Borgin setti 11,7 milljónir í kynningarblað um íbúðauppbyggingu

Það kost­aði Reykja­vík­ur­borg rúmar 11,7 millj­ónir króna að koma 64 blað­síðna kynn­ing­ar­blaði um íbúða­upp­bygg­ingu í borg­inni inn á rúm­lega 60 þús­und heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu undir lok októ­ber­mán­aðar.

Reykjavíkurborg hefur prentað og dreift svipuðu kynningarblaði árlega undanfarin ár.
Reykja­vík­ur­borg hefur prentað og dreift svip­uðu kynn­ing­ar­blaði árlega und­an­farin ár. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg varði rúmum 11,7 millj­ónum króna í útgáfu kynn­ing­ar­rits­ins Upp­bygg­ing íbúða í borg­inni, sem dreift var inn á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þann 26. októ­ber. Alls voru prentuð 60.500 ein­tök af kynn­ing­ar­blað­inu, sam­kvæmt svari borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Samkvæmt svörum borg­ar­innar nam beinn kostn­aður við útgáf­una vegna efn­is­vinnslu, umbrots, prent­unar og dreif­ingar alls 11.705.300 kr. fyrir utan virð­is­auka­skatt. Borgin hefur mörg und­an­farin ár dreift kynn­ing­ar­blaði af þessu tagi inn á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að koma því á fram­færi við íbúa hvernig borgin er að byggj­ast upp.

Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið Athygli ehf. fékk greiddar rúmar 3,7 millj­ónir króna fyrir vinnu við umsjón og rit­stjórn, efnis- og myndöflun, texta­skrif, upp­setn­ing­ar­vinnu með umbrots­manni, leið­rétt­ingar, frá­gang og fundi/sam­skipti við Reykja­vík­ur­borg og aðra.

Fyr­ir­tækið Ritform ehf. sá síðan um hönnun og umbrot kynn­ing­ar­blaðs­ins og fékk greitt fyrir það rúm­lega 1,6 millj­ónir króna.

Ísafold prent­smiðja sá um prentun á kynn­ing­ar­blað­inu, sem var 64 síður, og kost­aði prent­unin rúm­lega 3,8 millj­ónir króna.

Póst­dreif­ing sá síðan um dreif­ingu blaðs­ins inn á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, alls 60.089 heim­ili sem taka á móti fjöl­pósti. Reykja­vík­ur­borg greiddi rúmar 2,1 milljón króna fyrir dreif­ing­una.

Minnihluti gagnrýndi útgáfuna og spurði um kostnað

Kynn­ing­ar­blaðið var gefið út eins og síð­ustu ár í tengslum við árvissan kynn­ing­ar­fund Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra um upp­bygg­ingu íbúða í Reykja­vík, sem hald­inn var föstu­dag­inn 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Í kynn­ing­ar­blað­inu er fund­ur­inn aug­lýstur og hann kall­aður „mikil veisla fyrir þá sem elska stað­reyndir og vilja vita hvað er í píp­unum í upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í Reykja­vík.“

[adspot]

Rétt eins og útgáfa kynn­ing­ar­blaðs af þessu tagi hefur verið árviss við­burður hjá borg­ar­yf­ir­völdum hefur það að sama skapi verið árviss við­burður að minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn gagn­rýni útgáf­una og leggi fram fyr­ir­spurnir um kostnað við prentun og dreif­ingu kynn­ing­ar­blaðs­ins.

Borg­ar­ráðs­full­trúar bæði Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins spurðu þannig um kostnað við útgáfu kynn­ing­ar­blaðs­ins á fundi borg­ar­ráðs undir lok októ­ber og hafa vænt­an­lega fengið svar sitt á borg­ar­ráðs­fundi, sem fram fór fyrr í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár