Hverju lofar nýr meirihluti í Reykjavík?

Nýr meiri­hluti Reykja­vík­ur­borgar var kynntur í morgun og sam­hliða var meiri­hluta­sátt­mála þeirra fjög­urra flokka sem hann mynda dreift. Kjarninn hefur tekið saman það helsta í sátt­mál­anum sem bein­línis er lofað.

Nýr meiri­hluti Reykja­vík­ur­borgar var kynntur í morgun og sam­hliða var meiri­hluta­sátt­mála þeirra fjög­urra flokka sem hann mynda dreift. Í sátt­mál­anum er farið um víðan völl þegar kemur að stjórnun og rekstri borg­ar­innar, eins og tíðkast.

[links]Kjarninn hefur tekið saman það helsta í sátt­mál­anum sem bein­línis er lofað. Því hefur verið sleppt sem „stefna skal að“, „efla“ eða „skoða“ og svo fram­vegis.

Umhverfis-, skipulags- og samgöngumál

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík ætlar að gera Lauga­veg­inn að göngu­götu allt árið og ætlar að fylgja áfram gild­andi Aðal­skipu­lagi borg­ar­innar sem felur í sér áfram­hald­andi þétt­ingu byggðar.

Meiri­hlut­inn lofar því að fjölga mat­jurtar­görðum og auka aðgengi að hreinu vatni í borg­ar­land­inu.

Því er lofað að ljúka skipu­lags­vinnu vegna fyrsta áfanga Borg­ar­línu og hefja fram­kvæmdir. Auk þess á að ná samn­ingum við ríkið vegna Borg­ar­lín­unnar.

Frítt verður í Strætó fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með full­orðnum auk þess sem tíðni verður aukin á helstu stofn­leiðum í 7,5 mín­útur á háanna­tímum.

Gjald­skyld bíla­stæða­svæði verða stækkuð sem þýðir að greiða þarf gjald fyrir að leggja bif­reiðum víðar en nú er og gjald­skyldu­tím­inn lengdur.

Því er lofað að auka sorp­hirðu í borg­inni á álags­tímum.

Húsnæðismál

Meiri­hlut­inn ætlar að vinna með hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lögum sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni og lofar því að fjölga stúd­enta­í­búðum, íbúðum eldra fólks og leigu­í­búðum verka­lýðs­fé­laga.

Því er lofað að fjölga félags­legum íbúðum í eigu borg­ar­innar um 500 á kjör­tíma­bil­inu og íbúðum fyrir sér­tæk búsetu­úr­ræði um að minnsta kosti 100.

Velferð og lýðheilsa

Hjúkr­un­ar­rýmum verður fjölgað. Reglur varð­andi náms­styrki þeirra sem fá fjár­hags­að­stoð hjá borg­inni verða rýmkaðar og ald­urs­há­mark end­ur­skoðað.

Setja á á fót búsetu­úr­ræði fyrir konur með geð- og fíkni­vanda.

Meg­in­reglan verður að borgin sinni vel­ferð­ar­þjón­ustu en vinni einnig með eink­að­ilum sam­kvæmt samn­ingum.

Skóla- og frístundamál

Meiri­hlut­inn lofar því að fjölga ung­barna­deildum og byggja nýja leik­skóla.

Leggja á áherslu á borg­ar­rekna skóla en áfram stutt við sjálf­stætt starf­andi leik- og grunn­skóla.

Einn leik­skóli í hverju hverfi verður opinn yfir sum­ar­tím­ann í til­raun­ar­skyni.

Frá og með ára­mótum 2019 munu barna­fjöl­skyldur ein­ungis þurfa að borga náms­gjald fyrir eitt barn, þvert á skóla­stig. Frá og með ára­mótum 2021 skulu þær mest greiða fæð­is­gjöld fyrir tvö börn, þvert á skóla­stig.

Avinnumál og þjónusta

Meiri­hlut­inn lofar því að stofna frum­kvöðla­sjóð til að auka fjöl­breytta atvinnu­starf­semi og end­ur­lífga hverfiskjarna.

Fjármál og rekstur

Útsvar verður óbreytt. Fast­eigna­skattar á atvinnu­hús­næði verða lækk­aðir úr 1,65 pró­sent í 1,60 pró­sent fyrir lok kjör­tíma­bils­ins.

Því er lofað að opna bók­hald borg­ar­innar alfarið á kjör­tíma­bil­inu.

Mal­bik­un­ar­stöðin Höfða fær nýja lóð og skoða hvort eigi að selja fyr­ir­tækið.

Kynjajafnrétti og kjaramál

Meiri­hlut­inn lofar því að eyða launa­mun kynj­anna hjá starfs­fólki borg­ar­innar. Laun kvenna­stétta verða leið­rétt.

Eyðublöð verða upp­færð svo þau geri ráð fyrir öllum kynjum.

Mannréttinda- og lýðræðismál

Klára á mæla­borð borg­ar­innar. Fund­ar­gerðir og önnur opin­ber skjöl verða aðgengi­leg á net­inu og rekj­an­leg eftir inni­haldi.

Menningar-, íþrótta- og tómstundamál

Safn Nínu Tryggva­dóttur verður opnað.

Meiri­hlut­inn ætlar að klára bolta­hús í Graf­ar­vogi. Sundlaug í Úlf­arsár­dal verður klárað. Lokið verður við velli í Árbænum og Víkinni og einnig verður lokið við fjöl­nota knatt­hús og bolta­hús í Mjódd.

Stjórnkerfi

Fagráðum og nefndum borg­ar­innar verður fækkað.

Mann­réttinda­ráð og stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráð verða sam­einuð í nýtt mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráð.

Menn­ingar- og ferða­mála­ráð og íþrótta- og tóm­stunda­ráð verða sam­einuð í menn­ingar-, íþrótta og tóm­stunda­ráð. Ferða­málin munu heyra undir borg­ar­ráð, líkt og atvinnu­þróun og atvinnu­mál.

Lofts­lags­mál, loft­gæði, úrgangs­mál, sorp­hirða, mál­efni grænna svæða og umhirða, ásamt mál­efnum heil­brigð­is­nefndar munu heyra undir nýtt umhverfis- og heil­brigð­is­mál. Núver­andi umhverfis- og skipu­lags­mál fær nýtt heiti og verður fram­vegis skipu­lags- og sam­göngu­ráð.

Kosningu í hverf­is­ráð verður frestað til ára­móta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár