Afþreyingarefni framtíðarinnar

Með auknum tækni­fram­förum kemur lík­ast til meiri frí­tími. Áhrifa­valdar eða sam­fé­lags­miðla­stjörnur á Íslandi njóta síauk­inna vin­sælda og eru í raun fjöl­miðlar hvert og eitt.

Eitt af því sem rík­is­stjórn Íslands, og flestar aðrar, ræða hvað helst um þessar mundir er fjórða iðn­bylt­ingin og hvernig sé best að und­ir­búa sam­fé­lögin fyrir ótrú­lega hraðar breyt­ingar. Heim­ur­inn breyt­ist og við með. Fjórða iðn­bylt­ingin er núna. Eitt af því sem tekur hröðum breyt­ingum er neysla á afþrey­ing­ar­efni.

[links]Þessi neysla hefur nú þegar tekið stakka­skiptum und­an­farna ára­tugi. Ennþá eru á lífi kyn­slóðir sem muna eftir því þegar tækni­leg afþrey­ing fólst ein­ungis í hlustun á útvarp. Síðar kom sjón­varpið, fyrst svart hvítt, síðar í lit og alla daga vik­unnar og núna ekki aðeins með ótelj­andi stöðvum í línu­legri dag­skrá heldur með efn­isveitum sem veita hverjum og einum aðgang að hverju því efni sem hentar þá stund­ina sam­stundis. Og nú hefur hver og einn að auki sitt eigið afþrey­ing­ar­tæki í lóf­anum allan sól­ar­hring­inn þar sem hægt er að nálg­ast bæði hágæða fram­leiðslu á afþrey­ing­ar­efni, heima­fram­leiðslu á miðlum á borð við Snapchat, Instagram og fleiri miðla, útvarps­efni og fræðslu hvers kyns. Mögu­leik­arnir eru end­lausir.

Helstu spá­menn og fram­tíð­ar­fræð­ingar gera ráð fyrir að með fækkun starfa vegna auk­innar tækni­væð­ingar muni vinnu­vikan stytt­ast í vest­rænum sam­fé­lögum. Og sam­hliða því munu þeir sem fram­leiða afþrey­ing­ar­efni til neyslu fyrir almenn­ing hafa úr enn meiri tíma að moða til að kepp­ast um.

Áhrifavaldarnir verða til

Hingað til hefur lítið verið um duldar aug­lýs­ingar í íslensku sjón­varpi eða efn­is­fram­leiðslu. Sjón­varps­efni hefur almennt ein­fald­lega inni­haldið hefð­bundin aug­lýs­inga­hlé og þannig aðgreint efn­is­inni­haldið skýr­lega frá aug­lýs­ingum. En nýjar miðl­un­ar­leiðir bjóða upp á nýja mögu­leika. Og íslensk ung­menni hafa nýtt sér tæki­færin.

Á Íslandi hafa svo­kall­aðir áhrifa­valdar farið fremstir í flokki við því sem er í raun ekk­ert annað en fram­leiðsla á afþrey­ing­ar­efni. Og margir þeirra lifa á því. Þau eru nokkuð mörg sem nú reyna að hasla sér völl á þessum miðlum, og tekst mis vel til.

Sólrún Diego komst eins og frægt er orðið með þrifatil­burði sína alla leið í ára­mótaskaupið og hefur þús­undir fylgj­enda. Hún á í ýmsu sam­starfi við mis­mun­andi fyr­ir­tækjum þar sem hún kynnir fyrir áhorf­endum sínum vörur, fatnað, heim­il­is­tæki, þrifn­aðar- og barna­vörur og svo mætti lengi telja. Guðrún Veiga, eða Gveiga eins og hún kallar sig, er önnur með þús­undir fylgj­enda sem sýnir raun­sæja mynd af lífi tveggja barna móður. RVK fit eru hópur kvenna sem deila áhuga á heil­brigðum lífs­stíl og hreyf­ingu og deila venjum sínum og dag­skrá með áhorf­endum. Alda Karen Hjalta­lín, sem er 23 ára, fyllti á dög­unum Eld­borg­ar­sal Hörpu á fyr­ir­lestri sínum Leynd­ar­málin mín, þar sem hún miðl­aði í raun jákvæðri sál­fræði sem hún hefur komið sér upp. Hún deilir „lifehack“ eða ráði dags­ins dag­lega á sínum miðli þar sem hún veitir áhorf­endum inn­blástur og ráð til að takast á við erf­ið­leika sem flestir nútíma sam­fé­lagi þurfa að takast á við.

Þau eru miklum mun fleiri áhrifa­vald­arnir, bæði karl­kyns og kven­kyns, sem hafa náð vin­sældum á síð­ustu árum.

Nær til nýrra kynslóða

Unga fólkið, sem les dag­blöðin minna en eldri kyn­slóðir og eyðir minni tíma yfir línu­legri dag­skrá sjón­varps­stöðv­anna, er aug­ljós mark­hópur í gegnum þessa miðla. Fyr­ir­tæki leita í auknum mæli í mark­aðs­setn­ing­ar­til­gangi til þess­ara sam­fé­lags­miðla­stjarna, sem fá gríð­ar­lega mikið áhorf, sér­stak­lega hjá yngri kyn­slóðum en sumir hjá áhorf­endum á öllum aldri.

Sérstök fyr­ir­tæki hafa þegar orðið til sem sér­hæfa sig í mark­aðs­setn­ingu með þessum hætti, það er að segja, tengja saman aug­lýsendur og áhrifa­valda. Má þar nefna fyr­ir­tækið Ghost­lamp, Zahara og Eylenda og gera má ráð fyrir að þeim eigi aðeins eftir að fjölga. Talið er að mark­aðs­setn­ing af þessu tagi hafi velt um 1,6 millj­örðum Banda­ríkja­dala árið 2016 sem jafn­gilda 167 millj­örðum króna.

Mark­aðs­stjóri í tækni­fyr­ir­tæki seg­ist aðspurður greiða 50 þús­und fyrir hvert til­efni þar sem vara fyr­ir­tæk­is­ins er nefnd af þeim áhrifa­völdum sem það starfar með. Alls um 150 til 200 þús­und krónur eftir atvikum. Þannig er ljóst að áhrifa­valdur þarf ekki að starfa með mjög mörgum fyr­ir­tækjum í hverjum mán­uði til að ná með­al­launum.

Jafn­væg­is­dans afþreyt­ingar og aug­lýs­inga

En málið er ekki svo ein­falt að hver sem er geti opnað sam­fé­lags­miðil sinn öllum og þar með farið að raka inn fjár­munum. Sem dæmi má nefna að til að vera áhrifa­valdur í augum fyr­ir­tæk­is­ins Ghost­lamp þarf við­kom­andi að vera með þús­und fylgj­endur á sam­fé­lags­miðlum.

Og dans­inn milli mark­aðs­setn­ingar og fram­leiðslu á áhuga­verðu afþrey­ing­ar­efni sem fær áhorf­endur til að velja það að halda áfram að horfa er list­grein. Of mikið af aug­lýs­ingum er lík­legt til að þreyta áhorf­endur, með sama hætti og of löng aug­lýs­inga­hlé í sjón­varpi eða vef­síður með of mörgum eða áber­andi aug­lýs­inga­borðum. Lyk­ill­inn virð­ist vera að gefa nægi­lega af sér á milli þess sem að hvers kyns vörur eru aug­lýstar. Sumir ein­fald­lega hafa það sem til þarf, aðrir ekki og upp­skriftin að vel­gengni á þessu miðlum mun aldrei liggja ljós fyrir og fer ein­fald­lega eftir per­sónu­leika hvers og eins.

Samfélagsábyrgð

Sam­fé­lags­miðla­stjörnur og vin­sældir þeirra hafa und­an­farin miss­eri rokið upp. Mikið af því sem þar má sjá er glans­mynd sem á sér litla stoð í raun­veru­leik­anum og sýnir mjög bjag­aða mynd af lífi hvers og eins. Áhrifin geta þannig verið nei­kvæð og hafa nú þegar verið tengd kvíða og þung­lyndi hjá ung­lingum.

Ábyrgð sam­fé­lags­miðla­stjarn­anna er þannig mikil. Ekki aðeins ber þeim að fylgja öllum lögum og reglum sem gilda um neyt­enda­vernd og aug­lýs­ingar, heldur einnig sam­fé­lags­leg. Sú ábyrgð og hvernig ber að umgang­ast hana er enn í mótun og gera má ráð fyrir að lagaum­hverfið muni slíp­ast til sam­hliða áfram­hald­andi hröðum tækni­legum breyt­ingum.

En það má vel segja að íslenskir áhrifa­valdar, konur í miklum meiri­hluta, séu á undan sinni sam­tíð og nú þegar byrj­aðar að nýta tæki­færin sem fjórða iðn­bylt­ingin og þannig auknir mögu­leikar á fram­leiðslu og hvers kyns sölu afþrey­ing­ar­efnis mun hafa í för með sér. Áhorf­end­urnir virð­ast vera til staðar og þeim fer fjölg­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár