Fjórða iðnbyltingin mun rita nýjan kafla í þróunarsöguna

Með miklum tækni­fram­förum síð­ustu ára­tugi hefur líf fólks breyst gríð­ar­lega og fyr­ir­séð er að sú þróun muni halda áfram á næst­unni. Kjarninn náði tali af Anne Marie Engtoft Larsen og ræddi áhrif fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar á sam­fé­lagið, menntun og störf.

Anne Marie Engtoft Larsen mun flytja erindi á ráðstefnunni Misstu ekki af framtíðinni – áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á vinnumarkað háskólamenntaðra sem fer fram í Hörpu.
Anne Marie Engtoft Larsen mun flytja erindi á ráð­stefn­unni Misstu ekki af fram­tíð­inni – áhrif fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar á vinnu­markað háskóla­mennt­aðra sem fer fram í Hörpu. Mynd: Úr einkasafni

Rætt hefur verið um og birtar fréttir þess efnis að sjálfs­af­greiðsla í búðum muni aukast til muna á næst­unni á Íslandi og ótt­ast margir að fólk muni missa störf sín í kjöl­farið og að þjón­usta muni dala. Margs konar breyt­ingar eru fyr­ir­séðar með auk­inni tækni og segir danski sér­fræð­ing­ur­inn Anne Marie Engtoft Larsen að mik­il­vægt sé að nýta tækninýj­ungar til góðs og til að bæta sam­skipti milli fólks, eyða ójöfn­uði og líta á þær fyrst og fremst sem tæki­færi.

Anne Marie mun flytja erindi á ráð­stefn­unni Misstu ekki af fram­tíð­inni – áhrif fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar á vinnu­markað háskóla­mennt­aðra sem mun fara fram á morgun á vegum Banda­lags háskóla­manna í Hörpu.

Hún leiðir verk­efnið „Fjórða iðn­bylt­ingin“ hjá Alþjóða­efna­hags­ráð­inu (World Economic Forum) ásamt teymi sínu. Hún er með meist­ara­próf, ann­ars vegar í þró­un­ar­stjórn og hins vegar í alþjóða­við­skiptum og stjórn­málum.

Breytingarnar munu hafa áhrif á allt lífið

[quote font="0" align="right“]Ég tel að fjórða iðn­bylt­ingin geti ritað nýjan kafla í þró­un­ar­sög­una sem yrði keyrð áfram af stór­feng­legum tækninýj­ungum á borð við gervi­greind, háþró­uðum vél­mennum, drónum, þrí­vídd­ar­prent­urum og sýnd­ar­veru­leika.[/quote]

Anne Marie segir að merkja megi gríð­ar­lega miklar sam­fé­lags­legar breyt­ingar í kjöl­far fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar. „Ég tel að fjórða iðn­bylt­ingin geti ritað nýjan kafla í þró­un­ar­sög­una sem yrði keyrð áfram af stór­feng­legum tækninýj­ungum á borð við gervi­greind, háþró­uðum vél­mennum, drónum, þrí­vídd­ar­prent­urum og sýnd­ar­veru­leika,“ segir hún og bætir við að þessar breyt­ingar séu á svo stórum skala að það sé óum­flýj­an­legt að þær hafi áhrif á iðn­greinar jafnt sem á dag­legt líf fólks. Frá umræðum um sjálf­keyr­andi bíla til hug­mynda um að með auk­inni líf­tækni geti menn orðið 120 ára eða áhrifa sam­fé­lags­miðla, til að mynda á skoð­anir fólks, sam­fé­lög og stjórn­mál. Að hennar mati munu þessar breyt­ingar hafa áhrif á allt lífið og á það hvaða augum við lítum mennsk­una.

Hún bendir á að tækni­fram­farir muni hafa mikil áhrif á sam­fé­lagið en nákvæm­lega hvernig sé undir okkur komið. „Við eigum það til að hugsa um iðn­bylt­ingar sem eitt­hvað sem breytir því hvernig við fram­leiðum hluti en í raun hafa þær mun meiri áhrif á okkur og líf okkar,“ segir hún. Anne Marie tekur sjón­varpið sem dæmi en það var hluti af annarri iðn­bylt­ing­unni. Hún bendir á að það hafi orðið svo mikið meira en fjölda­fram­leitt heim­il­is­tæki. Það hafi breytt skemmt­ana­brans­anum, sam­skiptum milli fólks og hvernig við hugsum um heim­inn. 

Nýta tækifærið til góðs

„Ég hef trú á því að tækni á borð við þrí­vídd­ar­prent­ara og sýnd­ar­veru­leika muni hafa svipuð áhrif og sjón­varpið á sam­fé­lag okkar,“ segir Anne Marie. Þrí­vídd­ar­prent­ar­inn muni gera alla að hönn­uðum, notkun hans draga úr auð­linda­nýt­ingu okkar en á sama tíma gæti hann hleypt milli­ríkja­verslun í upp­nám, með því að setja lág­launa­störf í hættu í þró­un­ar­lönd­unum. Sýnd­ar­veru­leiki geti hjálpað til við að þróa, auka sam­kennd, kennslu og sam­skipti milli fólks í mis­mun­andi sam­fé­lögum og löndum. Hins vegar myndi sýnd­ar­veru­leiki geta haft þau áhrif að frek­ari gjá mynd­að­ist milli fólks þegar það sekkur dýpra inn í hinn staf­ræna heim.

Hún telur að mann­kynið sé nú á ákveðnum kross­götum. „Það er mjög mik­il­vægt fyrir okkur að for­gangs­raða jákvæðum mann­legum gildum með þeim hætti að áhuga­verðar tækninýj­ungar séu þró­aðar og lag­aðar að sam­fé­lagi okkar,“ segir hún. Enn fremur bendir hún á að ef það verði ekki gert þá ótt­ist hún að vanda­mál sem við þekkjum nú þegar muni aukast til muna, til að mynda lofts­lags­breyt­ingar, póli­tískur og efna­hags­legur klofn­ingur þjóð­fé­lags­ins, dvín­andi traust til stofn­ana og sam­fé­laga. Hún segir að við eigum að nýta þetta tæki­færi í sög­unni til að móta sjálf­bæra fram­tíð.

Verkalýðsfélög leika lykilhlutverk

Mik­il­vægt er fyrir verka­lýðs­fé­lög og aðra hlut­að­eig­endur að vinna saman í að koma með nýja sýn á fram­tíð verka­lýðs­ins, að sögn Anne Marie. Mörgum störfum sé ógnað af sjálf­virkum vélum og segir hún að þá geti verið auð­velt fyrir marga að bregð­ast við með þeim hætti að minnka inn­leið­ingu vél­anna til að vernda auð­sköp­un­ar­módel 20. aldar.

[quote font="0" align="right“]Það er mjög mik­il­vægt fyrir að okkur að for­gangs­raða jákvæðum mann­legum gildum með þeim hætti að spenn­andi nýjar tækninýj­ungar séu þró­aðar og lag­aðar að sam­fé­lagi okkar.[/quote]

Anne Marie telur aftur á móti að þessar breyt­ingar ætti að nýta til góðs, m.a. með því að skapa betri störf fyrir fólk og takast á við þær krefj­andi áskor­anir sem mann­kynið stendur frammi fyrir í dag, eins og tekju­mis­mun, loft­lags­breyt­ingar og tví­skipt­ingu sam­fé­lags­ins. Hún segir að hvað verka­lýðs­fé­lögin varði, þá vilji hún sjá þau leika lyk­il­hlut­verk í þróun sam­fé­lags­legra ábyrgra hag­kerfa eða vinna með stjórn­völdum og iðn­aði til að skapa sýn um það hvernig stytta eigi vinnu­tíma án þess að minnka fram­leiðni.

Mis­mun­andi hug­myndir eru uppi um hversu mörg störf muni verða sjálf­virk, hverjar efna­hags­legar afleið­ingar verði og hvernig breyt­ing­arnar muni hafa áhrif á vöxt. Að mati Anne er ekki mik­il­væg­ast að und­ir­búa sig í sam­ræmi við ákveðna töl­fræði heldur að móta sam­fé­lagið á jákvæðan máta. „Við þurfum að minnsta kosti að búa okkur undir heim fram­tíð­ar­innar, sem verður feiki­lega ólíkur þeim sem við búum í núna, og þess vegna er mik­il­vægt að við verðum nógu sveigj­an­leg til að aðlaga hegðun okkar, hugs­un­ar­hátt og lífs­reglur til þess að geta umbreytt þess­ari sundr­ungu í afl til að gera sam­fé­lag­inu gott,“ segir hún.

Endurhugsa verður menntakerfið upp á nýtt

En er mennta­kerfið í stakk búið til að takast á við þessar breyt­ingar? Anne Marie segir að nauð­syn­legt sé að end­ur­hugsa kerfið allt upp á nýtt. Margir viti ekki hvað þeir muni haf­ast við eftir 30 ár ef þeir verða enn á vinnu­mark­aði eða hvers verði kraf­ist af þeim. Aftur á móti sé næsta víst að end­ur­menntun verði nauð­syn­leg til að öðl­ast nýja þekk­ingu. Hún segir að þetta muni eiga við um flesta og að við getum valið að líta á það sem byrði eða sem tæki­færi.

Þess vegna þurfi breyt­ingar í mennta­kerf­inu. Hún segir að einnig verði að finna leið til að hvetja fólk til áfram­hald­andi mennt­unar. „Þetta er einnig góð leið til að hjálpa fólki að nýta hæfi­leika sína og til að útrýma þrá­látu ójafn­rétti í tekjum sem við þurfum að takast á við með því að auka hreyf­an­leika í sam­fé­lag­inu,“ segir hún.

[quote font="0" align="right“]Þetta er mjög rót­tæk breyt­ing fyrir flest mennta­kerfi en samt sem áður nauð­syn­leg[/quote]

Alþjóða­efna­hags­ráðið birti skýrslu um fram­tíð starfa árið 2016 og í henni kom fram að mik­il­væg­asta kunn­áttan sem fólk mun búa yfir árið 2020 verði að geta leyst flókin vanda­mál, beita gagn­rýn­inni hugsun, vera skap­andi, kunna mannauðs­stjórnun og geta unnið með öðrum. Anne Marie segir að sam­kvæmt þessu sé ekki nóg að breyta náms­skrám heldur verði að end­ur­hugsa hvernig við lærum og eflum nem­endur til að verða sveigj­an­legri, vinna í sam­ein­ingu og meira skap­andi. „Þetta er mjög rót­tæk breyt­ing fyrir flest mennta­kerfi en samt sem áður nauð­syn­leg,“ bætir hún við.

Tækni er pólitísk

Sumir gætu ótt­ast tækn­ina og velt því fyrir sér hvort allar þessar tækninýj­ungar muni frekar skaða fólk en gera því gagn. Anne Marie seg­ist vera með­vituð um þetta. „Ég hef trú á því að fyrsta skrefið sé að opna á umræð­una og benda á að tækni sé póli­tísk. Ekki til hægri eða vinstri heldur á þann máta að hún á það til að verða hlut­dræg og undir sér­stöku yfir­skini og ef við íhugum þetta ekki og tölum ekki um það, þá gæti tæknin haft slæm áhrif á heim­inn,“ segir hún. Anne Marie nefnir sem dæmi að algrím hafi verið notað í ann­ar­legum til­gangi. Annað dæmi séu gena­rann­sóknir en þrátt fyrir að þær geti verið til góðs þá sé mögu­leiki á mis­notkun einnig fyrir hendi.

[quote font="0" align="right“]Ég hef trú á því að fyrsta skrefið sé að opna á umræð­una að tækni sé póli­tísk. Ekki til hægri eða vinstri heldur á þann máta að hún á það til að verða hlut­dræg og undir sér­stöku yfir­skini.[/quote]

Sömu vanda­mál fylgja sam­fé­lags­miðlum, að mati Anne Marie. Hún segir að fólk geti notað netið til að eiga í sam­skiptum við annað fólk úti um allan heim en á hinn bóg­inn látið stjórn­ast af algrími þar sem það verður fast í berg­máls­her­bergjum og verður af lýð­ræð­is­legri umræðu í leið­inni.

Þess vegna verði hver ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki, stjórn­völd og stofn­anir að ræða þau sið­ferð­is­legu vanda­mál sem koma upp og halda því til streitu að umræða og vanga­veltur séu partur af þróun í tækni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár