Stór hluti bílstjóra væri til í að breyta ferðavenjum sínum

Lang­flestir keyra til og frá vinnu á sínum einka­bíl á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þrátt fyrir að þeim fari fækk­andi á milli ára. Tæpur helm­ingur þeirra sem keyra væru til í að ferð­ast með öðrum hætti til og frá vinnu, sam­kvæmt nýrri ferða­venjukönnun frá Maskínu.

Þeim sem fara akandi í vinnuna fækkar á milli kannana, en í júní sögðust 63,3 prósent svarenda oftast fara keyrandi á einkabíl og 8 prósent sögðu að þeim væri skutlað í vinnuna.
Þeim sem fara akandi í vinn­una fækkar á milli kann­ana, en í júní sögð­ust 63,3 pró­sent svar­enda oft­ast fara keyr­andi á einka­bíl og 8 pró­sent sögðu að þeim væri skutlað í vinn­una. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Tæpur helm­ingur þeirra sem keyrðu jafnan á einka­bíl í vinn­una innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í júní­mán­uði hefðu frekar verið til í að ferð­ast til vinnu með ein­hverjum öðrum hætti. Færri óku til vinnu en síð­asta sumar, en fleiri hjól­uðu. Þetta er á meðal þess sem lesa má úr nið­ur­stöðum nýbirtrar könn­unar Maskínu á ferða­venjum vinn­andi fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Könnunin var gerð í lok júní, en Maskína lagði sömu spurn­ingar einnig fyrir í ágúst í fyrra og aftur í febr­úar á þessu ári og fjall­aði um nið­ur­stöð­urnar á vef sínum í vik­unni.

Þeim sem fara akandi í vinn­una fækkar á milli kann­ana, en í júní sögð­ust 63,3 pró­sent svar­enda oft­ast fara keyr­andi á einka­bíl og 8 pró­sent sögðu að þeim væri skutlað í vinn­una. Í ágúst í fyrra sögð­ust 71,7 pró­sent aðspurðra oft­ast keyra einka­bíl til og frá vinnu og 5,2 pró­sentum var oft­ast skutlað.

Hlutfall þeirra sem segj­ast fara hjólandi í vinn­una fer vax­andi, en 10,2 pró­sent sögð­ust oft­ast hjóla til og frá vinnu í júní, sam­an­borið við 6,7 pró­sent í ágúst í fyrra. Hlut­fallið fór reyndar niður í 4,4 pró­sent þegar spurt var í febr­úar. Rúm 10 pró­sent aðspurðra segj­ast oft­ast ganga til og frá vinnu og hefur það hlut­fall hald­ist nokkuð stöðugt á milli kann­ana, var 9,1 pró­sent í ágúst í fyrra en 10,7 pró­sent í febr­úar síð­ast­liðnum.

Rúm sjö pró­sent aðspurðra sögð­ust oft­ast taka strætó til og frá vinnu í júní og hefur það hlut­fall vaxið lít­il­lega á milli kann­ana Maskínu.

Flestir segjast vilja keyra, en þeim fer fækkandi

Í öllum þremur könn­unum Maskínu sem gerðar hafa verið hefur það að fara á einka­bíl sem bíl­stjóri verið sá far­ar­máti sem fólk vildi helst nota til að kom­ast til og frá vinnu. En hlut­fall þeirra sem helst myndu vilja keyra lækkar og er í nýj­ustu könn­un­inni ein­ungis 35,3 pró­sent. Til við­bótar væru 4,5 pró­sent aðspurðra helst til í að fá far með einka­bíl í vinn­una.

Af þeim sem í sumar sögð­ust oft­ast keyra til og frá vinnu voru á milli 50-51 pró­sent sem sögð­ust vilja ferð­ast oft­ast á þann hátt, en rúm­lega 21 pró­sent bíl­stjóra væru helst til í að ferð­ast á reið­hjóli, tæp­lega 14 pró­sent fót­gang­andi og um 6 pró­sent væru frekar til í að nýta strætó.

Samkvæmt könn­un­inni væri rúmur fjórð­ungur allra á vinnu­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til í að ferð­ast á reið­hjóli, eða 26,7 pró­sent, sem er langt umfram þann fjölda sem sagð­ist oft­ast hjóla til og frá vinnu. Tæp 20 pró­sent segj­ast svo helst vilja labba.

Yngra fólk vill síður keyra til og frá vinnu

Þegar óska­ferða­máti fólks til og frá vinnu er skoð­aður með til­liti til ald­urs svar­enda kemur í ljós að þeir að því eldri sem svar­endur eru, þeim mun lík­legri eru þeir til að vilja helst ferð­ast á einka­bíl sem bíl­stjórar. Af íbúum sex­tíu ára og eldri vilja rúm 55 pró­sent helst ferð­ast á einka­bíl og er það eini ald­urs­hóp­ur­inn þar sem meiri­hluti svar­enda kýs helst einka­bíl­inn.

Lægst er hlut­fallið hjá þeim yngstu, en ein­ungis rúm 28 pró­sent íbúa sem eru á aldr­inum 18-29 ára segj­ast helst vilja keyra til og frá vinnu, 31,7 pró­sent þeirra sem eru fer­tugs­aldri, 34,2 pró­sent íbúa á fimm­tugs­aldri og 42,2 pró­sent þeirra sem eru á sex­tugs­aldri. Tekið skal fram að sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum er þó ekki töl­fræði­lega mark­tækur munur á milli ald­urs­hópa hvað þetta varðar.

Spurn­ing­arnar voru ein­ungis lagðar fyrir íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem eru á vinnu­mark­aði, 18 ára og eldri. Svar­endur í öllum mæl­ing­unum þremur koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Nýjasta mæl­ingin fór fram dag­ana 19. til 26. júní 2020 og voru svar­endur 397. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár