Segir engan ómissandi í pólitík – en það sé enn verk að vinna í borginni

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri seg­ist ætla að gera það upp við sig fljót­lega hvort hann bjóði sig fram í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en sé ekki enn kom­inn að nið­ur­stöðu.

„Það er eng­inn ómissandi í póli­tík, en það er enn þá verk að vinna,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í helg­ar­við­tali Frétta­blaðs­ins í dag. Hann seg­ist ætla að gera það upp við sig fljót­lega hvort hann haldi áfram í borg­arpóli­tík­inni en segir að hann sé ekki kom­inn að nið­ur­stöðu.

Hann segir jafn­framt að honum finn­ist mik­il­vægt að sjá hvernig stórum málum reiðir af í sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar og hvernig málum vindur fram hjá öðrum flokkum í borg­inni.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er því miður þver­k­lof­inn og ekki treystandi,“ segir hann. „Ef þú hefðir spurt mig í vor þá hefði ég lík­lega sagst vera að hætta. En ég ákvað að bíða með slíkar ákvarð­anir.“

„Að sumu leyti finnst mér ég enn vera í miðju verki. Við náðum tíma­móta­samn­ingum í sam­göngu­málum sem varða Borg­ar­lín­una og hluta Miklu­brautar og Sæbrautar í stokk. Þetta eru risa­verk­efni og mikil lífs­gæða­mál, en þar fyrir utan má nefna Sunda­braut sem er komin í upp­byggi­legan far­veg. Ekkert af þessu er hins vegar komið í fram­kvæmd og ein­hver hluti af mér vill sann­ar­lega sjá þetta til enda,“ segir borg­ar­stjór­inn við Frétta­blaðið.

Hugsaði um að hætta eftir skotárásina

Dagur segir að skotárásin í byrjun árs við heim­ili hans og eig­in­konu hans, Örnu Daggar Ein­ars­dóttur, hafi fengið mikið á þau. „Mín ósjálf­ráðu við­brögð voru þá; ég er hættur, þarna eru mörkin. Ég get ekki boðið fólk­inu mínu upp á þetta. Hér verð ég að draga línu í sand­inn.“

Í byrjun hafi þetta fyrst og fremst verið áfall. „Þegar á leið fann ég hvað þetta varp­aði miklum skugga yfir svo margt. Já, þetta sat í mér og lagð­ist á mig eins og mara.“

Útilokar ekki að einhvern tímann í landsmálin

Dagur segir í við­tali Frétta­blaðs­ins að hann ætli ekki að full­yrða að hann ætli aldrei í lands­málin. „Það hafa allt of margir brennt sig á því.“ Hann segir jafn­framt að borgin hafi alltaf togað meira í sig en lands­málin.

„Borg­ar­mál­efnin eru van­metin, en verk­efnin bæði stór og skemmti­leg. Við­fangs­efnin eru líka svo nálægt manni og fyrir vikið er svo auð­velt að brenna fyrir þeim. Krakk­arnir minna mig oft á þetta þegar við erum á ferð um borg­ina, en þá hef ég óvart tekið krók eða sveigt af leið til að skoða eitt­hvert upp­bygg­ing­ar­svæðið.“

Hann seg­ist hafa verið óvenju fljótur að hugsa sinn gang í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga þegar hann er spurður hvort þær hafi ekk­ert kitlað. „Það kemur dagur eftir þennan dag.“

Dagur hefur setið í borg­ar­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­fylk­ing­una. Hann hefur gegnt emb­ætti borg­ar­stjóra frá árinu 2014 en var áður borg­ar­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008. Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minni­hluta er kjör­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­skildum áður­nefndum 100 dög­um, en miklar svipt­ingar voru í borg­ar­stjórn á þessum árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­að­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár