Sósíalistaflokkurinn mun styðja valin mál í borgarstjórn

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi og Daníel Örn Arn­ars­son vara­borg­ar­full­trúi hafa gefið út yfir­lýs­ingu þess efnis að þau muni styðja valin mál í borg­ar­stjórn án til­lits til þess hvaða flokkar koma sér saman um meiri­hluta­sam­starf.

Sanna Magdalena Mörtudóttir og Daníel Örn Arnarsson
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir og Daníel Örn Arn­ars­son Mynd: Alda Lóa Leifsdóttir

Sós­í­alista­flokk­ur­innm mun styðja ákveðin mál í borg­ar­stjórn, þau mál sem flokk­ur­inn setti á odd­inn í kosn­inga­bar­átt­unni, án til­lits til þess hvaða flokkar koma sér saman um meiri­hluta­sam­starf.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef­síðu Sós­í­alista­flokks­ins í nafni Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur borg­ar­full­trúa og Daníels Arnar Arn­ars­sonar vara­borg­ar­full­trúa flokks­ins.

[links]Meðal þeirra mála er að leigj­endur og fólk á biðlista eftir félags­legum íbúðum verði skipað í stjórn Félags­bú­staða, að upp­komin fóst­ur­heim­ila­börn verði skipuð í barna­vernd­ar­nefnd, að strætófar­þegar verði skip­aðir í stjórn Strætó bs og not­endur þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar verði með beinum hætti settir yfir mótun þjón­ust­unnar og upp­bygg­ingu borg­ar­innar. „Gott sam­fé­lag verður aðeins byggt upp af kröfum og vænt­ingum fólks­ins sem upp­lifir órétt­læti og ágalla núver­andi kerfa,“ segir í frétt­inni.

Enn fremur muni þau styðja að Reykja­vík­ur­borg stofni sjálf bygg­inga­fé­lag og byggi ódýrt og öruggt hús­næði fyrir fólk þar til byrðum hús­næð­iskrepp­unnar verður aflétt af þeim sem síst geta borið hana; lág­launa­fólki, fátæku eft­ir­launa­fólki, öryrkjum, ungu fólki, inn­flytj­endum og öðru valda­lausu fólki.

„Að lág­marks­laun hjá stofn­unum og fyr­ir­tækjum Reykja­vík­ur­borgar verði strax hækkuð í 400 þús­und krónur á mán­uði og að stofn­unum og fyr­ir­tækjum Reykja­vík­ur­borgar verði bannað að kaupa vöru og þjón­ustu af fyr­ir­tækjum sem greiða sínu lægst laun­aða fólki lægri laun.

Að öll útvistun hjá Reykja­vík­ur­borg og stofn­unum hennar og fyr­ir­tækjum sem hún á hlut í verði hætt. Allt starfs­fólk skal ráðið til starfa af þeim stofn­unum og fyr­ir­tækjum þar sem það sinnir vinnu sinni og með öllum rétt­indum og kjörum sem fylgir fast­ráðn­ingu.

Að unnið skuli kerf­is­bundið gegn stétta­skipt­ingu í grunn­skólum, allar greiðslur nem­enda fyrir náms­gögn, mat eða tóm­stundir aflagðar og þjón­usta skól­anna miðuð við þau börn sem minnst stuðn­ings njóta heima.

Að almanna­sam­göngur í borg­inni verði byggðar upp af kröfum þeirra sem ferð­ast með strætó og að skipað verði fjöl­mennt ráð strætófar­þega til að móta fram­tíð­ar­stefnu fyrir strætó og almanna­sam­göngur í borg­inni og nágranna­byggðum.

Að öllu sam­kurli við lóða­brask­ara, verk­taka og einka­rekin leigu­fé­lög varð­andi skipu­lags­mál verði hætt og að það verði stefna borg­ar­innar að hrekja gróða­fyr­ir­tæki frá braski með íbúð­ar­hús­næði,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár