Meirihlutaviðræður hefjast milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi

Nýr meiri­hluti verður mynd­aður í Kópavogi eftir and­stöðu þriggja bæj­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks við að vinna með BF/Viðreisn.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Ármann Kr. Ólafsson, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi, hefur til­kynnt um að hann og Birkir Jón Jónsson, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu, hafi ákveðið að hefja meiri­hluta­við­ræður um myndun nýs meiri­hluta í Kópavogi.

Sjálf­stæð­is­menn voru í meiri­hluta á síð­ast­liðnu kjör­tíma­bili með Bjartri fram­tíð. Sá flokkur bauð nú fram með Viðreisn undir merkjum BF/Við­reisnar, en odd­vit­inn var sá sami, Theodóra Þor­steins­dóttir.

Talið var nær öruggt að flokk­arnir myndu end­ur­nýja sam­starf sitt ef mögu­legt væri og var vilji til þess hjá odd­vitum þeirra eftir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í lok maí. Í þeim fengu Sjálf­stæð­is­menn fimm borg­ar­full­trúa kjörna en BF/Viðreisn tvo, sem dugði fyrir rúmum meiri­hluta í ell­efu manna bæj­ar­stjórn Kópavogs.

Þrír bæj­ar­full­trúar úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks lýstu hins vegar yfir and­stöðu við að starfa með BF/Viðreisn. Theodóra sagði við Morg­un­út­varp Rásar 2 í gær­morgun að það væru per­sónur sem væru að flækj­ast fyrir þeim, ekki mál­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár