Tillaga um niðurfellingu allra skólagjalda kolfelld í borgarráði

Tillaga sem Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi Vinstri grænna lagði fyrir borg­ar­ráð fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar var felld á fyrsta fundi nýskip­aðs borg­ar­ráðs. Áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins sagði til­lögu Vinstri grænna popúl­íska.

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna.
Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Tillaga Lífar Magneu­dóttur borg­ar­full­trúa Vinstri grænna, um að Reykja­vík­ur­borg hætti með öllu að inn­heimta skóla­gjöld, var felld á fundi borg­ar­ráðs síð­asta föstu­dag. Einungis full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins í borg­ar­ráði greiddi atkvæði með til­lög­unni, en full­trúar nýja borg­ar­stjórnar meiri­hlut­ans og Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði gegn henni.

Líf lagði til­lög­una fram á fundi borg­ar­ráðs 5. maí, en hún var ekki tekin til afgreiðslu fyrr en undir lok síð­ustu viku, á fyrsta fundi nýskip­aðs borg­ar­ráðs. Líf, sem nú er orðin áheyrn­ar­full­trúi í borg­ar­ráði, lagði til­lög­una fram á meðan að kosn­inga­bar­átt­unni stóð og það gagn­rýndi Kolbrún Bald­urs­dóttir, sem er áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins í borg­ar­ráði.

„Þessi til­laga Vinstri grænna er popúl­ísk til­laga og var sett fram korter fyrir kosn­ingar. Betra væri að styrkja þá sem eiga erfitt með að greiða,“ sagði í bókun Kol­brúnar á fundi borg­ar­ráðs. Hún sagði það „að auki sér­stakt að svona til­laga skuli koma frá full­trúa flokks sem setið hefur í meiri­hluta í fjögur ár“.

Í bókun sinni um málið sagði Líf Magneu­dóttir að sann­ar­lega hefðu leik­skóla­gjöld í Reykja­vík lækkað jafnt og þétt og væru með þeim lægstu í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög, „þökk sé skýrri stefnu Vinstri grænna“.

[adspot]

„Það á hins vegar að stíga skrefið til fulls og afnema með öllu gjald­töku fyrir grunn­menntun barna. Sam­fé­lags­leg og félags­leg áhrif þess að hætta að inn­heimta gjöld í mennta­kerf­inu; leik­skólum, grunn­skólum og frí­stunda­heim­ilum verða seint metin til fjár og eiga stjórn­völd ekki að mis­muna börnum vegna tekna for­eldra þeirra,“ sagði einnig í bókun Lífar um málið.

Markmiðið verðugt, segir meirihlutinn

Full­trúar meiri­hluta­flokk­anna fjög­urra, Sam­fylk­ing­ar­innar, Fram­sóknar, Pírata og Við­reisnar, bentu á að leik­skóla­gjöld væru með allra lægsta móti í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög og systk­ina­af­s­lætir væru „afar ríf­legir“ sem auð­veld­aði fjöl­skyldum í borg­inni að hafa börnin sín á leik­skóla án mik­ils til­kostn­aðar.

„Það er sann­ar­lega verð­ugt mark­mið að leik­skólar verði gjald­frjálsir en til þess þarf að for­gangs­raða því fjár­magni sem borgin hefur til leik­skóla­mála með öðrum hætti,“ sagði í bókun meiri­hlut­ans.

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sögðu að setja ætti aðra hluti í for­gang en að lækka gjöld á leik­skóla borg­ar­innar. Í stað þess væri brýnt að bæta þjón­ustu þeirra. „Stytta þarf biðlista, brúa þarf bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla og leysa þarf mönn­un­ar­vand­ann. Metnaður borg­ar­innar á að liggja í því að bjóða bestu leik­skóla­þjón­ust­una á sann­gjörnu verði – ekki að tryggja ódýr­ustu leik­skól­ana með verstu þjón­ust­una,“ sagði í bókun Hildar Björns­dóttur og Ragn­hildar Öldu M. Vil­hjálms­dóttur, sem sitja í borg­ar­ráði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Eina atkvæðið í borg­ar­ráði sem féll til­lög­unni í vil var svo sem áður segir frá full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins, Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur. „Fulltrúi Sós­í­alista styður heils­hugar þá til­lögu að borgin hætti að inn­heimta leik­skóla­gjöld. Öll menntun skal vera gjald­frjáls,“ sagði í bókun hennar.

Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar var breytt: Áður sagði að til­laga Lífar hefði verið hríð­felld, en rétt­ara er að segja að hún hafi verið kol­felld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár