna fram til­lögu að Reykja­vík­ur­borg eyði verð­hækk­un­ar­á­hrifum bygg­ing­ar­rétt­ar­gjalds á félags­legar íbúðir og íbúðir sem byggðar eru af óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum. Hingað til hafi verið lagt 45 þús­und króna bygg­ing­ar­rétt­ar­gjald á hvern fer­metra þess­ara íbúða og komi það að stóru leyti á móti því 12 pró­sent stofn­fram­lagi sem borgin leggur til bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­laga. „Því má segja að borgin leggi lítið sem ekk­ert til upp­bygg­ingar íbúða sem ætl­aðar eru fólki sem getur ekki keypt eða leigt á hinum óhefta mark­aði,“ segir Sanna. „Það sem borgin leggur til fer að mestu í að borga gjöld til borg­ar­innar, til dæmis lóða- og bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld.“

Sanna telur að flatt 45 þús­und króna bygg­ing­ar­rétt­ar­gjald sé órétt­lát skatt­heimta. Af verði 70 fer­metra íbúðar, sem kostar 25 milljón króna, sé bygg­ing­ar­rétt­ar­gjaldið rúm­lega 3,1 milljón króna eða 12,6 pró­sent af verð­inu. Gjaldið vegi miklum mun minna í verði lúxus­í­búða. Svo dæmi sé tekið séu nýkomnar í sölu dýrar lúxus­í­búðir við Tryggva­götu. Það kosti 166 fer­metra íbúð 143 millj­ónir króna. Af því sé bygg­ing­ar­rétt­ar­gjaldið tæpar 7,5 millj­ónir króna eða rúm­lega 5 pró­sent af verð­inu.

Aðrar til­lögur borg­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins fjalla um stofnun félags strætófar­þega, um stofnun félags skjól­stæð­inga vel­ferð­ar­sviðs, um stofnun félags leigj­enda hjá Félags­bú­stöðum, um könnun á umfangi útvist­unar og áhrifum hennar á kjör launa­fólks og um breyt­ingar á sam­þykkt um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar.

Flokkur fólks­ins leggur fram til­lögu um rekstr­ar­út­tekt á Félags­bú­stöðum, Mið­flokk­ur­inn til­lögu um nið­ur­fell­ingu bygg­ing­ar­rétt­ar­gjalds og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn um aðgerðir í hús­næð­is­málum.

Þórdís Lóa formaður borgarráðs

Fram hefur komið í fréttum að Dagur B. Egg­erts­son odd­viti Sam­fylk­ingar muni halda áfram sem borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur. Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir odd­viti Við­reisnar verður for­maður borg­ar­ráðs og Pawel Bar­toszek annar maður á lista Við­reisnar verður for­seti borg­ar­stjórnar í 3 ár en Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Pírata mun gegna því hlut­verki í eitt ár. Hún verður einnig for­maður í sam­ein­uðu mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráði. Líf Magneu­dóttir odd­viti vinstri grænna verður vara­for­maður borg­ar­ráðs og for­maður nýs ráðs umhverf­is- og heil­brigð­is­mála. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir annar full­trúi Pírata verður for­maður sam­göngu- og skipu­lags­ráðs.

Skúli Helga­son hjá Sam­fylk­ingu verður áfram for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs og Heiða Björg Hilm­is­dóttir einnig hjá Sam­fylk­ingu verður for­maður vel­ferð­ar­ráðs. Þá verður Pawel for­maður menn­ing­ar- og íþrótta­ráðs fyrsta árið en Hjálmar Sveins­son tekur svo við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár