Dagur verður borgarstjóri

Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna í Reykja­vík kynntur. Dagur B. Egg­erts­son verður borg­ar­stjóri, Pawel Bartoszek og Dóra Björt Guð­jóns­dóttir deila hlut­verki for­seta borg­ar­stjórnar. Þórdís Lóa for­maður borg­ar­ráðs.

Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna var kynntur í rjóðri við Breið­holts­laug í dag.

Þar kom fram að Dagur B. Egg­erts­son odd­viti Sam­fylk­ingar mun halda áfram sem borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir odd­viti Við­reisnar verður for­maður borg­ar­ráðs og Pawel Bartoszek annar maður á lista Við­reisnar verður for­seti borg­ar­stjórnar í 3 ár en Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Pírata mun gegna því hlut­verki í eitt ár. Hún verður einnig for­maður í sam­ein­uðu mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráði. Líf Magneu­dóttir odd­viti vinstri grænna verður vara­for­maður borg­ar­ráðs og for­maður nýs ráðs umhverfis- og heil­brigð­is­mála. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir annar full­trúi Pírata verður for­maður sam­göngu- og skipu­lags­ráðs.

Skúli Helgason hjá Sam­fylk­ingu verður áfram for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs og Heiða Björg Hilm­is­dóttir einnig hjá Sam­fylk­ingu verður for­maður vel­ferð­ar­ráðs. Þá verður Pawel for­maður menn­ingar- og íþrótta­ráðs fyrsta árið en Hjálmar Sveins­son tekur svo við.

Í kynn­ingu á meiri­hlut­anum í Breið­holt­inu í morgun kom fram að full­trú­arnir telja lítið sem sundri þeim, og þeim mun meira sem sam­eini þessa fjóra flokka. Um sé að ræða „breiðan og frjáls­lyndan félags­hyggju meiri­hluta“, þar sem sterk áhersla sé á „grænu málin“.

Í frétta­til­kynn­ingu frá meiri­hlut­anum segir að umhverf­is­mál, jafn­rétt­is­mál, lýð­ræði, sam­fé­lag fyrir alla, þjón­usta borg­ar­innar, hús­næð­is­mál og borg­ar­lína verði meg­in­at­riði hjá nýjum meiri­hluta. Nánari útfærslur hafa ekki verið kynntar.

Ný borg­ar­stjórn tekur við á fyrsta borg­ar­stjórn­ar­fundi sínum sem hald­inn verður þann 19. júní næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár