Líkur aukast á því að Dagur verði áfram borgarstjóri

Ekki er sam­hljómur innan Við­reisnar um að það yrði krafa að Dagur B. Egg­erts­son yrði ekki áfram borg­ar­stjóri. Erf­ið­lega hefur gengið að finna hent­ugan kandídat og lík­urnar á því að Dagur sitji áfram aukast dag frá degi.

Dagur B. Eggertsson hefur verið borgarstjóri í Reykjavík frá árinu 2014.
Dagur B. Egg­erts­son hefur verið borg­ar­stjóri í Reykja­vík frá árinu 2014. Mynd: Bára Huld Beck

Líkur á því að Dagur B. Egg­erts­son verði áfram borg­ar­stjóri í Reykja­vík hafa auk­ist á und­an­förnum dögum. Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að á meðal lyk­il­fólks í Viðreisn, meðal ann­ars í stjórn flokks­ins, væri það ófrá­víkj­an­leg krafa að nýr borg­ar­stjóri yrði ráð­inn til að ný áferð yrði á meiri­hlut­anum.

[links]Síðar sama dag var til­kynnt að við­ræður um meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna myndu hefj­ast fimmtu­dag­inn 31. maí, eða degi síðar. Í við­tölum í kjöl­farið neit­uðu borg­ar­full­trúar Við­reisnar því að slík krafa hefði verið sett fram og ítrekað hefur verið sagt að við­ræður um verka­skipt­ingu fari ekki fram fyrr en búið sé að kom­ast að sam­komu­lagi um mál­efna­samn­ing. Stjórn Við­reisnar fékk ekki upp­lýs­ingar um að ákvörðun um að meiri­hluta­við­ræður yrðu hafnar áður en þær voru gerðar opin­berar. Þar er þó ekki and­staða við leið­ina sem farin var. Vert er að taka fram að í sam­þykktum flokks­ins er ekki kveðið beint á um slíkt sam­ráð.

[adspot]Heim­ildir Kjarnans herma að tón­inn í meiri­hluta­við­ræð­unum, þar sem tveir full­trúar frá hverjum flokki taka þátt, sé þannig að ekki sé and­staða við að Dagur verði áfram borg­ar­stjóri hjá þeim sem þátt í þeim taka. Gangi það eftir er lík­leg­ast að Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, verði for­seti borg­ar­stjórnar sem leið­togi næst stærsta flokks­ins í vænt­an­legu meiri­hluta­sam­starfi.

Ýmis nöfn nefnd

Hug­myndin um að ráða borg­ar­stjóra var til­komin vegna þess að ýmsir innan Við­reisnar vildu fá nýja áferð á meiri­hlut­ann til að ekki liti út sem svo að Viðreisn væri að bæt­ast við sem fjórða hjól undir vagni þess frá­far­andi, og komi þar með beint í stað Bjartrar fram­tíðar. Auk þess væri æski­legt að „fram­kvæmda­stjóri“ borg­ar­innar ynni jafnt fyrir alla flokka. Sá þarf hins vegar að búa yfir ein­hverjum öðrum kostum öðrum en að vera ekki Dagur B. Egg­erts­son, sem hefur 16 ára reynslu sem borg­ar­full­trúi og hefur verið í for­ystu borg­ar­innar frá árinu 2010.

Það hefur hins vegar gengið illa að finna kandídat í það starf. Ýmis nöfn voru nefnd til að byrja með. Gísli Marteinn Bald­urs­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks og sér­fræð­ingur um borg­ar­mál, var ítrekað nefndur en kom því fljótt áleiðis að hann hefði engan áhuga á starf­inu sem stendur. Þar af leið­andi fékk hann aldrei form­lega beiðni um að nafn hans yrði lagt fram. Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, er sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans heldur ekki jákvæð. Sögu­sagnir um að Halla Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, komi til greina eiga sér ekki fót­festu.

Þá hefur nöfnum tveggja frá­far­andi bæj­ar­stjóra verið kastað fram, þeirra Haraldar Líndals Har­alds­sonar og Eiríks Björg­vins­sonar. Haraldur var ráð­inn bæj­ar­stjóri í Hafn­ar­firði 2014 en nú er ljóst að Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í bænum, muni taka við því starfi. Eiríkur hefur verið fag­lega ráð­inn bæj­ar­stjóri frá árinu 2002, nú síð­ast í átta ár á Akureyri.

Margt gæti breyst

Formlegu við­ræð­urnar hófust, líkt og áður sagði, síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og ganga vel. Nær öruggt þykir að flokk­arnir fjórir nái saman um mál­efna­samn­ing og -áherslur. Í til­kynn­ingu sem send var út í síð­ustu viku sögðu odd­vitar þeirra að mark­miðið væri að „sam­starfs­sátt­máli nýs meiri­hluta liggi fyrir í góðum tíma fyrir fyrsta borg­ar­stjórn­ar­fund nýrrar borg­ar­stjórnar 19. júní nk.“

Stefnur flokk­anna fjög­urra liggja mjög vel saman í skipu­lags- og sam­göngu­málum og allir eru þeir til­búnir í miklar aðgerðir til að auka enn í upp­bygg­ingu hús­næðis í borg­inni til að tryggja fleiri borg­ar­búum hús­næði á kjörum sem þeir ráða við.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans mun Viðreisn fara fram á að stefna flokks­ins í atvinnu­mál­um, meðal ann­ars lækkun á fast­eigna­sköttum á fyr­ir­tæki, og í mennta­málum fái gott pláss í sátt­mála meiri­hlut­ans. Það þykir því lík­legt að Pawel Bartoszek, annar maður á lista Við­reisnar, muni verða yfir annað hvort umhverfis- og skipu­lags­ráði eða skóla- og frí­stunda­ráði borg­ar­innar. Auk þess kemur til greina að ráð borg­ar­innar verði stokkuð upp, mála­flokkar færðir til og þeim jafn­vel fækkað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár