Verðandi meirihluti fékk færri atkvæði en verðandi minnihluti

Þeir fjórir flokkar sem eru að mynda meiri­hluta í Reykja­vík fengu 700 færri atkvæði en þeir flokkar sem verða að öllum lík­indum í minni­hluta. Þeir fengu 45,2 pró­sent allra greiddra atkvæða.

Þeir fjórir flokkar sem nú ræða myndun nýs meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fengu sam­tals 27.328 atkvæði í kosn­ing­unum um síð­ustu helgi. Þeir eru Sam­fylk­ing, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn.

Verðandi minni­hluti, sem mun sam­an­standa af Sjálf­stæð­is­flokki, Sós­í­alista­flokki Íslands, Mið­flokki og Flokki fólks­ins fékk hins vegar 28.028.

Alls kusu 60.422 af þeim 90.135 sem voru á kjör­skrá í kosn­ing­unum. Það þýðir að kjör­sókn var 67 pró­sent. Alls kusu 5.066 því önnur fram­boð en þau sem komust inn, eða skil­uðu auðu. Af þeim átta fram­boðum sem fengu atkvæði en komust ekki inn í borg­ar­stjórn fékk Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn flest atkvæði, eða 1.870 tals­ins. Fæst atkvæði fengu ann­ars vegar Íslenska þjóð­fylk­ingin (125 atkvæði) og hins vegar Frels­is­flokk­ur­inn (142 atkvæði).

Því fóru 5.766 fleiri atkvæði til flokka sem verða lík­lega í minni­hluta, náðu ekki inn eða voru auð en til þess meiri­hluta sem er í mótun.

Staðan breytist ef Sósíalistaflokkur er klofinn frá

Verðandi minni­hluti er þó ekki einn sam­stæður hópur, og hefði aldrei getað myndað meiri­hluta saman af tveimur ástæðum: Sós­í­alista­flokk­ur­inn neitar að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum og Sós­í­alista­flokk­ur­inn ætlar ekki að taka þátt í meiri­hluta­sam­starfi yfir höfuð.

Ef Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem fékk 3.758 atkvæði, er aðskil­inn frá, og lát­inn standa sér þar sem hann ætlar sér ekki að vinna með neinum flokkum, þá eru hinir þrír flokk­arnir í vænt­an­legum minni­hluta með 24.270 atkvæði. Í ljósi þess að Viðreisn taldi sig eiga meira sam­eig­in­legt með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri grænum en Sjálf­stæð­is­flokki, Flokki fólks­ins og Mið­flokki þá þá er sú blokk sem vinnur að myndun meiri­hluta stærri en sú oft­ast var nefnd sem næst lík­leg­asti mögu­leik­inn í stöð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár