Yfirkjörstjórn í Reykjavík segja sýslumann hafa gert mistök

Í bréfi til Þórólfs Hall­dórs­sonar sýslu­manns kemur fram að hann hafi gert mis­tök og að þau þurfi að leið­rétta.

Yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur sakar Sýslu­mann­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Þórólf Hall­dórs­son, um mis­tök við með­ferð kæru sem barst vegna vænt­an­legra borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Kemur þetta fram í bréfi yfir­kjör­stjórnar til sýslu­manns.

RÚV greindi frá þessu í gær­kvöldi, og er bréfið birt á vef RÚV.

Forsaga máls­ins er sú, að Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í Reykja­vík, sendi in kæru til sýslu­manns 8. maí, þar sem fundið er að því að Frels­is­flokk­ur­inn hafi fengið lista­bók­stafnum Þ úthlutað. Staf­ur­inn var áður lista­bók­stafur Pírata, en þeir skiptu yfir í P fyrir kosn­ing­arnar 2016.

Í umfjöllun RÚV segir að Dóra Björt hafi fundið að þessu, meðal ann­ars þar sem þetta gæti valdið rugl­ingi og leitt til þess að fólk myndi greiða röngum flokki atkvæði sitt.

Þá segir enn fremur í umfjöllun RÚV að sýslu­maður hafi skipað nefnd þriggja lög­manna til að fjalla um kæruna, eins og kveðið er á um í lögum um kosn­ingar til sveit­ar­stjórna. Tveimur dögum síðar, 11. maí, óskaði nefndin eftir umsögn yfir­kjör­stjórn­ar­innar í Reykja­vík sem svar­aði með bréfi 16. maí.

Telur yfir­kjör­stjórnin, að skipan nefnd­ar­innar hafi verið mis­tök og að ákvarð­anir kjör­stjórna séu ekki kær­an­legar. Er vísað til dóma Hæsta­réttar, og bent á að kæra þurfi fram­kvæmd kosn­inga, og þá til­tekna hluta þeirra, en ekki ein­staka ákvarð­anir kjör­stjórna.

Í bréf­inu segir meðal ann­ars: „Með vísan til alls þess sem greinir að framan telur yfir­kjör­stjórn það yfir allan vafa hafið að sýslu­manni hafa orðið á mis­tök við með­ferð kærunnar frá önd­verðu.“

Þá segir enn fremur að sýslu­maður hafi ekki gætt að skýrum ákvæðum laga og að honum beri að leið­rétta mis­tökin með því að aft­ur­kalla skipun nefnd­ar­innar og vísa kærunni frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár