Áfram fleiri sem keyra oftast til vinnu en helst myndu kjósa

Hlutfall þeirra sem keyrðu oft­ast í vinn­una í júní­mán­uði jókst á þessu ári miðað við síð­asta ár, sam­kvæmt nýrri ferða­venjukönnun frá Maskínu. Borg­ar­full­trúar túlk­uðu nið­ur­stöð­urnar hver með sínu nefi á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs á mið­viku­dag.

Fleiri íbúar á höfuðborgarsvæðinu sögðust keyra til vinnu í júní 2021 en þegar spurt var að því sama í júní árið 2020.
Fleiri íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sögð­ust keyra til vinnu í júní 2021 en þegar spurt var að því sama í júní árið 2020. Mynd: Benedetta Taddei/Pexels

Samkvæmt nýrri könnun um ferða­venjur meðal fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru sem fyrr lang­flestir sem ferð­ast oft­ast með einka­bíl til og frá vinnu, en stór hluti þeirra sem oft­ast aka væri þó eftir sem áður frekar til í að ferða til vinnu með ein­hverjum öðrum hætti, sér í lagi fót­gang­andi eða hjólandi.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar leiða í ljós að 74,7 pró­sent íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fara oft­ast á einka­bíl í vinn­una, fjórum pró­sentum til við­bótar er oft­ast skutlað í vinn­una, 6,6 pró­sent fara á hjóli, 8,2 pró­sent ganga og fjögur pró­sent segj­ast oft­ast fara með strætó.[links]

Hlutfall þeirra sem sögð­ust oft­ast aka í vinn­una stígur á milli á ára, en í júní í fyrra mæld­ist það 63,3 pró­sent sem var umtals­verð lækkun frá því í ágúst 2019, þegar 71,6 pró­sent svar­enda sögð­ust oft­ast keyra á sínum einka­bíl til vinnu.

Hlutfall þeirra sem sögð­ust helst vilja keyra í vinn­una nam svo 46,3 pró­sentum, sem er einnig aukn­ing frá fyrra ári og raunar tölu­verð, en í könnun sem gerð var í júní í fyrra nam hlut­fallið ein­ungis 35,3 pró­sentum. 18 pró­sent segj­ast nú helst vilja ganga til vinnu, 17,8 pró­sent segj­ast helst vilja hjóla, 8,8 pró­sent segj­ast helst vilja taka strætó og 3,1 pró­sent segj­ast helst vilja fara á raf­hlaupa­hjóli.

Meirihlutinn segir borgina þurfa að hlusta á bílstjóra sem kjósi aðra ferðamáta

Skoð­ana­könn­unin, sem fram­kvæmd var af Maskínu í júní­mán­uði var kynnt á fundi í skipu­lags- og sam­göngu­ráði borg­ar­innar í gær og óhætt er að segja að nið­ur­stöð­urnar hafi verið túlk­aðar á ýmsan máta, sam­kvæmt bók­unum kjör­inna full­trúa á fund­inum.

Full­trúar Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata, sem mynda meiri­hluta borg­ar­stjórnar, sögðu að líkt og und­an­farin ár væru „miklu fleiri sem ferð­ast með bíl heldur en þau sem vilja helst ferð­ast með bíl“ og bentu á að ríf­lega helm­ingur aðspurðra myndi velja það sem fyrsta kost að ferð­ast með öðrum hætti en bíl til og frá vinnu.

„Heil 40% þeirra sem fara oft­ast til vinnu með bíl myndu helst vilja nýta annan far­ar­máta. Það eru mik­il­væg skila­boð sem borgin þarf að hlusta á,“ sögðu full­trúar meiri­hlut­ans, þau Pawel Bartoszek, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, Hjálmar Sveins­son og Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir.

[adspot]

Fram­setn­ing nið­ur­staðn­anna frá Maskínu og túlkun meiri­hlut­ans á þeim féll sumum borg­ar­full­trúum þó ekki vel að skapi, en í plagg­inu sem kynnt var á fund­inum voru nið­ur­stöð­urnar settar fram með þeim hætti að úr þeim mátti lesa fyrsta, annað og þriðja val þátt­tak­enda í könn­unn­inni hvað varðar ferða­máta, sem ætla má að sé hugsað til þess að end­ur­spegla það að margir fari t.d. stundum á hjóli til og frá vinnu þrátt fyrir að fara ef til vill oft­ast á bíl.

Vigdís, útúrsnúningar og vitleysisgangur

Vigdís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins og áheyrn­ar­full­trúi í ráð­inu lét gagn­bóka að meiri­hlut­inn væri með „útúr­snún­inga og vit­leys­is­gang“ og lagði áherslu á að tæp 80 pró­sent Reyk­vík­inga not­uðu „fjöl­skyldu­bíl­inn“ til að kom­ast til og frá vinnu.

„Að pína fólk í könnun til að svara því í öðru og þriðja lagi hvernig það vilji ferð­ast ef fjöl­skyldu­bíll­inn væri ekki til staðar skekkja stað­reyndir í kollum meiri­hlut­ans og nota þau þær afleiddu upp­lýs­ingar til að draga úr vægi fjöl­skyldu­bíls­ins,“ bók­aði borg­ar­full­trú­inn og sagði svo í annarri bókun að fólk ein­fald­lega verði að „sinna dag­legu lífi á bílum“.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í ráð­inu sögðu það vekja athygli að hlut­deild einka­bíls­ins færi vax­andi á milli ára og vöktu athygli á því að hlut­fall ferða með strætó hefði ekki verið lægra í fjögur ár, sam­kvæmt mæl­ingu Maskínu, á meðan að hlut­fall hjól­reiða væri hátt og raf­magns­hlaupa­hjól væru að koma sterk inn, en spurt var um þau sér­stak­lega í fyrsta sinn í þess­ari könnun Maskínu.

„Bættir sam­göngu­inn­viðir auka frelsi fólks til að velja sér far­ar­máta og er mik­il­vægt að farið verði í víð­tækar úrbætur í sam­göngum fyrir alla í Reykja­vík,“ sagði í bókun full­trúa flokks­ins, sem eru þau Eyþór Arnalds, Marta Guð­jóns­dóttir og Katrín Atla­dóttir.

Kolbrún Bald­urs­dóttir áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins í ráð­inu bók­aði svo að könn­unin sýndi að fleiri en 80 pró­sent Íslend­inga ferð­uð­ust á bíl í vinnu.. „Hjól sem sam­göngu­tæki eru greini­lega ekki eins vin­sæl og halda mætti,“ bók­aði Kolbrún, sem segir ekki að sjá að „ferða­breyt­ingar séu í aðsigi“.

Könnunin sem um ræðir var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram á net­inu dag­ana 3. til 30. júní 2021 og voru svar­endur 1.571 tals­ins úr röðum vinn­andi fólks af öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár