Rögnunefndin: Hvassahraun besti kosturinn fyrir flugvöll í Reykjavík

Ragna Árnadóttir, formaður stýrihópsins.
Ragna Árna­dóttir, for­maður stýri­hóps­ins. Mynd: Birgir Þór

Rögnu­nefndin, stýri­hópur rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar og Icelandair Group sem hafði það mark­mið að kanna og meta nokkra staði fyrir nýjan inn­an­lands­flug­völl á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, telur að hag­kvæm­ast sé að byggja nýjan flug­völl í Hvassa­hrauni, sem er á mörkum Hafn­ar­fjarðar og Voga. Nefndin leggur til að flug­vall­ar­skil­yrði í Hvassa­hrauni verði full­könnuð með nauð­syn­legum rann­sóknum og að sam­hliða verði náð sam­komu­lagi um rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýri verði tryggt á meðan að nauð­syn­legur und­ir­bún­ingur og, eftir atvikum, fram­kvæmdir fara fram.

Verði farið eftir þessum til­mælum er ljóst að inn­an­lands­flug mun hverfa úr Vatns­mýr­inni.

Í stýri­hópnum sitja Ragna Árna­dóttir for­maður, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir fyrir hönd rík­is­ins, Matthías Svein­björns­son fyrir hönd Icelandair og Dagur B. Egg­erts­son fyrir Reykja­vík­ur­borg. Verk­efn­is­stjóri er Þor­steinn R. Her­manns­son hjá Mannviti.

Kostar 22 milljarða og er ódýrasti kosturinn

Könnun stýri­hóps­ins beind­ist að fjórum nýjum flug­vall­ar­stæðum. Þau eru Bessa­staða­nes, Hólms­heiði, Hvassa­hraun og Löngu­sker. Þá skoð­aði stýri­hóp­ur­inn einnig breyttar útfærslur á legu flug­brauta í Vatns­mýri. Aflað var marg­vís­legra gagna sem ekki hefur verið aflað áður, meðal ann­ars um veð­ur­far, rými fyrir flug­völl, flug­tækni, umhverf­is­mál og stofn­kostnað.

Í nið­ur­stöðum hóps­ins segir meðal ann­ars að not­hæf­is­stuð­ull í Hvassa­hrauni sé 96,4 til 97,2 pró­sent fyrir tvær flug­brautir og 99,6 pró­sent fyrir þrjár flug­brautir. „Áætlaður stofn­kostn­aður flug­vallar og bygg­inga sem tækju við allri starf­semi Reykja­vík­ur­flug­vallar er um 22 millj­arðar króna sem er jafn­framt ódýr­asti kost­ur­inn.“

Í máli Þor­steins á blaða­manna­fundi um málið sem nú stendur yfir kom fram að nefndin fékk slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að kanna lengd sjúkra­flutn­inga frá Hvassa­hrauni. Nið­ur­staðan var sú að flutn­ings­tími lengd­ist um átta og hálfa til tólf og hálfa mín­útu, á spít­al­ann í Fossvogi og við Hring­braut.

Breytingar í Vatnsmýri jafngilda að byggja nýjan flugvöll

Í skýrsl­unni kemur fram að Hólms­heiði komi lakar út en aðrir kostir að því er varðar nálægð við fjöll, veð­ur­far og hæð yfir sjáv­ar­máli. „Á Bessa­staða­nesi og Löngu­skerjum þarf að taka veiga­mikla umhverf­is­þætti með í reikn­ing­inn þegar fjallað er um þau svæði sem mögu­leg flug­vall­ar­stæði auk þess sem Löngu­sker er dýr­asti kost­ur­inn. Breyttar útfærslur í Vatns­mýr­inni hafa mikil áhrif á umhverfið ásamt því að vera kostn­að­ar­samar og jafn­gilda því að byggja nýjan flug­völl. Á Bessa­staða­nesi er rými til staðar fyrir flug­brautir og þá flug­starf­semi sem nú er í Vatns­mýri en þró­un­ar­mögu­leikar tak­mark­aðir og sömu sögu má segja á Löngu­skerjum, en þar yrðu flug­brautir ekki lengdar og athafna­svæði stækkað nema með dýrum land­fyll­ingum.“

Þarf að tryggja rekstur Reykjavíkurflugvallar í nánustu framtíð

Stýrinefndin legur til að aðilar sam­komu­lags­ins komi sér nú saman um næstu skref í mál­inu. Þau séu tvö. Annars vegar að flug­vall­ar­skil­yrði í Hvassa­hrauni verði full­könnuð næsta vetur með nauð­syn­legum rann­sóknum ásamt því að kort­leggja rekstr­ar­skil­yrði mis­mun­andi útfærslu og hönn­unar. Náist sam­staða um það leggur stýri­hóp­ur­inn til að stofnað verði sam­eig­in­legt und­ir­bún­ings­fé­lag í þessu skyni.

Hins vegar að ná sam­komu­lagi um rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýri á meðan nauð­syn­legur und­ir­bún­ingur og eftir atvikum fram­kvæmdir fara fram. Að sama skapi þarf að eyða óvissu um fram­tíð æfinga, kennslu- og einka­flugs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár